Morgunblaðið - 04.05.2013, Síða 36

Morgunblaðið - 04.05.2013, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2013 ✝ Henry Christi-an Mörköre fæddist í Klakksvík í Færeyjum 27. september 1939. Hann lést í Scott- sdale í Arizona 15. apríl 2013. Henry ólst upp í Klakksvík í skjóli móður sinnar og móðurfólks, af föð- ur sínum hafði hann lítt að segja. Á fermingaraldri réð hann sig á norskt flutningaskip og sigldi með því á vit ævintýra. Árið 1964 kemur hann í fyrsta sinn að Íslandsströndum, og er þegar kominn til Vest- mannaeyja, sem minnti hann mjög á ættland sitt. Í Vest- mannaeyjum kynntist hann eft- irlifandi eiginkonu sinni, Jóhönnu Pálsdóttur, þau giftu sig árið 1965. Saman eignuðust þau fimm börn: Þuríður, Birgir, Gunny Judit, Már Ývar og Henry, sem fæddur er í Dan- mörku. Útför Henrys fór fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 27. apríl 2013. Meira: mbl.is/minningar Henry Christian Mörköre ✝ BenjamínÞórðarson fæddist í Hergilsey á Breiðafirði 28. apríl 1927. Hann lést á Landspít- alanum 21. apríl 2013. Foreldrar hans voru hjónin Þor- björg Sigurð- ardóttir, f. á Brjánslæk í V- Barðastrandarsýslu 26. október 1899, d. 27. mars 1987 og Þórður Valgeir Benjamínsson, f. í Flatey á Breiðafirði 2. ágúst 1896, d. 10. nóvember 1985. Þau bjuggu lengst af í Hergilsey, Flatey og Stykkis- hólmi. Benjamín var sjötti 16 systkina, en hin voru: Valborg Elísabet, f. 1918, d. 2008, Sig- urður, f. 1920, d. 1975, Dag- björt Guðríður, f. 1921, Björg Jóhanna, f. 1923, Auður, f. 1925, Guðmundur Sigurður, f. 1928, d. 2004, Ari Guðmundur, f. 1929, Sigríður Hrefna, f. 1931, d. 1945, Jóhannes, f. Reynis Levisonar. Þau bjuggu í Hafnargötu 5 í Stykkishólmi til 1959 er þau fluttu til Reykja- víkur. Ári seinna fluttu þau til Hafnarfjarðar og bjuggu í Kelduhvammi 3 til 1972 er þau fluttu að Kotmúla í Fljótshlíð. Þau fluttu 1973 í Ólafsfjörð og til Akureyrar 1981 og bjuggu þar í Ásgarði 2. Þau fluttu síð- an aftur til Stykkishólms árið 1982, fyrst bjuggu þau á Skúla- götu 6, síðan Lágholti 2 og síð- ast í Tjarnarási 13. Benjamín lauk prófi frá Stýrimannaskól- anum 1953. Hann hafði þá áður verið nokkur ár til sjós, en hann var ætíð eftirsóttur í vinnu. Hann var stýrimaður á Baldri í Stykkishólmi fyrstu ár- in eftir útskrift, en flutti síðan til Hafnarfjarðar og vann við bátasmíðar í skipasmíðastöð- inni Bátalóni í Hafnarfirði í áratug og þótti sérlega laginn við að setja niður bátavélar. Frá 1972 störfuðu Benjamín og Bergþóra við trúboð á vegum Fíladelfíusafnaðarins. Síðustu starfsárin starfaði Benjamín í Skipavík í Stykkishólmi og aft- ur á Breiðafjarðarferjunni Baldri. Útför Benjamíns verður gerð frá Stykkishólmskirkju í dag, 4. maí 2013, og hefst athöfnin klukkan 14. 1932, d. 2010, Guð- brandur, f. 1933, Ásta Sigrún, f. 1937, Ingunn, f. 1939, Gunnar, f. 1940, d. 1940, Gunnar Þórbergur, f. 1942, d. 1969, og Sigurbjörg, f. 1945. Benjamín ólst upp í Hergil- sey og flutti 1946 með fjölskyldunni til Flateyjar. Benjamín kvæntist 29. ágúst 1953, Bergþóru Kristinsdóttur, f. á Akureyri 17. júní 1931, d. á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi 30. júní 2006. Foreldrar hennar voru hjónin Björg Magnea Sigurjónsdóttir frá Óslandi, f. 21. maí 1896, d. 23. júní 1975, og Kristinn Jó- hannesson, f. á Nolli í Grýtu- bakkahreppi í S-Þingeyjarsýslu 14. maí 1886, d. 27. október 1945. Benjamín og Bergþóra ætt- leiddu Björgu, f. 15. júní 1954, dóttur Önnu Bjarnadóttur og Í dag er komið að kveðju- stund, elsku afi minn. Nú þegar ég kveð þig, hlaðast minningarnar upp sem við átt- um saman í gegnum árin. Minn- ingar sem ég mun varðveita í hjarta mínu það sem eftir er. Það var alltaf svo gott og gaman að koma til ykkar ömmu í Hólm- inn á sumrin. Út í Flatey var líka gaman að fara. Þar var nóg að bralla fyrir svona prakkara