Morgunblaðið - 12.04.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Í brjósti okkar Skagamanna býr sú
von að í þessu geti falist viss tæki-
færi, ef rétt verður á haldið. Þarna
eru tæplega sex hektarar lands nán-
ast inni í miðjum bæ,“ segir Guð-
mundur Páll Jónsson, formaður
bæjarráðs Akraness, um athafna-
svæði Sementsverksmiðjunnar hf.
Fulltrúar eigenda verksmiðjunnar
hafa átt í óformlegum viðræðum við
stjórnendur bæjarins um framtíð-
arnot verksmiðjulóðarinnar.
Framleiðslu á sementi var hætt
fyrir rúmu ári og áður var hætt
framleiðslu á gjalli. Sementsverk-
smiðjan hf. flytur inn og dreifir
sementi frá Noregi og nýtir til þess
sementstankana og hluta annarar
aðstöðu. Gunnlaugur Kristjánsson,
stjórnarformaður Sementsverk-
smiðjunnar hf., segir nokkuð ljóst
að sementsframleiðsla hefjist ekki
aftur en tekur fram að það hafi ekki
verið ákveðið formlega. Því losni
einhverjar fasteignir og lóðir. Eig-
endur Sementsverksmiðjunnar hafa
tekið þátt í þróun byggingarlands
annars staðar. Gunnlaugur segir
koma til greina að taka þátt í þróun
svæðisins en bendir á að bærinn fari
með skipulagsvaldið.
Bærinn á landið
Akraneskaupstaður gaf á sínum
tíma ríkinu land til að byggja sem-
entsverksmiðju. Þegar einkavæðing
verksmiðjunnar var undirbúin ósk-
uðu bæjarfulltrúar eftir að fá landið
til baka og að ríkið ábyrgðist nið-
urrif húsa. Guðmundur Páll segir að
bærinn hafi fengið landið en ekki
hafi verið hægt að ábyrgjast kostn-
að við niðurrif vegna ákvæða EES-
samningsins um ríkisstyrki. Talið er
að kostnaður við að rífa byggingar
verði ekki undir 200 milljónum og
segir Guðmundur að sú tala sé var-
lega áætluð.
Guðmundur Páll reiknar með að
formlegar viðræður um framtíð
verksmiðjulóðanna hefjist í þessum
mánuði. Hann tekur fram að málið
sé viðamikið og flókið og muni taka
langan tíma. Búast megi við að upp-
bygging taki áratugi. „Aðalatriðið
er að standa vel að málum.“ Nefnir
hann að haft verði náið samráð við
íbúana og efnt til hugmyndasam-
keppni. „Þetta gæti orðið eitt besta
byggingarsvæðið við Faxaflóa,“ seg-
ir Guðmundur Páll um mögu-
leikana.
Viss tækifæri fyrir Skagamenn
Viðræður að hefjast um nýtingu lóðar Sementsverksmiðjunnar á Akranesi Framleiðslu var hætt
Formaður bæjarráðs segir að verksmiðjulóðin sé eitt besta byggingarlandið við Faxaflóa
www.mats.is
Akranes Ef sementið verður áfram flutt inn munu aðeins verða not fyrir sementstankana sem eru fyrir miðri mynd.
Sementsverksmiðja ríkisins tók
til starfa á Akranesi 1958. Fyr-
irtækinu var breytt í hlutafélag
og selt einkaaðilum 2003. Verk-
smiðjan er nú í meirihlutaeigu
norska sementsframleiðandans
Norcem AS og Björgunar ehf.
Framleiðslugeta verksmiðj-
unnar er um 110 þúsund tonn
af sementsgjalli og tæp 200
þúsund tonn af sementi á ári.
Þegar umsvifin voru mest,
1975, var salan tæp 160 þúsund
tonn en þá var verið að byggja
virkjanir á Þjórsársvæðinu.
Framleiðsla og sala hefur
minnkað mikið síðustu árin og
voru einungis framleidd 32 þús-
und tonn 2011. Framleiðslu var
hætt árið eftir.
Starfsmenn voru um 190 upp
úr 1980 en eru nú 10.
Strompur verksmiðjunnar er
eitt af táknum Akraness og á
meðan gjall var framleitt og
reykur kom úr strompinum var
hann einnig eins konar veð-
urviti bæjarbúa. Þá er stromp-
urinn mið fyrir sjómenn á Faxa-
flóa.
Strompurinn
var veðurviti
FRAMLEIÐSLA Í 50 ÁR
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is
Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
SKÁPATILBOÐ
58.900 kr
.
m vsk