Morgunblaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Hagnaður Royal Bank of Scotland
nam 393 milljónum punda á fyrsta árs-
fjórðungi, eða sem nemur 71
milljarði króna en á sama tímabili í
fyrra nam tap RBS 1,545 milljörðum
punda, eða sem nemur 279 milljörðum
króna.
Stjórnarformaður bankans, Philip
Hampton, sagði í gær að á næsta ári
yrði hægt að hefja einkavæðingu bank-
ans á ný en breska ríkið varð að bjarga
bankanum frá gjaldþroti í hruninu. Að
sögn Hamptons á hann von á því að
breska ríkið hefji sölu á hlut sínum um
mitt næsta ár.
RBS einkavæddur á ný
Haraldur Flosi Tryggvason, stjórn-
arformaður Orkuveitu Reykjavíkur,
hefur verið valinn stjórnarformaður
Sítusar, sem er í eigu ríkisins og
Reykjavíkurborgar og fer með mál-
efni lóðanna við Austurhöfn. Tekur
hann við af Pétri J. Eiríkssyni sem
hefur unnið að uppbyggingu Hörp-
unnar, lóðamálum og nýju hóteli við
hlið Hörpunnar síðan 2009.
Pétur hætti í desember síðast-
liðnum sem stjórnarformaður í Por-
tusi, félagi sem sér um rekstur
Hörpunnar, en í lok síðustu viku
hætti hann svo í stjórn Sítusar.
Haraldur er lögfræðingur að
mennt og útskrifaðist með embætt-
ispróf frá lagadeild HÍ árið 1999.
Þá tók hann meistaragráðu í Evr-
ópu- og samanburðarlögfræði árið
2003 frá Oxford-háskóla og MBA-
nám frá Oxford Brooks-háskólanum
árið 2004.
Haraldur Flosi er fyrrverandi
framkvæmdastjóri fjármálafyrir-
tækisins Lýsingar hf. og er einn
stofnenda lögfræðistofunnar Lög-
menn Bankastræti.
Pétur sagði í samtali við mbl.is
að hann hygðist einbeita sér að
þeim félögum sem hann sitji nú
þegar í, en hann er stjórnarformað-
ur í Norðursiglingu á Húsavík og
Klakka. Norðursigling sérhæfir sig
í hvalaskoðun, en Klakki hét áður
Exista og hefur á síðustu misserum
verið að vinna að endurskipulagn-
ingu Skipta og sölu á VÍS, en síð-
arnefnda félagið fór á markað um
daginn.
Morgunblaðið/Júlíus
Sítus Félagið fer með málefni lóðanna við Austurhöfn. Haraldur Flosi
Tryggvason verður stjórnarformaður í stað Péturs J. Eiríkssonar.
Nýr stjórnarfor-
maður Sítusar
Haraldur Flosi tekur við af Pétri
Haraldur Flosi
Tryggvason
Pétur J.
Eiríksson
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis, sem
hefur úr fiskroði þróað meðferð við
þrálátum sárum, hefur lokið við
hlutafjáraukningu fyrir eina milljón
dollara. Það gerir um 116 milljónir
króna. Ferli við að fá markaðsleyfi í
Bandaríkjunum er langt komið og
er búist við að því verði lokið fyrir
árslok.
„Farið var í hlutafjáraukninguna
til að fjármagna markaðssetningu á
vöru frá okkur, MariGen Omega3, í
Miðausturlöndum og Bretlandi.
Auk þess fer fjármagnið í að ljúka
við klínískar prófanir svo hægt sé
að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum
en þar er stærsti markaðurinn fyrir
vöruna,“ segir Guðmundur F. Sig-
urjónsson, starfandi stjórnarfor-
maður fyrirtækisins, í samtali við
Morgunblaðið. Til að komast á
Bandaríkjamarkað þarf fyrirtækið
m.a. að framkvæma tvær læknis-
fræðilegar prófanir. Fyrri prófun-
inni er lokið og sú seinni er langt
komin.
