Morgunblaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013
Ég fer út í óvissuna með stórfjölskyldunni og hef ekki hug-mynd um hvert ég er að fara,“ segir Inga Þyri Kjartans-dóttir, snyrtifræðingur og athafnakona í Reykholti í Bisk-
upstungum, sem verður 70 ára í dag. Það hefur verið í nógu að
snúast hjá henni vegna tímamótanna þar sem hún er nýkomin heim
úr fimm daga ferð til Frakklands ásamt dætrum sínum, karlarnir
skildir eftir heima. „Þetta var dásamleg ferð, keyrðum um sveitir
Frakklands og enduðum í verslunarferð í London,“ segir Inga en
fjölskyldan er sæmilega stór. Hún og eiginmaður hennar, Bergþór
G. Úlfarsson, eiga samanlagt sex börn, 16 barnabörn og eitt barna-
barnabarn. „Ég er óskaplega rík, á yndisleg börn og tengdabörn
sem stjana við mig.“
Inga Þyri hefur komið víða við í atvinnurekstri allt frá því að hún
opnaði fyrstu snyrtistofuna á Húsavík. Hún stofnaði og rak heild-
verslanir í inn- og útflutningi. Árið 1997 stofnaði hún Heildverslun-
ina Hjöl og opnaði Pronails naglaskólann sem síðar sameinaðist
Snyrtiakademíunni í Kópavogi, sem þær Kristín Stefánsdóttir stofn-
uðu. Kristín seldi hluta sinn 2007 og eru Inga Þyri og Bergþór nú
meirihlutaeigendur. Hjónin reka í dag heildverslanirnar Hjöl og
Bjarkarhól, verslunina Bjarkarhól í Reykholti og Snyrtiakadem-
íuna, sem eru fjórir sjálfstæðir skólar á snyrti- og heilbrigðissviði.
Inga Þyri hefur í áratugi verið virk í starfi Framsóknarflokksins,
m.a. setið í bæjarstjórn Kópavogs og verið framkvæmdastjóri
Landssambands framsóknarkvenna. „Það er óskaplega gaman að
vera framsóknarmaður í dag og bætir upp árin sem maður fór grát-
andi í rúmið á kosninganótt,“ segir Inga og hlær. bjb@mbl.is
Inga Þyri Kjartansdóttir 70 ára í dag
Ljósmynd/Þórður Bogason
Fjölskyldan Inga Þyri fremst ásamt manni sínum, Bergþóri G. Úlf-
arssyni, og fjölskyldu á Krít árið 2008, þegar Bergþór varð sjötugur.
Í óvissuferð með
stórfjölskyldunni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Arnheiður Breiðfjörð
Gísladóttir og Mar-
grét Kristín Th. Leifs-
dóttir héldu tombólu
fyrir utan verslunina
Albínu á Patreksfirði
til styrktar Rauða
krossinum. Þær söfn-
uðu samtals 5.758
krónum.
Hlutavelta
Dalvík Rakel Sara fæddist 25. júlí.
Hún vó 3.684 g og var 51 cm löng.
Foreldrar hennar eru Guðrún
Magnúsdóttir og Atli Þór Frið-
riksson.
Nýir borgarar
Reykjavík Aron Heiðar Hlíðberg
fæddist 13. júlí 2012 kl. 13.52. Hann vó
3.175 g og var 49,5 cm langur. For-
eldar hans eru Sunna Björk og Sigur-
jón Geir.
J
akob fæddist í Kaupmanna-
höfn 4.5. 1953, ólst upp um
skeið á Akureyri hjá móð-
urafa og -ömmu er for-
eldrar hans dvöldu í
Bandaríkjunum, flutti með for-
eldrum sínum til Reykjavíkur 1957
og ólst þar upp í Hlíðunum.
Jakob var í tímakennslu hjá Sig-
ríði Magnúsdóttur ömmusystur
sinni, var í Ísaksskóla, Æfingadeild
Kennaraskólans, Hlíðaskóla, lauk
landsprófi frá Hagaskóla og stúd-
entsprófi frá MH 1972, stundaði
nám við Tónlistarskólann í Reykja-
vík 1964-70, við Dick Grove School of
Music 1977-79, og tónlistardeild
University of California (UCLA) í
Los Angeles 1979-80 og sótti einka-
tíma hjá Mike Garson og Victor
Feldman.
Jakob stundaði nám við félags-
Jakob Frímann Magnússon tónlistar- og athafnamaður – 60 ára
Brúðhjónin og dæturnar, Katrín Borg, Birna Rún, Jarún Júlía og Jakob Frímann.
Eiga bæði stórafmæli
í dag og gifta sig í dag
Enn í stuði Jakob Frímann með í Stuðmönnum í Hörpu þann 5.10. sl.
Morgunblaðið/Ómar
Það er óþarfi að
eldast um aldur fram
Dr. Earl Mindell:
“Hver sem er á að geta haft útlit og líðan fyrir
að vera 5-15 árum yngri en hann er.”
Gréta Mörk, hjúkrunarfr. 54 ára: Eftir langvarandi vanlíðan prófaði ég Life Extension. Strax á fyrsta
glasi leið mér verulega betur. Þrek og lífsþróttur hefur aukist stórum, ég sef betur og þoli miklu meira
álag. Er léttari og jákvæðari í skapi og er orðin félagslyndari. Mér finnst ég vera áratugum yngri.
Húðin er orðin mýkri, hrukkurnar færri og frískari yfirbragð. Ég mun taka Life Extension inn áfram.
Aukið álagsþol og jafnvægi
dregur úr streitu, vær svefn
og léttari lund.
Næring fyrir DNA og RNA starfsemi
frumanna. Hefur áhrif á teygjanleika
og stinnleika líkamans. Góður
árangur við síþreytu, vefjagigt
og vöðvabólgu
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og Fríhöfninni.
www.celsus.is
2 mánskammtur