Morgunblaðið - 04.05.2013, Side 34

Morgunblaðið - 04.05.2013, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013 ✝ Ingunn HeraÁrmannsdóttir fæddist 12. mars 1966. Hún lést á Landspítalanum 26. apríl 2013. Hún var dóttir hjónanna Ár-manns Guðmundssonar (látinn) og Guð- finnu Sigurbjörns- dóttur. Systk-ini Heru eru Inga Sig- ríður (látin), Guðmundur Ísleif- ur, Magnús Sigurbjörn, Gutt- ormur, Gunnar Þór, Védís Harpa og Jóna Sigríður. Hera var yngst í þessum hópi. Hún ólst upp á Egilsstöðum og í Fljótshlíð. Hera fór 15 ára til Hornafjarðar til að vinna í fiski. ann. Hera æfði meðValsliðinu í knattspyrnu. Varð hún með þeim Íslands- og bikarmeistari í nokkur skipti. Síðar tók hún að sér þjálfun yngri flokka hjá knattspyrnudeild Þróttar, síðar Fram. Á þeim tíma hafði hún einnig fært sig um set og spilaði með meistaraflokki Þróttar. Ár- ið 2004 fluttu þau hjón aftur til Egilsstaða. Á Egilsstöðum tók hún við stöðu aðstoðarskóla- stjóra á Tjarnarlandi. Hera lauk sínum knattspyrnuferli með Hetti, þá 43 ára gömul. Hún hafði alla tíð mikla ánægju af því að vinna með börnum og undi sér best í kringum þau. Síðustu árin starfaði hún sem aðstoð- arleikskólastjóri á Skógarlandi. Hera var alla tíð virk í íþrótta- starfi, s.s hestamennsku, skíð- um, handbolta, fótbolta og blaki. Útför Heru fer fram frá Digraneskirkju í dag, 4 maí 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Minningarathöfn verður í Eg- ilsstaðakirkju 9. maí 2013 kl. 11. Síðar fór hún til náms í Hússtjórn- arskólanum í Reykjavík. Sama ár kynntist hún eft- irlifandi eigin- manni sínum, Jóni Grétari. Þau eign- uðust þrjú börn, Margréti Irmu, f. 1988, Sigurð Atla, f. 1993, og Lúkas Nóa, f. 2004. Hera lauk námi frá Fóstur- skólanum og að því loknu hóf hún störf á leikskólum borg- arinnar. Hera starfaði einnig sem dagmóðir í nokkur ár. Síðar söðlaði hún svo um og hóf nám í Margmiðlunarskólanum og fékk í framhaldi af því vinnu við skól- Elsku Hera mín. Þá er komið að því sem ég hef óttast mest, að ég þyrfti að kveðja þig. Áralangri baráttu þinni við krabbameinið er lokið. Þessi leikur hefur verið flautaður af! Margs er að minnast og af mörgu er að taka. Líf okkar hef- ur verið undirlagt af íþróttum og þegar við vorum ungar og sprækar var það fótboltinn sem átti hug okkar allan og margir titlar til vitnis um það. Síðar urð- um við bara sprækar og þá var það blakið sem heillaði okkur. Almenn útivera og útivist var heldur aldrei langt undan. Allt frá því að við vorum smá- títlur höfum við stundað fjöl- margar íþróttir saman sem svo varð til þess að náin tengsl og kærleikur okkar á milli efldist með hverju ári. Við smullum svo saman sem ein manneskja þegar þú varst fimmtán ára og ég tví- tug og við fórum saman í verbúð til Hornafjarðar að vinna í fiski. Best þótti mér að vera með þér í liði, því barátta þín var alltaf til staðar og jú „það var alltaf sætt að sigra“. En við tókumst nú líka á sem andstæðingar og áttum báðar frekar erfitt með að tapa, enda miklar keppnismanneskjur. Enginn var flinkari en þú í höndunum. Allt sem þú gerðir var snilldarvel gert. Um leið og ég kveð þig, kæra systir, þá óska ég þér velfarn- aðar í nýjum heimkynnum. Þú fórst allt of fljótt en ég veit að pabbi og Inga Sigga systir taka vel á móti þér. Elsku Jón, Irma, Siggi, Lúk- as, mamma og aðrir aðstandend- ur, megi guð styrkja okkur öll í sorginni. Þín systir, Védís. Lítil, ljós