Morgunblaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 48
»Hvernig honumtókst að renna full-
komlega saman við lagið
sem hann var að flytja,
tilfinningin svo sterk og
sannfærandi að fólki
varð orða vant
Banastikan mín („deadline“) var út-
runnin á föstudaginn næstsíðasta (26.
apríl) þegar frétt þess efnis að
George Jones væri látinn barst. Ég
hefði vitaskuld húrrað inn minning-
argrein hefði mér unnist tími til og
þess vegna koma hugleiðingar mínar
um þennan meistara nú, með næstu
lest ef svo mætti segja.
Leiðir mínar og Jones lágu saman
með nokkuð sérkennilegum hætti.
Það var um miðjan tíunda áratuginn
og ég var að vafra um einn af marg-
miðlunardiskum Encarta sem Micro-
soft gaf út um hríð. Þetta var fyrir al-
ræði internetsins og Wikipedíu sjáið
til. Þar var að finna hljóðbút með lagi
í flutningi Jones en bútarnir voru
ekki margir og sýnir það m.a. vel í
hversu miklum metum hann var
þarna vestra. Lagið var „Shes’s
Lonesome Again,“ búturinn á að
giska 15 sekúndur. En seiðmagnið í
röddinni var slíkt að ég var með það í
hausnum í fjölmörg ár á eftir. Þar og
þá sannfærðist ég um kynngi þá sem
rödd hans bjó yfir og sá þann kost
vænstan að kanna feril hans betur.
Grjótharður
Jones hóf innreið sína í sveita-
tónlistina á sjötta áratugnum en
stjarna hans skein skærast á þeim
sjöunda og áttunda. Árið 1969
giftist hann annarri kántrístjörnu,
Tammy Wynette, og var samband
þeirra með eindæmum stormasamt
(þau skildu árið 1975). Jones var
drykkfelldur mjög og sáu sumir
hann sem einhvers konar kjörson
Hanks Williams hvað lífsstíl varðaði
en Jones var undir miklum áhrifum
frá kántríkónginum. Jones var enda
ávallt með aðra löppina kirfilega í
grjóthörðu honkí-tonkíi þó að síðar
á ferlinum yrðu silkimjúkar
ballöður helsta einkennismerkið.
Jones náði um síðir að rífa sig frá
Bakkusi og hann kom reglulega
fram allt til enda nánast, risa-
tónleikaferðalag var meira að segja
á teikniborðinu fyrir árið í ár og var
ýjað að því að það yrði hans síðasta.
Eins og áður segir verður mönnum
tíðrætt um hreinleikann sem var í
rödd Jones. Hvernig honum tókst að
renna fullkomlega saman við lagið
sem hann var að flytja, tilfinningin
svo sterk og sannfærandi að fólki
varð orða vant. „Þetta var ekki flutn-
ingur, bara hljóðið í manni sem var að
brotna saman fyrir framan þig,“
sagði Mark Hagen hjá BBC í minn-
ingarorðum og Hank Wangford hjá
Guardian lýsir því hvernig Jones
lengdi á tónunum og skreytti þá með
tilfinningalegri dýpt sem fáir – ef ein-
hverjir – gátu leikið eftir.
Áhrif
Jones hafði þá djúpstæð áhrif á
kántrírokkara eins og Gram Parsons
sem söng eitt af einkennislögum Jon-
es og Wynette, „That‘s All It Took“, á
fyrstu sólóplötu sinni GP árið 1973
ásamt Emmylou Harris. Hæfileikar
skera á öll kynslóðabil og -stefnur og
yngri rokkarar eru með Jones á stalli.
Twitter-vottum hefur þannig rignt
inn frá ólíklegustu áttum; Tom Mor-
ello, Kings of Leon og Caitlin Rose
hafa öll sent alnetinu línu en einnig
samtíðafólk eins og Kenny Rogers og
Dolly Parton. Sjálfur Merle Haggard
sparar þá ekki stóru orðin og segir:
„Heimurinn kann að hafa misst
mesta kántrísöngvara allra tíma.“
Jones lést á sjúkrahúsi í Nashville og
var 81 árs.
„Hann hætti að
syngja í dag…“
Kántrígoðsögnin George Jones lést í
síðustu viku Rödd hans þykir sú feg-
ursta sem kántrítónlistin hefur getið af sér
Parið Herra og frú kántrí, Tammy Wynette og George Jones, þegar allt lék í lyndi.
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013
Verslunin Nexus á Hverf-
isgötu 103 heldur „ókeypis
myndasögudaginn“ hátíð-
legan í dag, laugardag, og
býður gestum og gangandi
ókeypis myndasögur. Við-
burðurinn hefst klukkan 13.
Í boði verða yfir fimmtíu
titlar, allt frá ofurhetju-
sögum til dramatískra
vestrafrásagna og vís-
indaskáldsagna, þannig að
allir áhugamenn um mynda-
sögur ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi.
Nexus er í hópi yfir tvö
þúsund verslana víða um lönd sem taka ár hvert þátt í þessum alþjóðlega
myndasögudegi en tilgangurinn er að kynna myndasöguformið sem af-
þreyingarmiðil.Talið er að allar þessar verslanir gefi yfir þrjár milljónir
blaða í dag.
Gefa ríkulegt úrval myndasagnablaða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsælt Fjöldi áhugamanna um myndasögur fékk
gefins blöð hjá versluninni Nexus í fyrra.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Komdu
í bíó!
Þú finnur upplýsingar um
sýningartíma okkar og miðasölu á
www.emiði.is og www.miði.is
Stórkostleg
ævintýramynd fyrir
alla fjölskylduna
14
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
MISSIÐ EKKI AF FYNDNUSTU
OG BESTU MYNDINNI Í
SERÍUNNI
ÍSL TAL
KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
ROBERT DOWNEY JR.
BEN KINGSLEY
GWYNETH PALTROW
GUY PEARCE
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
EIN FLOTTASTA
SPENNUMYND ÁRSINS!
Stór og yfirdrifinn
teiknimyndahasar af betri gerðinni.
T.V. - Bíóvefurinn
VJV
Svarthöfði
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
L
12
12
12
IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 2 -5 -8 -10:10 -10:40(P)
LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 2 - 4 - 6
OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 8
SCARY MOVIE 5 Sýnd kl. 10:30
THE CROODS 3D Sýnd kl. 2 - 4
G.I. JOE 2 RETALIATION 3D Sýnd kl. 8
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
-Empire
-Hollywood
Reporter