Morgunblaðið - 04.05.2013, Page 22

Morgunblaðið - 04.05.2013, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013 Í Seltjarnarneskirkju á sunnudag verður sérstök dagskrá helguð minningu Bjarna Pálssonar, fyrsta landlæknisins, og Björns Jónssonar lyfsala. Klukkan 10 mun Jóhanna Þ. Guð- mundsdóttir sagnfræðingur flytja fyrirlestur í Norðursal Seltjarnar- neskirkju er heitir: Eplatré og fleiri nytjajurtir í garði Björns apótekara í Nesi við Seltjörn. Kl. 11 hefst guðsþjónusta og sunnudagaskóli í kirkjunni þar sem Lilja Sigrún Jónsdóttir, læknir og verkefnisstjóri hjá embætti land- læknis, mun m.a. flytja hugleið- ingu. Í fordyri kirkjunnar verða sýnd- ar myndir af lækningajurtum og tækjum og áhöldum til lyfjagerðar. Í tilefni dagsins verður Lyfja- fræðisafnið í Nesi opið frá klukkan 13 til 14. Lyfjajurtir Í garði Lyfjafræðisafnsins í Nesi. Frumkvöðla minnst í Seltjarnarneskirkju Hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Child- ren á Íslandi og hjólreiðakeppn- innar Wow Cyc- lothon hófst í gær og stendur til 3. júní. Þetta er í ann- að sinn sem stað- ið er fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga. Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Gámaþjón- ustunnar, Hringrásar og Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Þau verða gerð upp og eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Barnaheill með hjólasöfnun Hluti hjólanna sem hafa safnast. Bandaríski rithöfundurinn og um- hverfissinninn Bill McKibben held- ur fyrirlestur í Háskólabíói sunnu- daginn 5. maí klukkan 12:30. Heimsókn McKibbens hingað til lands er á vegum Landverndar, Norræna hússins og námsbrautar í umhverfis- og auðlindafræði. Bill McKibben er einn stofnenda alþjóðlegu grasrótarhreyfingar- innar 350.org, sem berst fyrir því að verja jörðina fyrir hlýnun and- rúmslofts. Fyrirlestur um umhverfismál STUTT Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland Eitt best geymda leyndarmálið á markaðnum Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tísku- fyrirsætum og förðunarfræðingum um allan heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir þurra og viðkvæma húð og kemur jafnvægi á húðina. Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan. Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá, Morgunfrú og Rósmarín, gott krem fyrir alla fjölskylduna – Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is Þú kaupir Weleda vörur í heilsuverslunum og apótekum um allt land VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það sem gerðist auðvitað var að hugmyndafræðin breyttist. Hér á Ís- landi stóð markaðskapítalismi frá 1991 til 2004 þar sem reynt var að opna hagkerfið og auka samkeppni. Síðan tók fámenn klíka auðjöfra völdin 2004 til 2008 og við það fórum við úr markaðskapítalisma í klíku- kapítalisma. Þá kunnu menn sér ekki hóf og það getur verið að sú hug- myndafræði hafi valdið einhverju en ég held nú samt að ástæður banka- hrunsins séu aðallega kerfislægar,“ segir Hannes Hólmsteinn Giss- urarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um orsakir hruns. Hannes Hólmsteinn var meðal þátttakenda í málstofu við Háskól- ann á Bifröst í gær um bankahrunið og stjórnmálaafleiðingar þess, ásamt prófessorunum Ólafi Þ. Harðarsyni og Hermanni Schmitt og stjórnmála- fræðingunum Evu Heiðu Önnudótt- ur og Eiríki Bergmann. Kerfisáhættan meginorsökin Hannes lýsir erindi sínu svo: „Ég talaði fyrst um orsakir fjár- málakreppunnar í heiminum og nefndi þar nokkrar orsakir. Und- irliggjandi meginorsökin er auðvitað kerfisáhætta sem var tilkomin af því að bankarnir tóku of mikla áhættu – þeir hirtu gróðann en báru ekki tap- ið. Það er viðtekin skoðun í heim- inum að þetta sé undirliggjandi meginorsök fjármálakreppunnar. Það sem síðan hratt þessari at- burðarás af stað voru auðvitað undir- málslánin í Bandaríkjunum, lág- vaxtastefna bandaríska seðla- bankans og lánsfjárbólan, sem hlaut að springa fyrr eða síðar. Hún sprakk óvænt, getum við sagt. Síðan má nefna Basel-reglurnar sem stuðla líka að áhættusækni banka,“ segir Hannes Hólmsteinn og vísar þar til þess að slakað var á kröfum um eiginfjárhlutfall banka. „Þetta var mín skýring á fjár- málakreppunni í heiminum. Síðan vék ég að íslensku fjármálakrepp- unni og fór þar yfir frásögn Ja-Hoon Chang [dósents í hagfræði við Cam- bridge-háskóla] í bókinni 23 atriði um kapítalisma sem komið hefur út á íslensku og greinarskrif Roberts Wades [prófessors í stjórnmála- hagfræði við London School of Economics] sem skrifað hefur nokkrar greinar í The Left Review, Monde diplomatique og Huffington Post. Þetta er sama greinin í stórum dráttum. Ég leiðrétti ýmsar villur hjá Wade. Hann heldur því til dæmis fram að Seðlabanki Íslands hafi farið að fylgja fastgengisstefnu 7. október 2008 í miðju hruninu. Og að síðan hafi þetta gengi verið notað til að hygla vildarvinum Davíðs Odds- sonar. Málið er allt annars eðlis. Seðlabankinn gerði kauptilboð til þess að reyna að hrinda af stað gjald- eyrisviðskiptum en þau höfðu legið niðri í tvo daga af því að bankarnir voru að hrynja. Það voru bankarnir sjálfir sem keyptu sex milljónir evra af gjaldeyri. Það var nú allt og sumt. Féð fór ekki til neinna vildarvina heldur í nauðsynlegar greiðslur úr landi, nokkuð sem bankarnir sáu vel. Þannig að þetta er röng frásögn hjá Robert Wade. Þá gætir margvís- legrar ónákvæmni hjá honum sem ég eyddi nokkru púðri í að ræða.