Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Page 24
Þórdís er nýlega farin að sauma út í áklæði á kolla.
Þórdís Jónsdóttir við glæsilega veggmynd sem hún saumaði.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þræði nál og held
svo út í óvissuna
ÞÓRDÍS JÓNSDÓTTIR Á AKUREYRI HEFUR LENGI HAFT GAMAN AF ÞVÍ AÐ
SAUMA ÚT. HÚN BÝR TIL SÍN EIGIN MUNSTUR OG EFTIR AÐ FRÉTTIST AF
PÚÐUNUM HENNAR HEFUR ÞÓRDÍS HAFT NÓG AÐ GERA MEÐ NÁLINA.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Litadýrð er oft mikil í garnhrúgunni hjá Þórdísi.
Púðar Þórdísar eru flestir
með fallegu blómamynstri
sem hún hannar sjálf.
Þórdís segist í nokkur ár hafa verið heilluð af
munstrunum í íslenska faldbúningnum og saumað
púða þar sem hún styðst við þau munstur.
Einn þeirra má sjá́ á myndinni hér til vinstri.
Þ
órdís Jónsdóttir á Akureyri er orðin þekkt fyrir glæsilega púða sem hún saumar en
hún fæst einnig við útsaumaðar veggmyndir og er nú byrjuð að sauma út kolla. Á
síðasta ári sýndi hún verk sín í menningarhúsinu Hofi ásamt systrum sínum, Mar-
gréti og Maríu Sigríði, sem báðar eru menntaðir myndlistarmenn, og vakti töluverða
athygli. Margrét vinnur við leirlist á Akureyri en María Sigríður starfar sem listamaður á
Ítalíu.
„Púðasaumurinn minn byrjaði á því að þegar veitingastaðurinn Friðrik V var fluttur í Gilið
á Akureyri árið 2007 og ég fengin til að sauma púða þangað inn. Svo fóru hjólin að snúast og
ég fór að fá pantanir frá fólki sem þótti gaman að geta valið liti og munstur eftir því hvað
hentaði hverjum og einum og síðan hef ég varla lagt frá mér nálina!“ segir Þórdís í samtali
við Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
„Fólk sér að einn eða fleiri litríkir púðar gera hlýlegt yfirbragð á heimilið. Ég hef tekið
þátt í nokkrum sýningum á vegum Handverks og hönnunar og síðastliðið sumar héldum við
systur mínar sýningu í Hofi á Akureyri. Þar sýndi ég einnig útsaumaðar veggmyndir og ætla
að halda áfram að vinna við það með púðasaumnum.“
Útsaumur Þórdísar er allur handunninn og tekur því mikinn tíma að vinna hvern og einn
púða. „En ég nýt hvers spors sem ég sauma . Ég geri öll mín munstur sjálf en reyni samt að
halda í gömlu útsaumshefðina. Ég hef í nokkur ár verið heilluð af munstrunum í íslenska
faldbúningnum og hef saumað púða þar sem ég styðst við þau munstur. En það er nú samt
oft þannig að ég þræði bara nálina og held af stað og úr þeirri ferð spretta blóm í fögrum lit-
um. Ég hef alltaf haft gaman að allri handavinnu en er ekki sérmenntuð í því.“
Hægt er að skoða púða Þórdísar á facebook: Handbróderaðir púðar – Þórdís Jónsdóttir .
PÚÐAR, VEGGMYNDIR OG KOLLAR
*Heimili og hönnunHeima hjá Birnu og Gunnari á Rauðarárstíg er nýjum og gömlum munum blandað saman »26