Morgunblaðið - 04.05.2013, Side 2

Morgunblaðið - 04.05.2013, Side 2
Lögreglu- bílum var í fyrra ekið 34% færri kílómetra en árið 2007. Mestur er samdráttur- inn hjá lög- reglunni í Borgarnesi en þar dróst aksturinn saman um 59%. Þetta kemur fram í ársskýrslu ríkislögreglustjóra fyrir árið 2012 sem gefin var út í gær. Alls var lögreglubílum ekið um 5,5 milljón kílómetra árið 2007. Síð- an þá hefur aksturinn minnkað með hverju ári. Í fyrra var bílunum ekið samtals um 3,6 milljónir kíló- metra. Akstur hefur dregist saman hjá öllum embættum, að Lögreglu- skólanum undanskildum. Á milli áranna 2008 og 2012 jókst meðalaldur lögreglubíla úr 3,2 árum í 3,9 ár en markmið ríkislög- reglustjóra er að meðaldur sé í kringum 3 ár. Aka 34% minna en árið 2007  Mesti samdráttur- inn í Borgarnesi 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Yfir 3.660 einstaklingar hafa skorað á Guðbjart Hannesson velferðarráðherra að hætta við breytingar á reglum um greiðsluþátttöku lyfja sem taka gildi í dag. Aðstandendur undirskrifta- söfnunarinnar hafa ekki náð sambandi við ráð- herrann og afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, áskoranirnar ásamt athuga- semdum þátttakenda, á Bessastöðum í gær. For- setinn benti á að hendur hans væru bundnar og ráðherrar færu með valdið í þessu efni. „Við vonum að þetta hreyfi við ráðherranum á ein- hvern hátt,“ sagði Sigurður Jónas Eggertsson, sem afhenti listana og tók fram að ef það gerist ekki þyrfti að bíða eftir nýjum valdhöfum og sjá hvað þeir gerðu. Baráttunni yrði haldið áfram. 3.660 skora á ráðherra að hætta við Morgunblaðið/Ómar Nýtt greiðsluþátttökukerfi lyfja á að taka gildi ídag Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hluti erfingja Sigurðar Kristjáns Lárussonar Hjaltested mun krefjast þess að fá inn í dán- arbúið fjármuni sem núverandi ábúandi Vatns- enda í Kópavogi hefur fengið fyrir land jarð- arinnar, þar á meðal vegna eignarnáms Kópavogsbæjar. Karl Lárus Hjaltested segir að Kópavogsbær hafi á sínum tíma verið gerð- ur ábyrgur fyrir því ef fjármunirnir færu ekki til dánarbúsins. Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðs- dóms Reykjaness um að við opinber skipti á dánarbúi Sigurðar Kristjáns Lárussonar Hjaltested sem lést 1966 teldist beinn eignar- réttur að jörðinni Vatnsenda enn vera á hendi dánarbúsins. Deilt hefur verið um eignarhald á jörðinni í áratugi. Magnús Sigurðsson Hjaltested tók við jörðinni eftir lát föður síns og núverandi ábú- andi er sonur hans, Þorsteinn Hjaltested. Seinni kona Sigurðar og tveir synir þeirra hafa krafist skipta á dánarbúinu og að jörðin teldist meðal eigna þess. Miklir hagsmunir eru í húfi. Hluti jarðarinn- ar hefur verið seldur. Nú síðast tók Kópavogs- bær eignarnámi 864 hektara árið 2007 og greiddi fyrir það 2,5 milljarða. Allir samningar raktir upp Karl Lárus Hjaltested, einn erfingja Sigurð- ar Hjaltested, segir að fundað verði með lög- mönnum á mánudag. Hann telur einsýnt að rekja þurfi upp alla samninga sem gerðir hafi verið aftur í tímann og krefjast þess að fá fjár- munina inn í dánarbúið. Nefnir hann svo- nefnda eignarnámssátt sem gerð var við Kópa- vogsbæ út af Vatnsendalandi. Þá telur Karl að dánarbúið sé nú aðili að málaferlum eiganda jarðarinnar við Kópavogsbæ út af eignarnám- inu enda hafi Þorsteinn Hjaltested, bróðurson- ur