eins og mig og Reyni. Elsku afi minn, það er mjög skrítið að koma í Hólminn. Eng- inn afi sem stendur á tröpp- unum og tekur brosandi á móti okkur tilbúinn með eitthvað gott í gogginn. Í dag kveð ég þig með mikl- um söknuði. Ég trúi því að við munum hittast á ný þegar minn tími kemur. Hvíldu í friði, elsku besti afi minn. Kveðja, Bergþóra Rós. Skjótt skipast veður í lofti. Benni, föðurbróðir minn, er lát- inn. Hann var sérstaklega glað- lyndur og ætíð reiðubúinn að rétta hjálparhönd ef mann van- hagaði um eitthvað. Fyrir tæpum sjö árum missti Benni eiginkonu sína Bergþóru. Þau voru samrýnd í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og yf- irleitt var aldrei minnst á annað þeirra án þess að nefna þau bæði. Það var mikil gleði þegar maður heimsótti þau og alltaf átti Bergþóra góðgæti sem hún vildi gauka að manni. Þegar Benni var ungur smíð- aði hann bát í Flatey með frænda okkar, Sigurjóni Árna- syni. Það mun hafa verið í lok árs 1951, en þá voru þeir 24 og 27 ára. Báturinn fékk nafnið Bjarmi og hefur fylgt fjölskyld- unni við nytjar í Hergilseyjar- löndum og ætíð verið mikil happafleyta. Benni bar miklar tilfinningar til bátsins. Því var það honum mikið gleðiefni fyrir nokkrum árum þegar við nokkrir frænd- urnir vildum gera Bjarma upp og helst færa sem flestar breyt- ingar til fyrra horfs. Þar sem við kunnum lítt til verka við að skipta um borð, bönd og saum fengum við hann til að leiðbeina okkur. Eitt sinn spurði ég hann hvort þetta væri ekki flókið. Þetta er nú minnsta málið, sagði Benni og hló. Hann fór með okk- ur í nokkrar vinnuferðir, alltaf léttur á fæti og í sinni. Það voru langir vinnudagar og hann dró ekkert af sér, en það var gaman, mikið spjallað og hlegið. Hann kenndi okkur öll handtök og undarlegustu nöfn á ýmsa hluti bátsins. Sum höfðum við heyrt áður, en önnur aldrei. Ég var farinn að hlakka til að skreppa með honum vestur í Flatey í vor til að vinna í Bjarma. Benni fer ekki fleiri ferðir með okkur, en verður þó örugglega áfram með okkur í verki. Um leið og ég kveð kæran frænda vil ég votta Björgu, Bergþóru og Reyni innilega samúð mína. Þórður Arason. Frændi minn og vinur okkar Benjamín Þórðarson er látinn. Benni kom úr sextán systkina hópi sem öll nema þrjú komust til fullorðinsára. Hann lagði fyrir sig sjómennsku og fór ungur til sjóróðra úr foreldrahúsum í Hergilsey. Haustið 1951 innrit- aðist hann í fiskimannadeild Stýrimannaskólans í Reykjavík og útskrifaðist frá skólanum vorið 1953 með „hið meira Benjamín Þórðarson ✝ Greta BjörgArelíusdóttir fæddist í Grinda- vík 11. febrúar 1935. Hún lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Blönduósi 24. apríl 2013. Foreldrar hennar voru Arelíus Sveinsson bifreið- arstjóri og Fanney Bjarnadóttir hús- móðir. Greta Björg var elst þriggja systra, en eftirlifandi eru Ardís Ólöf og Ruth Jó- hanna. Greta Björg giftist 22. maí Kristín Ingibjörg, f. 1980, Greta Björg, f. 1981 og Grím- ur Rúnar, f. 1992. 3) Sólveig, f. 5. júní 1965, gift Guðmundi Engilbertssyni, þeirra synir eru Þeyr, f. 1983, Kolbeinn Ali, f. 1988, Zophonías Tumi, f. 2001. Langömmubörnin eru 21 talsins. Greta Björg ólst upp í Grindavík og Reykjavík. Hún var við nám í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1951- 1952. Auk hefðbundinna hús- móðurstarfa vann hún á saumastofu Pólarprjóns hf. Stofnaði síðan saumastofuna Evu ásamt manni sínum. Seinni árin rak hún litla saumastofu á heimili sínu að Húnabraut 8. Greta Björg starfaði í Kvenfélaginu Vöku í mörg ár. Útför Gretu Bjargar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 4. maí 2013, kl. 14. 1953 Zophoníasi Zophoníassyni framkvæmda- stjóra, f. 24. febr- úar 1931, d. 21. apríl 2002, dætur þeirra eru: 1) Fanney, f. 15. mars 1953, gift Matthíasi L. Sig- ursteinssyni, þeirra börn eru Greta, f. 1968, Brigitta, f. 1971 og Guð- mundur Freyr, f. 1980. 