“ Engin frjálshyggjutilraun hér Hannes Hólmsteinn víkur svo að Ja-Hoon Chang. „Svo ræddi ég líka þessa skýringu Jangs að hér hafi verið svo mikil frjálshyggjutilraun. Sannleikurinn er sá að regluverkið í fjármálaheiminum á Íslandi var ná- kvæmlega það sama og regluverkið annars staðar. Þannig að það getur ekki verið skýringin að regluverkið hafi verið losaralegra eða kapítalism- inn á Íslandi lausbeislaðri. Þannig að skýringin á fjármála- hruninu á Íslandi er hvorki einhver stórkostleg mistök Seðlabankans, líkt og Robert Wade telur, eða laus- legra regluverk, heldur eru orsak- irnar fyrir því hversu illa þetta hitti Íslendinga einkum þær að hér kom líka til aukakerfisáhætta. Þá sögu þekkja allir. Fámenn klíka fékk mest af lánunum sem duldust á bak við margar kennitölur og fyrirtæki. Þessi klíka hafði mikil ítök í bönk- unum, auðjöfrarnir, Jón Ásgeir Jó- hannesson og félagar. Hér var búin til bóla sem ekkert var á bak við. Síðan má ekki gleyma því að Bret- ar áttu sinn þátt í að fella íslensku bankana með hinum ofstopafullu neyðarlögum. Ég fór yfir það hvað það tapaðist mikið fé á þessu. Ég nefndi hvernig aðilar í Noregi og Svíþjóð hirtu eignir bankanna langt undir markaðsverði eftir hrun- ið. Til dæmis var Glitnir í Noregi seldur fyrir 300 milljónir norskra króna, en hafði verið keyptur á 3,1 milljarð ári áður og var metinn á um tvo milljarða, þegar hann var seld- ur,“ segir Hannes og heldur áfram. „Ein af skýringunum sem gefnar hafa verið á bankahruninu íslenska er sú að íslensku bankamennirnir hafi verið vitgrennri eða áhættu- sæknari en bankamenn annars stað- ar. Það flytur aðeins skýringuna um einn reit, enda fengu þeir lán frá er- lendum bönkum. Það voru því þeir sem lánuðu íslensku bönkunum sem voru áhættusæknir og vitgrannir. Ef horft er á atburðarásina í heild sést að bankar um allan heim hegðuðu sér á svipaðan hátt. Enginn þeirra var neinn engill. Ég hafna líka þeirri skýringu að hér hafi verið önnur út- færsla á kapítalisma en annars stað- ar. Það eru enda ekki til nein gögn um það. Á Íslandi var sama reglu- verk um fjármálakerfið og alls stað- ar annars staðar í Evrópu. Þetta var allt samræmt um leið og við gengum í Evrópska efnahagssvæðið. En auðvitað var kerfisvillan sú að á sama tíma var leyfilegt rekstr- arsvæði bankanna öll Evrópa, allt Evrópska efnahagssvæðið, en bak- tryggingarsvæði þeirra Ísland eitt. Það skapaði stórkostlega áhættu. Það gerði sér enginn grein fyrir því enda hafði ekki verið gert áhlaup á banka áratugum saman. Það var kerfisvillan,“ segir Hannes Hólm- steinn. Klíkukapítalismi orsakaði hrun  Prófessor greinir orsakir bankahrunsins haustið 2008  Fámenn klíka hafi stórlega aukið kerfis- áhættu í bankakerfinu  Hafnar skýringum erlendra fræðimanna á hruninu  Dýrkeypt skref Breta Ljósmynd/Ívar Örn Þráinsson Prófessor Hannes Hólmsteinn flytur erindi við Háskólann á Bifröst. „Það er mjög at- hyglisverð spurn- ing sem ég hafði ekki tíma til að fara yfir í fyrir- lestrinum hvort við hefðum getað bjargað banka- kerfinu. Við hefð- um hugsanlega getað bjargað því ef við hefðum fengið svipaða fyr- irgreiðslu frá bandaríska seðla- bankanum og Danir og Svíar fengu. Við megum ekki gleyma því að Den Danske Banke hefði fallið ef hann hefði ekki fengið aðstoð frá danska ríkinu, sem var sótt í fyrirgreiðslu banda- ríska seðlabankans. Ef okkur hefði tekist að bjarga banka- kerfinu hefðu auðvitað orðið að verða eigendaskipti að bönk- unum,“ segir Hannes sem telur að ekki séu öll kurl komin til grafar í Icesave-deilunni. „Það er augljóst mál að það hefur verið einhver fjandskapur í garð íslensku bankanna í Evr- ópu og sá fjandskapar er m.a. tilkominn af því að aðrir við- skiptabankar sáu þarna harð- skeytta keppinauta sem gátu boðið hærri vexti vegna þess að rekstrarkostnaður var svo lítill á þessum innlánsreikningum, Edge-reikningunum og Icesave- reikningunum,“ segir Hannes sem nefnir einnig hvernig þess- ir háu vextir hafi gengið gegn lágvaxtastefnu seðlabanka í Evrópu. Bjarga hefði mátt banka- kerfinu HORFT TIL BAKA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.