yfirlitum, freknótt sjö ára snót. Hún sat í miðri stof- unni og horfði til mín stórum augum, kannski pínulítið smeyk við kennara eins og kennarinn var pínulítið smeykur við hópinn. Svona man ég fyrst eftir minni elskulegu mágkonu. Hún var yngst í stórum og fjörugum systkinahópi og hafði örugglega lært snemma að standa fyrir sínu. Hún var einstaklega vel gerð manneskja, réttsýn, hrein- skilin og síðast en ekki síst skemmtileg. Það liðu tíu ár frá því að litla stúlkan var nemandi minn á Eg- ilsstöðum, þangað til hún birtist heima hjá mér með honum Jóni Grétari og var kynnt sem kær- astan hans. Það var gæfa í lífi okkar allra, hún var virkilega góð viðbót við fjölskylduna. Hera varð vinur okkar og hún varð líka vinur pabba og mömmu og sinnti vel um þau bönd. Eins og allir vita sem þekktu Heru var hún mikill íþróttamað- ur og frábær þjálfari. Reyndar kynntist ég betur öðrum hliðum hennar. Hinni skapandi og frjóu handverkskonu. Ég kynntist því líka hversu vel hún náði til barna og hvað hún gat töfrað fram með þeim. Í raun og veru var ég hálf- svekkt yfir því að Hera færi ekki í kennslu í grunnskóla, hún starf- aði stuttan tíma við Álftamýrar- skóla og það fór ekki á milli mála að þar var listamaður við störf. En auðvitað kynntumst við best fjölskyldukonunni. Ein- hvern veginn fannst okkur að þau Jón væru alltaf að leika sér saman og þeim tókst að hrífa börnin sín með í leikinn. Það var æfing hér og æfing þar og allir mættu alls staðar. Þau voru dug- leg að ferðast og ein af okkar dýrmætu minningum er ferð sem við Stebbi, mamma, Jón, Hera og Lúkas fórum saman sl. haust. Þar kom virkilega í ljós hversu Hera var hörð af sér. Hún var fárveik allan tímann en hún naut þess að vera með okkur öllum en þó sérstaklega Lúkasi í leik og söng. Það var líka ein- stakt hvað hún var góð við mömmu og fékk hana með í sönginn. Við höfum átt dýrmæt- ar stundir saman í vetur og fyrir þær erum við þakklát, hún með prjónana sína, alltaf til í spjall og skemmtilegar samræður þó hún væri oft illa haldin. Við í Ljósalandinu söknum hennar öll og segjum eins og hún Andrea okkar sagði í bréfi til Lúkasar: „Hún var alltaf svo góð.“ Elsku Jón Grétar, Irma, Siggi og Lúkas, sá sem hefur átt mik- ið, missir mikið. Við munum allt- af vera til staðar fyrir ykkur. Þórunn, Stefán og fjölskylda. Það er með mikilli sorg í hjarta, en þó með þakklæti, sem við drepum niður penna í dag. Sorg vegna þess að Hera er dáin, en þakklæti fyrir að hafa þekkt hana. Hera er dáin eftir áralangt stríð við krabbamein, sem hún þó vann bug á nokkrum sinnum á leiðinni með óbilandi baráttu. Baráttu sem Hera var svo þekkt fyrir; leikurinn var aldrei búinn fyrr en dómarinn flautaði af, sem hann gerði því miður allt of snemma í lífi Heru. Hera kom að austan til liðs við okkur í Val sumarið 1986, en fyrir var Védís systir hennar sem hefur eflaust átt sinn þátt í því. Við sáum fljótt að þarna var kominn liðsmaður sem betra var að hafa með sér en móti, krafturinn og baráttan voru eiginleikar sem voru henni eðlislægir og smitandi. Saman unnum við marga Íslands- og bikarmeistaratitla fyrir Val. Hjá Þrótti Reykjavík og Fram vann Hera ötult starf við þjálfun og uppbyggingu yngri flokka kvenna, og á Egilsstöðum þjálf- aði hún einnig í mörg ár. Hera var dásamlegur húmoristi og húmorinn var til staðar allt þar til yfir lauk. Þeir voru margir frasarnir sem fuku innan vallar í hita leiksins og utan vallar