2) Sig- rún, f. 12. febrúar 1957, gift Lárusi B. Jónssyni, þeirra börn eru Zophonías Ari, f. 1975, Eysteinn Pétur, f. 1978, Elsku amma. Við kveðjum þig í dag með miklum söknuði og þakklæti í huga. Minningarnar um yndislega ömmu eru ótalmargar og þá sér- staklega þær stundir sem við áttum á Húnabraut 8 en þangað var alltaf gaman og gott að koma. Allar þessar minningar eru okkur dýrmætar og munum við geyma þær í hjarta okkar um ókomna tíð. Síðustu árin hafa veikindi þín verið öllum erfið og vonum við að þér líði vel á þeim stað þar sem þú ert núna og vitum við að afi Dússi hefur tekið vel á móti þér. Við munum aldrei gleyma þér. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Zophonías Ari, Eysteinn Pét- ur, Kristín Ingibjörg, Greta Björg og Grímur Rúnar. Hver sem önd þín unir ei mun vetur þjaka. Vor og síblítt sumar sífellt hjá þér vaka. Ótal þúsund þakkir þigg – frá vinaheimi. Andvakan er enduð. Árroðinn þig geymi. (Jakobína Johnson) Nú að leiðarlokum á hún Greta mágkona mín „ótal þús- und þakkir“ skilið fyrir allt sem hún var mér öll árin sem leiðir okkar lágu saman. Hún var mér sem besta systir og ég mat hana mikils. Það sópaði að henni hvar sem hún fór sökum glæsileika og myndarskapar og heimili hennar og Dússa bróður míns á Húnabraut 8 bar smekk hennar og listfengi fagurt vitni og garð- urinn hennar Gretu var einn sá fallegasti í bænum. Dæturnar þrjár, Fanney, Sigrún og Sól- veig, ólust upp á þessu fallega heimili og þar voru barnabörnin ævinlega velkomin og mörg þau elstu áttu þar sitt fyrsta heimili í skjóli afa og ömmu. Greta var mikil hannyrðakona og þegar amstri við barnauppeldi lauk og konur almennt að fara út á vinnumarkaðinn á áttunda og ní- unda áratugnum fór hún að vinna við hönnun og framleiðslu á flíkum úr íslensku ullinni þeg- ar þau hjónin, bróðir minn og hún, voru í forsvari fyrir prjóna- og saumastofunni Pólarprjóni. Fyrirtæki sem á tímabili var annar stærsti vinnustaður hér í bænum. En á þeim árum var uppgang- ur hvað mestur í ullariðnaðinum í landinu. Þarna nýttust hæfi- leikar Gretu vel, vandvirknin og smekkvísin. Hún var vinsæl meðal vinnufélaganna, enda glaðsinna og félagslynd. Fátt er sárara en að sjá ást- vini sína hverfa inn í heim óminnis og missa allt samband Greta Björg Arelíusdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birt- ing dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Minningargreinar ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU ÞORLÁKSDÓTTUR frá Skálabrekku, Þingvallasveit, síðast til heimilis Víðivangi 1, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í Hafnarfirði og séra Sigríður Kristín Fríkirkjuprestur fyrir hlýju og alúð. Kristín Jóhanna Desmier, Glyn Albert Desmier, Steinþór Björgvinsson, Bryndís Gestsdóttir, Ægir Björgvinsson, Hrönn Sigurðardóttir, Björn Þ. Björgvinsson, Anna Björg Sigurbjörnsdóttir, Dóra Hrönn Björgvinsdóttir, Sigurður Einarsson, Alda Björgvinsdóttir, barnabörn og makar, langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs mannsins míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS GUNNARSSONAR nuddara, Byggðavegi 151, Akureyri. Sérstakar þakkir til organista og kórs Akureyrarkirkju. Sigríður Olgeirsdóttir, Birna Kristbjörg Björnsdóttir, Jóhann Þröstur Þórisson, Ragna Árný Björnsdóttir, Birgir Þór Ingólfsson, Áshildur Eygló Björnsdóttir, Björn Halldór Björnsson, Aðalheiður S. Jóhannesdóttir, Aðalheiður Hanna Björnsdóttir, Hallur Kristmundsson, Gestur Gunnar Björnsson, Helga Guðrún Pálsdóttir, Unnur Lovísa Steinþórsdóttir, Gissur Árdal Hauksson, Olgeir Steinþórsson, Steinþór Andri Steinþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur Sími 551 3485, svarað allan sólarhringinn. Vefsíða www.udo.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.