Morgunblaðið - 04.05.2013, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.05.2013, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 4. M A Í 2 0 1 3  Stofnað 1913  103. tölublað  101. árgangur  BÝR Í DRAUMA- LANDI LJÓS- MYNDARANS HEIMS- FRÆGÐIN Á NÆSTA LEITI KÁNTRÍ- GOÐSÖGNIN FALLIN FRÁ SUNNUDAGUR GEORGE JONES 48BERNHARÐUR BÓNDI 10 Flugrútan Einkaleyfisútboð Vegagerðar og Suðurnesjamanna er gagnrýnt.  Þórir Garðarsson hjá Iceland Excursions – Allrahanda segir að fyrirhugaður samningur um einka- leyfi á akstri flugrútunnar sé „ósvífið samsæri opinberra aðila gegn hagsmunum neytenda og ferðaþjónustunnar“. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) framkvæmdi útboðið samkvæmt samningi við Vegagerðina. „Einka- leyfið er ekkert annað en grímu- laus heimild fyrir SSS til að skatt- leggja fólk á leið til og frá útlöndum, á þeim forsendum að flugvöllurinn sé á svæði sveitar- félaganna,“ segir Þórir. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, vísar gagn- rýni innanríkisráðherra á bug en eftirlitið hefur óskað eftir að hætt verði við útboðið þar sem það raski samkeppni. »8, 23 Einkaleyfið grímu- laus heimild til skattlagningar Pétur Blöndal pebl@mbl.is „Kosningaúrslitin um síðustu helgi urðu okkur öllum mikil vonbrigði,“ skrifaði Árni Páll Árnason, formað- ur Samfylkingarinnar, í bréfi til flokksmanna í gær. Mikil ólga hefur verið innan flokksins eftir „Íslandsmet í fylg- istapi“, eins og Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi komst að orði á fésbók. Þing- menn sem misstu þingsætið hafa gagnrýnt forystuna opin- berlega og kallað eftir endurskoð- un á stefnu flokksins. En þingmenn sem náðu kjöri segja ekki tímabært að tjá sig um stöðuna. Viðmælendum ber saman um að mótframboð sé ekki í kortunum, að minnsta kosti sé umræðan ekki tímabær. En menn skiptast í tvær fylkingar þegar kemur að því að meta hversu mikið áfall úrslit kosninganna séu fyrir forystuna. Ljóst sé að Árni Páll þurfi að taka frumkvæði og skerpa á stefnu og vinnubrögðum flokksins. Með bréfinu í gær steig Árni Páll skref í þá átt, en þar sagði hann að fráfarandi ríkisstjórn hefði van- metið skuldavanda heimilanna og verið of áköf í að afgreiða Icesave. „Okkur var svo í mun að afgreiða þetta vandamál og koma því frá að ásýnd okkar varð eins og flokks sem vildi semja, hvað sem það kostaði.“ Í sunnudagsblaðinu er farið yfir þær spurningar sem liggja í loftinu og rýnt bak við tjöldin í flokks- starfinu. Ólga eftir Íslandsmet í tapi  Vanmat á skuldavanda heimilanna og of mikil ákefð í að afgreiða Icesave réð mestu um fylgistap Samfylkingarinnar að mati formanns  Gagnrýna forystuna Árni Páll Árnason Morgunblaðið/Eva Björk Hamskipti Mikið af neftóbaki fer alls ekki upp í nef heldur undir vör. Íslenskt neftóbak hefur lítið verið rannsakað en neysla þess hefur snaraukist síðustu ár. Talið er að um 80% notenda neftóbaks noti það sem munntóbak. Neysla neftóbaks jókst verulega með reykingabann- inu 2007. Vasaklútar eru á undan- haldi en sprautur, sem notaðar eru til að troða tóbakinu undir vörina, teknar við. Grunnurinn sem íslenska nef- tóbakið er framleitt úr kemur frá Svíþjóð, frá Swedish Match sem framleiðir sænska snusið, sem bannað er með lögum. Íslenska neftóbakið er mun gróf- ara en það sænska. Það er gert eftir uppskrift frá 1943 og er séríslensk uppfinning. Hér á Íslandi er ekki til ein rannsókn um íslenska neftób- akið. „Neftóbakið er vara sem hef- ur verið mjög lítið rannsökuð en sænska snusið hefur verið rann- sakað mjög mikið,“ segir Jóhanna Kristjánsdóttir M.Sc., verkefnis- stjóri Ráðgjafar í reykbindindi og einn helsti sérfræðingur landsins um íslenska neftóbakið. Nánar er fjallað um íslenska nef- tóbakið í sunnudagsblaðinu. Neftóbak orðið munntóbak  80% af seldu neftóbaki enda undir vör ungra manna Hjólastólalið HK og bikarmeistarar ÍR mættust í hjólastólahandbolta í Austurbergi í gærkvöldi. Tilgangurinn var að vekja athygli á því góða starfi sem hjólastólalið HK stendur fyrir en það er eina liðið sinnar tegundar hér á landi. Skemmst er að segja frá því að lið HK valtaði yfir bikarmeistara ÍR, lokatölur urðu 19-14. Fjöldi áhorfenda mætti á leikinn og skemmti sér konunglega yfir tilþrifum beggja liða. Hjólastólalið HK fór létt með bikarmeistarana Morgunblaðið/Árni Sæberg Léku handbolta í hjólastólum í Austurbergi  Farþegum sem fara um flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur fjölgað um ríflega 600.000 á ársgrundvelli frá árinu 2009. Í marsmánuði fóru tæplega 26% fleiri far- þegar um flug- stöðina en sama mánuð í fyrra. Friðþór Eyþórsson, talsmaður Isavia, segir fjölgunina aðallega vera vegna þess að fleiri erlendir ferðamenn fari um flugstöðina. 26% fjölgun far- þega milli mánaða Flugstöð Brottfar- arsalur flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.  Umsjónarmaður skógarsvæða Reykjavíkurborgar gerir fastlega ráð fyrir því að lögð verði fram kæra vegna skógarhöggs sem hópur íbúa við Rituhóla hefði ráðist í, samkvæmt hans heimildum. Fleiri tugir trjáa voru felldir eða topparnir sagaðir af í þeim tilgangi að bæta útsýni. »4 Morgunblaðið/Ómar Íbúar lögðu til atlögu við skóginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.