á góð- um stundum. Hún tvinnaði sam- an orð sem við höfðum jafnvel aldrei heyrt og ekki öll til að hafa eftir! Það var margt brallað fyrir utan boltann og varla sú skemmtun að við Valsstelpur kæmum ekki fram með heima- tilbúið skemmtiatriði. Eitt slíkt rifjuðum við upp á dögunum þegar við áttum góða stund með Heru. Hera var ein leikenda í „Magga Scheving-atriðinu“, en hann var nýorðinn Norðurlanda- meistari í þolfimi. Mikið var haft fyrir því að finna sama lag og hann hafði notað í sínu atriði, búningurinn var sundbolur, ny- lonsokkabuxur, sundhetta og tá- tiljur. Hera skellihló þegar það rifjaðist upp fyrir henni að hafa mætt konu í stiganum sem fannst þetta atriði sko alls ekk- ert fyndið, en við vorum sann- færðar um að þetta væri flott- asta atriði sem nokkurn tímann hefði verið flutt á fjölum Vals- heimilisins! Hera var mikil blak- kona og þar lét hún einnig til sín taka utan vallar. Átti hún stóran þátt í að settur var upp strand- blaksvöllur á Egilsstöðum og kom að skipulagningu öldunga- móta. Hera var menntuð fóstra og elskaði að vinna með börnum bæði sem leikskólakennari og þjálfari. Hannyrðir og föndur lék í höndum hennar og fengu ný- bakaðar mæður í hópnum að njóta þeirra hæfileika í handunn- um gjöfum. Aldrei fór hún eftir uppskriftum, og mynstrin jafnan heimahönnuð. Stolt var hún af mynstri sem Lúkas Nói teiknaði og kallaði „tilfinningatröllin“. Það má með sanni segja að þau hafi spilað stórt hlutverk í hjört- um okkar síðustu daga, nú þegar við sjáum á bak okkar kæru Heru. Missir okkar er mikill, en mestur er þó missir Jóns og barnanna. Kæri Jón, Irma, Siggi, Lúkas Nói, Guðfinna, systkini og aðrir aðstandendur, við Valsstelpur sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um Heru mun lifa með okkur öllum. Valsstelpurnar, Arney, Bryndís (Biddý), Erna, Guðrún, Gunnhildur (Gönnsó), Kristín Briem, Margrét (Madda), Margrét (Magga Braga.), Ragnhildur Skúla., Ragnheiður Vík., Sigrún Norðfjörð, Sólrún, Kristín Arnþórs., Ingibjörg (Systa) og Védís. Öflugur liðsmaður blakdeildar Hattar er fallinn frá. Hera Ár- mannsdóttir var framsækinn blakari og ákafur baráttujaxl. Hún hafði mikinn metnað fyrir blakíþróttinni. Hún var ávallt reiðubúin og gaf félögum sínum ómælda vinnu, dugnað og bar- áttuvilja á meðan hún gat. Hún var einstaklega vinnusöm og ósérhlífin og hljóp í þau verk sem þurfti. Hera var formaður deildarinnar í nokkur ár, þjálfaði nýbyrjaða sem lengra komna blakara, dæmdi leiki og stjórnaði mótum. Ungliðastarf var mikil- vægt í huga Heru og til að efla það tók hún að sér að þjálfa börn og unglinga. Áhugi hennar á strandblaki smitaði út frá sér og ekki síst fyrir hennar tilstilli má á sumrin sjá Hattarfólk spila strandblak á tveimur völlum. Hera gerði miklar kröfur til sín sem blakara, mætti alltaf á æfingu ef hún gat og var í formi sem flest ungmenni væru stolt af. Hálfkák var ekki til í hennar huga. Hera var öflugur liðsfélagi sem hvatti til stórræða á vell- inum. Hún var fyrst og fremst keppnismanneskja og gaf aldrei tommu eftir. Ekkert lið var ósigrandi í hennar huga, barátta fylgdi hverju stigi og sigurviljinn var alltaf í fyrirrúmi. Með sama hugarfari mætti Hera sjúkdómi sínum. Þar dugði ekkert hálfkák, baráttuviljinn réð för og keppnisskapið skilaði henni mörgum stigum. Fram á síðustu stundu trúði hún á sigur sinn. Um leið og við þökkum Heru ómetanlegt framlag til blak- starfsins og góða samfylgd