Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Blaðsíða 9
21.4. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
07:00 Vakna upp með þá hefðbundnu valmögu-leika í huga að sofa lengur og verða of sein
(sem er alltaf vond hugmynd) eða viðurkenna vanmátt
minn og þiggja kaffi í rúmið, annaðhvort frá 11 ára syni
mínum eða eiginmanni. Ég vel síðari kostinn enda dýr-
keypt að setja í bakkgír þegar hér er komið við sögu.
Ég er eins og gömul díselvél, lengi í gang en ódrepandi
þegar af stað er komið.
08:00 Við Jónatan Hugi 5 ára göngum til leik-skóla, stundum hellist yfir mig þessi barns-
lega löngun til að verða eftir með honum, borða einfald-
an, hollan mat á réttum tíma, hlusta á sögur í leshorni
og fara út að leika, en þetta bráir fljótt af mér. Ég kyssi
Ljónshjartað bless og hleyp út um öryggishliðið.
08:30 Morgunskokkið. Talandi um gamlar dís-elvélar; seigfljótandi hreyfingar í hvít-
klæddu landi. Þetta er gamall vani, einn af þeim betri
sem ég hef tamið mér, ég hlusta á tónlist og sem í hug-
anum prédikun næsta sunnudags.
10:00 Mætt niður í Akureyrarkirkju, tek einnkaffibolla með samstarfsfólki, að sjálfsögðu
fara aðeins fram háguðfræðilegar umræður þar sem
undirrituð leggur fram tímamótakenningar og hlýði loks
öllum yfir boðorðin 10 (já eða ekki).
10:15 Tek á móti fyrstu sóknarbörnum dagsins íviðtal, erindin eru mörg og mismunandi en
þegar öllu er á botninn hvolft lærum við hvert af öðru
svo allir græða á endanum, það er fegurðin við prest-
starfið. Þroskagróði er ómetanlegur.
12:00 Hádegisverður á Kaffi Ilm í Hafnarstræti,dýrindis matur í fallegu gömlu, gulmáluðu
húsi, það er jafn glaðlegt að innan sem utan því inni bíða
manns glaðbeittar konur með móðurlegt viðmót. Þær
eiga og reka staðinn og standa þar vaktina alla daga.
13:00 Ráðstefna í Háskólanum á Akureyri –„Zonta segir nei“ – þar sem viðfangsefnið
er ofbeldi gegn konum og spurningin sem fyrirles-
ararnir líkt og undirrituð fást þar við er hvernig sam-
félagið geti í sameiningu brugðist við þessu meini sem
reynist nú stærsta heilbrigðisvá er steðjar að konum
um víða veröld. Undirrituð fjallar um hlutverk kirkj-
unnar í því samhengi og um konurnar í lífi Jesú. Jesús
var nefnilega femínisti og snilldin við aðferðir hans í
þeim efnum var fólgin í því að hann ruddi braut kvenna
með því að fela þeim mikilvæg hlutverk þannig að þær
urðu í raun leiðandi í annars karllægu samfélagi. Hann
kom ekki fram sem einhver verndandi hetja gagnvart
þeim heldur jafningi sem kom auga á styrkleika þeirra.
En síðan tók hefðin auðvitað til við að endurskrifa sög-
una og í þeirri sögu eru konur frekar settar í bakgrunn-
inn. Þá er það hlutverk okkar guðfræðinga að leiðrétta
þann misskilning því það skiptir mjög miklu máli fyrir
kvennabaráttuna.
18:00 Mæli mér mót við eiginmann minn til 13ára, hann hefur líka alið manninn á ráð-
stefnu í dag þó hún sé nokkuð annars eðlis, þar var ver-
ið að ræða raunfærnimat í atvinnulífinu og nú stendur
til að fagna með vinnufélögum hans í SÍMEY (Símennt-
unarmiðstöð Eyjafjarðar). Á þeim vinnustað ríkir sér-
staklega vandaður vinnuandi sem opinberast m.a. í
mjög svo útpældum vinnustaðahrekkjum þar sem menn
geta átt allt eins von á því að skrifstofan þeirra verði
strípuð á meðan þeir bregða sér á salernið eða bíllinn
þeirra borinn yfir á næsta bílastæði. Föstudagskvöld í
þessum selskap er skothelt dæmi.
02:00 Leggst á koddann vel nærð á líkama ogsál eftir viðburðaríkan dag þar sem gaman
og alvara umhverfist um sálartetrið, það er best. Get
aldrei kvartað undan viðburðasnauðum dögum, og í
raun get ég sjaldan kvartað, því allir dagar hafa til-
hneigingu til að verða nokkuð góðir.
DAGUR Í LÍFI HILDAR EIRAR BOLLADÓTTUR
Sr. Hildur Eir Bolladóttir prestur í Akureyrarkirkju: „Get aldrei kvartað undan viðburðasnauðum dögum.“
Morgunblaðið/Golli
Seigfljótandi hreyfingar
í hvítklæddu landi
SR. HILDUR EIR BOLLADÓTTIR PRESTUR Í AKUREYRARKIRKJU ER LÍFSGLÖÐ KONA. HÚN
HAFÐI NÓG FYRIR STAFNI Í VIKUNNI; SAT PRESTASTEFNU Í HÖFUÐBORGINNI EN BRUNAÐI
NORÐUR Á FIMMTUDAG OG LÝSIR HÉR GÆRDEGINUM – AÐ HLUTA TIL FYRIR FRAM…
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára
Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar
henta mér afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig
líkamanum í góðu formi þrátt fyrir gigt og fleira sem
fylgir mínum aldri. Eftir skurðaðgerð nýlega fór ég í
6 vikna geislameðferð og meðan á meðferðinni stóð
stundaði ég líkamsræktina 4x í viku. Félagsska-
purinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra starfs-
fólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt.
Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst
aldrei úr tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt
þegar mér hentar.
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
Inga Hildur Yngvadóttir - 48 ára snyrti- og
fótaaðgerðafræðingur.
Ég er búin að vera í Curves í 7 ár og líkar mjög vel ég
mæti alltaf 3 í viku. Mér finnst gott að ráða hvenær ég
kem og hversu oft . Mér finnst mikill kostur að þurfa
ekki að stilla tækin og að ég sé að taka á öllum helstu
vöðvahópum. Mér líður mjög vel á eftir og ekki er
verra að halda kílóunum í skefjum og vera styrkari og
liprari. Frábær stöð sem er bara fyrir konur og þarna er
skemmtilegt starfsfólk og mjög góður andi.
Bjóðum einnigupp á trimform