Morgunblaðið - 04.05.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
F
ít
o
n
/S
ÍA
Ert þú að fara að
taka skóna af hillunni?
Viðhorf
Hvernig má halda líkama og sál í góðu standi?
Hvað hentar hverjum og einum best sem áhugamál?
Hvað gerist þegar maður hittir ekki vinnufélagana á
hverjum degi?
Réttindi
Hvaða réttindi fylgja eftirlaunum?
Hvaða tilboð og afslættir standa til boða?
Heilsa
Hvernig á að haga mataræði?
Hvað er heilbrigður lífsstíll?
Hverjar eru orsakir helstu kvilla?
VR býður upp á námskeið fyrir þá sem eru
hættir að vinna til að aðstoða við nýjar
áskoranir í lífinu.
Umsjónarmaður er Ásgeir Jónsson, stofnandi
Takmarkalauss lífs, ásamt gestafyrirlesurum.
Námskeiðið er þrír dagar, 27.–29. maí,
frá 13:00–16:00 í Húsi verslunarinnar.
Skráning er í þjónustuveri VR 510 1700
eða í tölvupósti vr@vr.is.
Félagsmenn á landsbyggðinni geta tekið
þátt á fjarfundum.
Tekið verður á ýmsum málefnum:
VR félögum að kostnaðarlausu
Takmarkaður fjöldi þátttakenda
Námskeið fyrir þá sem
hafa náð, eða eru að
nálgast eftirlaunaaldur
Andrés Skúlason
Djúpavogi
Tvær ungar frænkur á Djúpavogi,
þær Hekla Pálmadóttir og Jónína
Valtingojer, efndu um síðustu helgi
til tombólu þar sem seldur var ýmis
varningur. Afraksturinn af tomból-
unni sem var 13.500 krónur, vildu
þær frænkur að rynni óskertur til
endurbyggingar á gömlu kirkjunni
á Djúpavogi sem stendur yfir.
Frænkurnar tvær mættu svo gal-
vaskar og stoltar að lokinni tomból-
unni með sjóðinn í gömlu kirkjuna
þar sem söfnunarbaukur er uppi og
settu peninginn í hann í viðurvist
ljósmyndara og gjaldkera Hollvina-
samtaka kirkjunnar sem þakkaði
þessum duglegu stúlkum að sjálf-
sögðu fyrir stuðninginn.
Héldu
tombólu til
stuðnings
kirkjunni
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Frænkur Framlagið sett í söfnunar-
baukinn í gömlu kirkjunni.
Kópavogsdagar, menningardagar
Kópavogsbæjar, hefjast í dag
klukkan 10 með kórsöng í Sundlaug
Kópavogs. Þar syngur Samkór
Kópavogs undir stjórn Skarphéðins
Þórs Hjartarsonar. Kórinn mun síð-
an syngja fyrir sundlaugargesti
Salalaugar í Kópavogi klukkutíma
síðar.
Kópavogsdagar eru nú haldnir í
tíunda sinn en þeir standa til 11.
maí. Fram kemur í tilkynningu frá
Kópavogsbæ, að markmið Kópa-
vogsdaga sé að gefa bæjarbúum
færi á að njóta þess sem bærinn
hafi upp á að bjóða í menningu og
listum á eins konar uppskeruhátíð.
Ormadagar
Svokallaðir Ormadagar, menn-
ingardagskrá fyrir yngstu kynslóð-
ina, verða á menningartorfunni,
m.a. í Bókasafni Kópavogs og í
Náttúrufræðistofu Kópavogs, en
eldri borgarar halda líka hátíð í fé-
lagsmiðstöð sinni Gjábakka sem
fagnar 20 ára afmæli um þessar
mundir. Handverkssýningar eldri
borgara verða í Gjábakka, Gull-
smára og í Boðanum um helgina.
Barnatónleikar undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur verða í Salnum
og fræðsluganga um Hamraborg-
arsvæðið. Einnig verða myndlistar-
sýningar á vegum Myndlistarfélags
Kópavogs.
Kópavogsdagar hefjast í dag
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kópavogur Menningarhátíð Kópavogs hefst um helgina og stendur í viku.
Menningarhátíð Kópavogs í tíunda skipti Samkór
Kópavogs syngur fyrir gesti í sundlaugum bæjarins í dag
Hin árlega fjöl-
skylduhátíð Frí-
kirkjunnar í
Hafnarfirði, sem
fagnar 100 ára af-
mæli sínu í ár,
verður haldin í
Kaldárseli sunnu-
daginn 5. maí og
hefst kl. 11. Frí-
kirkjubandið
stjórnar
skemmtidagskrá, boðið verður upp á
pylsur fyrir börnin en fullorðnir
njóta veitinga af hlaðborði gegn
vægu gjaldi. Rúta leggur af stað í
Kaldársel frá kirkjunni kl. 10:30.
Næstkomandi miðvikudag, 8. maí
kl. 20, verða síðan haldnir í kirkjunni
vortónleikar kirkjukórsins þar sem
Fríkirkjubandið leikur einnig.
„Hefur tónlistarstarf kirkjunnar,
síðustu árin undir dyggri stjórn
Arnar Arnarsonar, notið mikilla vin-
sælda og verið einn af máttarstólp-
unum í farsælu safnaðarstarfi. Verð-
ur því enginn svikinn af því að tylla
sér niður í 100 ára gamalli timbur-
kirkjunni og njóta tónlistarinnar,“
segir m.a. í fréttatilkynningu.
Hátíð í Kald-
árseli og
kórtónleikar
Fríkirkjan í Hafn-
arfirði 100 ára.