Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.04.2013, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.4. 2013
Matur og drykkir
M
jólkurafurðir og egg eru á meðal þess sem vegan-
fólk neitar sér um svo og matvæli sem innihalda
aukaefni sem eru komin úr dýraríkinu. Ýmsar
súkkulaðitegundir innihalda lesitín sem er unnið
úr mjólk og í sojaostum sem seldir eru hérlendis er oftast
mjólkurduft (casein). Það var þó í vetur sem var byrjað að
selja alveg vegan-osta og smurosta og var það frábær viðbót
við úrvalið hér á landi.
Margir Íslendingar eru grænmetisætur en vegan- lífsstíll
er enn sem komið er ekki mjög algengur. Gyða Hrund Þor-
valdsdóttir, gítarleikari í dauðarokkssveitinni Angist, hefur
eingöngu borðað vegan-mat í ellefu ár. Hún þjáðist af mjög
slæmu mígreni sem minnkaði um 80% eftir að hún fór að
sneiða hjá mjólkurvörum og eggjum. Þá verður hún minna
veik en áður. „Ég er að vinna í skóla og hef staðið af mér
flestar pestir sem ganga. Það reyndar náði mér ein slæm
núna fyrir stuttu,“ segir hún en það gefst lítill tími til að vor-
kenna sér því Angist er á leiðinni til tónleikahalds í London.
Gyða segir að það sé mikill misskilningur að vegan-fæði sé
ekki næringarríkt. Sojabaunin er gífurlega prótínrík, tófú sé
mjög kalk- og steinefnaríkt og omega-3 fitu sýruna færðu úr
hör- og sólblómafræjum. Grænkál og spínat gefur járn, soja-
mjólk er oftast kalkbætt og svona mætti lengi telja.
„Stóra vandamálið sem grænmetisætur glíma við hér á Ís-
landi er fátæklegt úrval af mat sem hentar. Það hefur lagast
heilmikið síðan ég byrjaði í þessu en maður kemur alltaf
heim frá útlöndum með fullar ferðatöskur af mat. Sojavörur
og annar varningur sem tilheyrir vegan-eldhúsinu er mjög
dýr og mætti halda að stjórnvöld líti á hollustuna sem mun-
aðarvöru.
Áhrif vegan-mataræðis á umhverfið er einnig mjög jákvæð
því til dæmis miðað við framleiðslu á kjöti fer margfalt minni
vatnsnotkun í framleiðslu á vegan-máltíð. Tölurnar eru eig-
inlega bara mjög ógnvekjandi. Ég er kennari í unglingadeild
í Setbergsskóla í Hafnarfirði og fyrir stuttu vorum við með
þemadaga. Þemað var náttúran og var ég með vegan-stöð
þar sem öll unglingadeildin, 150 unglingar, fóru í gegn á
þremur dögum, elduðu þessa tofu uppskrift og fræddust um
vegan-mataræði og umhverfisáhrif. Það gekk virkilega vel og
af þessum 150 unglingum var bara einn sem vildi ekki
smakka og flestum fannst þetta mjög gott. Það var virkilega
gaman að taka þátt í þessu verkefni með þeim og voru
krakkarnir mjög áhugasamir og spurðu flottra og for-
dómalausra spurninga. Ég var alveg í skýjunum eftir þetta.“
GYÐA HRUND ÞORVALDSDÓTTIR ÞUNGAROKKARI OG KENNARI
Dýrt að vera „vegan“
ÞEIM FJÖLGAR STÖÐUGT SEM SNEIÐA HJÁ KJÖTI OG FISKI OG NEYTA ÞESS Í STAÐ EINUNGIS GRÆNMETIS OG JURTAFÆÐIS.
ÞEIR SEM HAFA TILEINKAÐ SÉR SVONEFNT VEGAN-MATARÆÐI GANGA SKREFINU LENGRA OG SNIÐGANGA
ALLAN MAT SEM INNIHELDUR SNEFIL AF DÝRAAFURÐUM, BÆÐI AF SIÐFERÐISÁSTÆÐUM OG HOLLUSTUÁSTÆÐUM. GYÐA
HRUND, GÍTARLEIKARI Í ÞUNGAROKKSVEITINNI ANGIST, ER Í HÓPI ÞEIRRA SEM AÐYLLAST VEGAN FÆÐI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Gyða Hrund Þorvaldsdóttir er hrifin af tofu í matargerð.
Morgunblaðið/Eggert
500 g tofukubbur t.d. úr Bónus (at-
hugið að kaupa ekki silken tofu sem er
í fernu).
Marinering
3 matskeiðar sojasósa
3 matskeiðar vatn
1 matskeið agave-síróp
1 teskeið reykt paprikuduft t.d frá
Pottagöldrum (mjög sterkt svo ekki
nota meira en ráðlagt er til að byrja
með.
½ teskeið hvítlauksduft
½ teskeið laukduft
Aðferð
Tofuið er sett í frysti í allavega sólar-
hring áður en hafist er handa. Þannig
breytir það um áferð og dregur betur
í sig bragð af marineringunni.
Síðan er það látið þiðna, tekið úr
pokanum og rifið niður í hentuga
stærð.
Gott er að kreista vökvann úr to-
fuinu, til dæmis með því að rífa það
niður í pastasigti og þrýsta svo vel á
þannig að vökvinn leki út um sigt-
isgötin.
Marineringin er löguð með því að
blanda öllum hráefnunum saman og
hræra vel því agavesírópið festist svo-
lítið í botninn. Blandið svo tofuinu vel
saman við marineringuna og látið
liggja í smá stund, því lengur því betra
en 10-15 mínútur er alveg nóg. Gott
aðeins að róta í því á meðan það er að
marinerast til að nýta alla mariner-
inguna.
Svo er það bara steikt á pönnu þar
til þetta brúnast og síðan bara njóta!
Að sögn Gyðu Hrundar er gott að
nota þessa uppskrift til að gera pott-
rétt og þá er hægt að bæta við græn-
meti að eigin vali eða nota út í salat.
Einnig er hægt að nota í staðinn fyrir
hakk í tortillas vefjur með káli og salsa.
SNILLDAR
VEGAN-UPPSKRIFT