Morgunblaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Sigmundur Sigurgeirsson
Sveitarfélagið Árborg
Sunnlenski sveitadagurinn er í
dag, en það er fyrsta sumarhátíð
ársins á Suðurlandi. Er þetta í
fimmta sinn sem þessi hátíð er hald-
in, og eru það tvö fyrirtæki á Sel-
fossi, Jötunn Vélar og Vélaverk-
stæði Þóris sem standa að hátíðinni.
Fer hátíðin fram á athafnasvæði
þessara fyrirtækja austast í bænum.
Fyrst og fremst er sunnlenski
sveitadagurinn óður til landbún-
aðarins og mikil tenging við bændur
og afurðir þeirra. Er þar margt til
sýnis er tengist sunnlenskri fram-
leiðslu og hafa fyrirtæki nýtt daginn
til að kynna matvöru, hönnun og
fleira, en ekki síður er þar að finna
dýrin úr sveitinni sem jafnan vekja
kátínu unga fólkins.
Íþróttastarfið í Árborg er í
blóma og knattspyrnumenn og -kon-
ur eru að undirbúa sig fyrir átök
sumarsins. Selfyssingar eiga sterkt
lið í Pepsi-deild kvenna í sumar og
verður spennandi að fylgjast með
þeim ásamt strákunum sem ætla sér
örugglega að endurheimta sæti sitt í
deild þeirra bestu eftir sumarið. Þá
er mikið að gera hjá fimleikafólki,
fjölmennt mót er haldið á Selfossi
um helgina en framundan er þó vor-
mót Fimleikasambandsins, sem
haldið verður dagana 10. til 12. maí.
Þar er von á 750 keppendum af öllu
landinu, sem þýðir að halda verður
vel á spilunum fyrir mótshaldarana,
sem eru hin öfluga fimleikadeild Sel-
foss. Stefnir í að þetta verði stærsta
mót fimleikasambandsins til þessa.
Búast má við fjölmenni í bænum þá
dagana, en sömu helgi stendur yfir
menningarhátíðin Vor í Árborg.
Búið er að opna upplýsinga-
stofu fyrir ferðamenn í félagsheim-
ilinu Stað á Eyrarbakka, en þar
verður ýmsar upplýsingar um svæð-
ið að finna, myndsýningar og fleira
tengt ferðaþjónustu á ströndinni.
Að sögn Siggeirs Ingólfssonar,
staðarhaldara, er stefnan sett á að
byggja upp skábraut og timburstíg
ofan á sjóvarnargarðinn við Stað og
hefur beiðni um slíkt verið sam-
þykkt í bæjarráði. Bíður Siggeir
þess að fá samþykki Siglingastofn-
unar fyrir stígnum en sjóvarnar-
garðurinn er í eigu stofnunarinnar.
Hann segir fjölda ferðamanna fara
um Eyrarbakka á leið sinni um Suð-
urland og hann bindur vonir við að
þeim fjölgi enn í sumar, enda er
margt að sjá á þessum sögulegu
slóðum við ströndina.
Óhætt er að segja að fjöl-
breytt starf sé í Selfosskirkju sem
kemur fram í þátttöku ýmissa aðila í
messum. Þessi fjölbreytni hefur
skilað sér í góðri messusókn. Ára-
löng hefð er fyrir starfsemi barna-
og unglingakóra í kirkjunni og
syngja kórarnir oft við messu. Það
munu þeir einnig gera í Krossa-
messu á morgun en þá verður einnig
úthlutað sérstökum viðurkenning-
arkrossum til stúlkna sem eru að
hætta þátttöku í kórnum sökum ald-
urs. Kvöldmessur á sunnudags-
kvöldum hafa einnig verið vel sóttar,
slíkar messur hafa verið á léttari
nótum þar sem þekktir tónlistar-
menn hafa séð um tónlistarflutning.
Á fyrsta degi sumars var kirkju-
starfið enn á óhefðbundnum nótum
þar sem fimleikafólk setti mark sitt
á messuna með sýningu ásamt því
að þjálfari og afreksstúlka úr hópn-
um fluttu hugvekjur sem höfðu mikil
áhrif á kirkjugesti.
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Fjölbreytni Iðkendur fimleikadeildar settu mark sitt á messu í Selfosskirkju nýverið.
Viðburðaríkt vor í Árborg
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013
Stærst
i
skemmt
istaður
í heimi!
Þjónustusamningur í áskrift hjá Nova er til 6 mánaða, greitt með kreditkorti. Nánari upplýsingar á nova.is.
Fyrsti mánuðurinn á 0 kr. í áskrift, skv. þeirri leið sem er valin, en í frelsi 1 GB.
Kringlunni, Smáralind, Lágmúla, á Selfossi og á Glerártorgi Akureyri
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter
4G hneta
12.990 kr.
með þjónustusamningi í áskrift.
Fullt verð í áskrift og frelsi: 19.990 kr.
4G hnetu er hægt að nota á 4G og 3G
þjónustusvæði Nova.
1 GB
1.190 kr.
15 GB
3.990 kr.
Fyrsti mánuðurinn á 0 kr.!
4G netþjónusta
Hægt að nettengjaallt að 10 tæki (WiFi)
4G hneta
fyrir fólk
á ferðinni!
Múrbúðin hefur ákveðið að loka
timbursölu fyrirtækisins að
Bakkabraut í Kópavogi. Ástæðan
er sögð vera að stærstu kaup-
endur slíkrar vöru hafi ákveðið að
vera áfram í viðskiptum við mark-
aðsráðandi aðila þrátt fyrir að
verðlækkun hafi orðið á timbri og
grófvöru með innkomu Múrbúðar-
innar á markaðinn.
Í tilkynningu frá Múrbúðinni
segir að lítil verðsamkeppni hafi
verið í áðurnefndum vöruflokkum
milli Byko og Húsasmiðjunnar áð-
ur en Múrbúðin kom til sögunnar.
Með innkomu Múrbúðarinnar á
markað hafi tvö áðurnefndu fyrir-
tækin brugðist við með því að
lækka verð og lagt ofuráherslu á
að halda stórum viðskiptavinum.
Þá er minnt á að rannsókn Sam-
keppniseftirlitsins og sérstaks sak-
sóknara á ætluðu broti Byko og
Húsasmiðjunnar á samkeppnis-
lögum sé enn til rannsóknar.
Múrbúðin
hættir að
selja timbur
Stóru kaupend-
urnir komu ekki