hans og ábúandi Vatnsenda, ekki lengur eignarhald á jörðinni. Ekki náðist í Þorstein Hjaltested í gær- kvöldi. Pálmi Þór Másson, bæjarlögmaður Kópavogsbæjar, sagðist ekki geta tjáð sig um málið að svo stöddu. Vatnsendi eign dánarbúsins  Hæstiréttur segir að beinn eignarréttur að jörðinni teljist enn vera hjá dánarbúi afa ábúandans  Skiptum er enn ólokið 47 árum eftir lát eigandans www.mats.is Elliðavatn Mikið hefur verið byggt upp í landi Kópavogs á Vatnsenda síðustu ár. Steinagerði 12 ∙ 108 RVK Einstakt og fallegt fjögurra herbergja einbýlishús á kyrrlátum stað í botnlangagötu í hinu vinsæla Smáíbúðahverfi. Húsið hefur verið gert upp og endurnýjað að innan sem utan á síðustu árum. Lóðin er um 500 fm og gefur auðveldlega möguleika á stækkun húss og byggingu bílskúrs. Allar nánari uppl. veitir Heimir í s. 822-3600 Opið hús sunnudaginn 5. maí kl. 17:30-18:00 39,7 Heimir Bergmann Sölufulltrúi 822-3600 Kristján Ólafsson hdl. Lögg. fasteignasali 414-4488 Höfuðborg fasteignasala ∙ Hlíðasmára 2, 6. hæð ∙ 414-4488 Málaferli um jörðina Vatnsenda hafa stað- ið frá því Sigurður Hjaltested lést, árið 1966. Skiptastjóri afhenti Magnúsi syni hans umráð og afnot jarðarinnar 1968 með vís- an til erfðaskrár. Seinni kona Sigurðar, Margrét Guðmundsdóttir Hjaltested, og tveir synir þeirra hjóna, Sigurður Kristján og Karl Lárus, skutu málinu til Hæsta- réttar. Margrét bjó á jörðinni eftir andlát manns síns en sama dag og Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu skiptaráðanda var kveðinn upp dómur þar sem staðfestur var úrskurður um að Margrét yrði borin út af jörðinni. Útburðargerðin fór fram 22. júlí 1969 og Magnús tók við umráðum jarðarinnar. Karl Lárus kveðst líta svo á að þau hafi nú unnið fullnaðarsigur og nú þyrfti að skila eignunum. Borin út af eigninni 1969 MÁLAFERLI Í ÁRATUGI Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, notaði gærdaginn til að skoða töl- fræði og tækifæri og hitti hvorki Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, né Katrínu Jakobsdóttur, formann Vg, líkt og sumir fjölmiðlar höfðu greint frá. Sigmundur Davíð greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. „Fréttatímar dagsins hafa komið mér á óvart. Samkvæmt þeim hef ég fundað með bæði Bjarna Benedikts- syni og Katrínu Jakobsdóttur í dag. Hef þó hitt hvorugt. Dagurinn hefur farið í að skoða tölfræði og tæki- færi. Það var uppörvandi vinna. Vonandi hafa aðrir líka átt jákvæð- an dag,“ ritaði Sigmundur í gær. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði áður borið fregnir um viðræður til baka á Facebook-síðu sinni. Fór yfir tölfræði og skoðaði tækifæri  Ræddi ekki við formenn flokka Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Bjarni Benediktsson Lið Fjarðabyggðar bar sigur úr býtum í úrslitaviðureign Útsvars- ins, spurningakeppni sveitarfélag- anna sem hefur verið á dagskrá Ríkissjónvarpsins í vetur. Lið Fjarðabyggðar atti kappi við lið Reykjavíkur í úrslitaviðureigninni sem fram fór í gærkvöldi. Keppnin var jöfn framan af en þegar leið á dró í sundur milli liðanna og Aust- firðingar tóku öll völd og sigruðu að lokum með 98 stigum gegn 56 stigum Reykvíkinga. Fjarðabyggð vann Reykvíkinga í úrslit- um Útsvarsins Spurningakeppni Lið Fjarðabyggðar er sigurvegari í Útsvari þennan veturinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.