send- um við blakfélögum okkar Jóni Grétari og Sigga, Margréti Irmu og Lúkasi Nóa ásamt öðrum ást- vinum hennar innilegar samúð- arkveðjur. Minningin um ein- staka keppniskonu og góðan félaga lifir í blakhjörtum okkar. F.h. blakdeildar Hattar, Lovísa Hreinsdóttir, formaður. Ingunn Hera Ármannsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ingunni Heru Ármanns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is útfararstjóri útfararþjónusta Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson Frímann Andrésson útfararþjónusta Jón Bjarnason útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir uðmundur Baldvinsson útfararþjónusta G Þorsteinn Elíasson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GÍSLI SÖLVI JÓNSSON frá Sléttu, Fjarðarstræti 55, Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði að kvöldi sunnudagsins 28. apríl. Útför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 11. maí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Sigurvon á Ísafirði. Soffía Margrét Skarphéðinsdóttir, Skarphéðinn Gíslason, Eyrún Leifsdóttir, Sölvi Magnús Gíslason, Emilía Kanjanapron Gíslason, Steinvör Ingibjörg Gísladóttir,Stefán Sigurður Guðjónsson, Jón Finnbogi Gíslason, Erla Bryndís Kristjánsdóttir, Veigar Sigurður Gíslason, Suchada Dísa Gíslason, Njáll Flóki Gíslason, Magnea Ingibjörg Hafsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, HJALTI EINARSSON efnaverkfræðingur, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Strandvegi 11, Garðabæ, lést á Landspítala Landakoti miðvikudaginn 1. maí. Kveðjuathöfn fer fram í Vídalínskirkju í Garðabæ miðvikudaginn 8. maí kl. 15.00. Jarðsett verður frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 11. maí kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Orgelsjóð Hólskirkju í Bolungarvík, reikningsnúmer 1176-18-911908, kennitala 630169-5269. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Halldóra Jónsdóttir. ✝ MARGRÉT GUÐJÓNSDÓTTIR, Dalsmynni, andaðist í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalar- heimili Borgarnesi fimmtudaginn 2. maí. Útför hennar verður gerð frá Borgarneskirkju föstudaginn 10. maí kl. 13.00. Eygló Guðmundsdóttir, Guðmundur Reynir Guðmundsson, Ágúst G. Guðmundsson, Ástdís Guðmundsdóttir, Svava Svandís Guðmundsdóttir, Margrét S. Guðmundsdóttir, Svanur H. Guðmundsson, Kristján G. Guðmundsson, Tryggvi G. Guðmundsson, Sigrún H. Guðmundsdóttir, Skarphéðinn P. Guðmundsson og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS GEORGSDÓTTIR, Laugalæk 40, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold þriðjudaginn 30. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kolbrún B. Viggósdóttir, Jón S. Magnússon, Benóný B. Viggósson, Alda Björnsdóttir, Erla Gunnarsdóttir, Vilhelm M. Frederiksen, Guðný Gunnarsdóttir, Björn Jónsson, Guðríður H. Gunnarsdóttir, Bjarni Hákonarson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, VILHELMÍNA G. VALDIMARSDÓTTIR frá Seljatungu, andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn 1. maí. Útförin verður auglýst síðar. E. Gunnar Sigurðsson, Guðný V. Gunnarsdóttir, Sigrún S. Gunnarsdóttir, Jón Ásmundsson, Margrét Kr. Gunnarsdóttir, Gunnar Þ. Andersen, Laufey S. Gunnarsdóttir, Einar Gunnar Sigurðsson, Ingunn Svala Leifsdóttir, Richard Vilhelm Andersen, Andri, Ísak Logi og Dagur Orri Einarssynir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.