Morgunblaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 124. DAGUR ÁRSINS 2013 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Leit afturkölluð - fór úr landi 2. Foreldrar sóttu piltana 3. Ég sagði honum að ég væri ólétt 4. Björn Valur biðlar til Sigmundar  Kórastarf hérlendis stendur í mikl- um blóma, en nú um helgina er boðið upp á a.m.k. fimm tónleika. Í dag má þannig hlusta á Karlakórinn Fóst- bræður í Langholtskirkju kl. 15 og Sönghóp Átthagafélags Vestmanna- eyinga á Reykjavíkursvæðinu í kirkju Óháða safnaðarins kl. 15. Á morgun syngur Léttsveit Reykjavíkur í Grafar- vogskirkju kl. 17 og Kammerkór Hafn- arfjarðar í Hafnarborg kl. 20, auk þess sem Kammerkór unglinga í Bústaðakirkju heldur fjáröflunar- tónleika kl. 17, en kórinn heldur á kóramót í Noregi í næstu viku. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Blómlegt kórastarf  Myndband Bjarkar Guðmundsdótt- ur við lagið Mutual Core hreppti Webby-verðlaun sem kennd eru við rödd fólksins, en almenningur kaus hennar myndband það besta. Webby- verðlaunin njóta vaxandi virðingar og eru veitt fyrir framúrskarandi efni á netinu. Myndband Bjarkar hefur hlot- ið mikla athygli og m.a verið sýnt á risaskjáum á Times Square í New York. Því var leikstýrt af Andrew Thomas Huang en framleitt af Saga- film. Í myndbandinu er Björk grafin í sand og koma eldfjöll og veltandi hraungrýti við sögu. Dóm- nefnd kaus myndband Sig- ur rósar við lagið Fjögur píanó, besta myndbandið. Björk og Sigur rós fá Webby-verðlaun FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan og austan 10-18 á annesjum N-til en annars hægari. S- læg átt 5-10 syðra. Væta á köflum og hiti 2 til 7 stig að deginum. Á sunnudag Norðaustan 13-20 m/s og slydda eða jafnvel snjókoma NV-til, en annars suðvestan og vestan 8-13 og skúrir eða slydduél. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Á mánudag Norðan og norðvestan 5-13 m/s, él og hiti um og undir frostmarki, frost N- lands, en skýjað með köflum syðra og hiti 1 til 6 stig. Úrslitin geta ráðist endanlega á Ís- landsmótinu í handknattleik um helgina. Framarar geta í dag tryggt sér sigur í karlaflokki þegar þeir fara með 2:0 forystu gegn Haukum í Hafn- arfjörð. Hjá konunum verður hreinn úrslitaleikur í Safamýri á morgun þegar Fram tekur á móti Stjörnunni en Fram náði að jafna metin í gær- kvöld með sigri í Garðabæ. »2-4 Dregur til tíðinda í handboltanum Íþróttafélög innan vébanda Íþróttasambands Íslands, ÍSÍ, geta átt von á vett- vangsathugun frá starfs- mönnum embættis ríkis- skattstjóra á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í bréfi sem skattstjóri sendi á Líneyju Rut Hall- dórsdóttur, framkvæmda- stjóra ÍSÍ, að hennar beiðni, eftir fund Líneyjar með skattstjóra. »4 Skatturinn skoðar íþróttafélögin David James, Hermann Hreiðarsson og félagar í ÍBV taka á móti Skaga- mönnum í fyrsta leik Íslandsmótsins í knattspyrnu í Vestmannaeyjum á morgun. Þá fer einnig fram fyrsti leikurinn í efstu deild í Ólafsvík, á milli Víkings og Fram, og í Kópavogi tekur Breiðablik á móti Þór. Morgun- blaðið fjallar ítarlega um fyrstu umferðina. »2-3 Íslandsmótið hefst í Vestmannaeyjum Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is „Tilfinningin er æðisleg, ekki til betri tilfinning,“ segir Guðmundur Juanito Ólafsson, nemandi í 10. bekk í Holtaskóla. Lið skólans sigr- aði í Skólahreysti síðastliðinn fimmtudag, en þetta er þriðja árið í röð sem skólinn vinnur keppnina. Í Skólahreysti keppa strákarnir í upphífingum og dýfum en stúlk- urnar keppa í armbeygjum og hreystigreip. Saman keppir liðið síðan í hraðaþraut. Liðsheildin skilaði sigrinum „Við æfðum mjög mikið, alla daga vikunnar,“ segir Guðmundur. „Okk- ur var meira að segja sagt að æfa minna.“ Liðið hefur æft markvisst í allan vetur og á hverjum föstudegi er skólahreystitími á stunda- töflunni. Guðmundur æfir einnig fótbolta og hefur lagt áherslu á skóla- hreystigreinarnar samhliða því. Hann var einnig í sigurliðinu í fyrra og segir mikla liðsheild vera innan skólans. „Við gerðum mynd- band sem sýnt var niðri á sal,“ segir Guðmundur, en það sýndi liðið við æfingar og var það ætlað til hvatn- ingar. „Líðsheildin skilaði liðinu sigr- inum,“ segir Guðmundur. „Það er svo gott að hafa góða stuðnings- menn.“ Fengu góðar móttökur í skólanum „Við fengum svakalegan stuðning þegar við mættum í skólann í morg- un,“ segir Kolbrún Júlía Guðfinns- dóttir Newman, nemandi í 9. bekk í Holtaskóla. Eftir sigurinn á fimmtu- daginn gekk liðið niður í samkomu- sal skólans í gær, föstudag, undir dynjandi hvatningartónlist. Þar fengu þau blómvendi og ham- ingjuóskir vegna árangursins. „Það var tekið mjög vel á móti okkur,“ segir Kolbrún. Hún æfir fimleika og segist vera viss um að reynslan þaðan hafi skil- að henni langt í keppninni á fimmtu- dag. Hún hyggst taka þátt í keppn- inni að ári og hvetur aðra grunnskólanema til að gera slíkt hið sama. „Það er alveg bókað mál, þetta er rosalega gaman.“ „Æfðum alla daga vikunnar“  Holtaskóli sigr- aði í Skólahreysti þriðja árið í röð Ljósmynd/Eyþór Sæmundsson Ánægð Sigurlið Holtaskóla fékk góðar móttökur í skólanum eftir sigurinn. Guðmundur Juanito Ólafsson, Theodór Sigurbergsson, Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman, Thelma Ósk Herbertsdóttir og Ingibjörg Sól Jónsdóttir. „Eftir fyrsta sigurinn hefur orðið mikil vakning hjá krökkunum,“ segir Einar Einarsson, einn af þjálfurum skólahreystiliðsins í Holtaskóla. Hann segir krakkana mjög áhugasama. „Þau eru mjög virk í að gera þetta eins flott og við getum.“ „Það er mikið af flottu íþróttafólki hér á Reykjanesinu,“ segir Einar. Samkenndin hjálpi til og segir hann auðveldara að mynda stemningu í minni bæjarfélögunum. „Þetta snýst ekki bara um að vinna keppnina, heldur einnig að vinna nágrannaskólana.“ „Við förum í gegnum hollt mataræði og leggjum áherslu á nægan svefn,“ segir Einar. „Við beinum því að keppendum að hanga ekki í snakk- pokunum og gosinu á kvöldin.“ Hann segir krakkana taka hvatningunni vel og þeir séu duglegir að borða hollan mat. Samkenndin hjálpar til SNÝST EINNIG UM AÐ VINNA NÁGRANNASKÓLANA Skannaðu kóðann til að sjá mynd- band af sigurveg- urunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.