Þrír núverandi hluthafar fyrir-
tækisins tóku þátt í hlutafjáraukn-
ingunni, Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins: Hraðfrystihúsið
Gunnvör á Ísafirði og Klofningur,
einnig á Ísafirði. Einn nýr fjárfestir
kom að hlutafjárútboðinu en það er
fjárfestingarfélagið Omega, sem er
m.a. í eigu Andra Sveinssonar, fyrr-
verandi stjórnarmanns í Actavis, og
Birgis Más Agnarssonar, stjórnar-
manns í tölvuleikjafyrirtækinu
CCP.
Aðalsamkeppnisvara Kerecis er
unnin úr svínaþörmum og svína-
þvagblöðrum. Kerecis gerði samn-
ing í febrúar við alþjóðlega fyrir-
tækið Medline Industries um að
dreifa vörunni í Miðausturlöndum.
Auk þess hefur fyrirtækið gert
samning um dreifingu á vörunni í
Bretlandi, en varan er CE vottuð og
því má selja hana í Evrópu.
Spá 500 milljóna veltu
„Við erum á viðkvæmum tíma-
mótum þar sem við erum að þróast
frá því að vera tekjulaust nýsköp-
unarfyrirtæki yfir í öflugt lækn-
ingavörufyrirtæki með tekjur,“ seg-
ir Guðmundur. Samningurinn í
Miðausturlöndum ætti á næstu
þremur til fimm árum að vaxa í 500
milljóna króna árleg viðskipti, að
hans sögn.
Kercis var stofnað árið 2009 af
fjórum fyrrverandi vinnufélögum.
Þrír þeirra höfðu starfað áður hjá
stoðtæknifyrirtækinu Össuri, og er
Guðmundur í þeim hópi, auk Bald-
urs Tuma Baldurssonar húðlæknis.
„Það getur skipt sköpum fyrir
fyrirtækið að komast inn á Banda-
ríkjamarkað. Þar eru um 100 þús-
und manns aflimaðir á ári og 1,2
milljónir manna glíma við þrálát
sár,“ segir Guðmundur.
Milljón dollara hlutafjár-
aukning og markaðssókn
Kerecis lauk mikilvægum áfanga til að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum í ár
Stofnendur Á myndinni eru þrír af fjórum stofnendum Kerecis. Guð-
mundur F. Sigurjónsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, er til vinstri.
Þórólfur Árna-
son var endur-
kjörinn stjórn-
arformaður
Fríhafnarinnar á
aðalfundi félags-
ins á Hotel Nat-
ura í fyrradag.
Hann hefur verið
stjórnar-
formaður Frí-
hafnarinnar frá
árinu 2011. Þór-
ólfur er einnig formaður stjórnar
Isavia, sem annast rekstur og upp-
byggingu allra flugvalla á Íslandi
og stýrir flugumferð á íslenska
flugstjórnarsvæðinu.
Á aðalfundi Fríhafnarinnar var
sitjandi stjórn sömuleiðis endur-
kjörin.
Í stjórninni sitja ásafmt Þórólfi
þau Arnbjörg Sveinsdóttir, Bergur
Sigurðsson, Ólafur Thordersen og
Jónína Hólm.
Áfram
stjórnar-
formaður
Þórólfur
Árnason
Þórólfur Árnason
endurkjörinn
Útboð á óverðtryggðum ríkis-
bréfum, RIKB 22 1026, fór fram hjá
Lánamálum ríkisins í gærmorgun.
Útboðinu var þannig háttað að öll
samþykkt tilboð buðust á sama
verði. Lægsta samþykkta verð
(hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði
söluverðið, samkvæmt frétta-
tilkynningu frá Lánamálum ríkis-
ins.
Alls bárust 24 gild tilboð í flokk-
inn að fjárhæð 7.200 m.kr. að nafn-
verði. 21 tilboði var tekið fyrir
6.000 m.kr. að nafnverði á söluverð-
inu 106,950 (6,25% ávöxtunar-
kröfu).
Tilboðum fyr-
ir 6 ma. tekið
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.
+./-+0
++1-12
3/-422
+0-0,1
+2-./0
+31-+0
+-+./3
+21-0
+,+-0+
++5-/.
+./-54
++1-.+
3/-142
3/-/+4
+2-.5+
+31-,1
+-+.42
+2,-13
+,3-41
3/2-+0+3
++5-45
+.+-/2
++,-+,
3/-102
3/-/23
+2-0+4
+31-.0
+-+.23
+2,-01
+,3-22
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Lækjargötu og Vesturgötu