Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Síða 9
14.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
B
örnin á leikskólanum Garðaborg í
Fossvogi eru öll lítil ljóðskáld, en út
er komin bókin Núna er hann beina-
grind uppi í himninum. Í bókinni má
finna ljóð eftir börnin, en þau yngstu
eru aðeins tveggja ára. Eygló Ida Gunnarsdóttir
leikskólakennari stjórnaði gerð bókarinnar, en
hún gerði einmitt lokaverkefnið sitt í Kennarahá-
skólanum um ljóðagerð barna. „Ég hef áhuga á
ljóðum, og var að dútla við að leyfa þeim að
semja ljóð og þá stakk Kristín leikskólastjóri upp
á því að gefa út bók,“ segir Eygló um upphafið
að bókinni.
Ljóðagerð vanmetið listform
Eygló byrjaði á að fræða börnin um ljóð og út-
skýrði fyrir þeim að þau kæmu úr þeirra eigin
huga. Hún brýndi fyrir þeim að ljóðin ættu sér fá
takmörk og allt væri mögulegt, og það mætti al-
veg semja um það sem ætti sér ekki endilega
stoð í raunveruleikanum. Eygló telur að ljóðagerð
sé listform sem hefur setið í skugga af annarri
sköpunarvinnu í kennslu ungra barna, en með
ljóðum geta börnin skoðað eigin huga og sagt frá
því sem þeim liggur á hjarta.
Semja oft út frá reynslu sinni
Ragnhildur Sunna, fjögurra ára, samdi ljóð um
litla bróður sinn. „Hann heitir Dagur, alveg eins
og dagurinn uppi í himninum,“ segir hún, en ljóð-
ið var samið stuttu eftir að hann fæddist.
„Þetta ljóð hennar er gott dæmi um hvernig
þau vinna. Hún ákvað fyrst að hún ætlaði að
skrifa um bleikan lit og byrjaði að tala um nátt-
kjólinn sinn og þá fór hún að rifja upp. Og þá
kom ljóð um litla bróður,“ segir Eygló. „Einn
drengur, Kári, fór að tala um hundinn sinn, en
hann vildi yrkja um uppáhaldsdýrið sitt. Úr varð
fallegt ljóð frá innstu hjartarótum, en hundurinn
var þá dáinn. Ég hafði ekki hugmynd um að
hundurinn hans hefði dáið. Hann er með ljóðinu
að vinna sig í gegnum það,“ segir hún.
Þjálfar hugsun og orðaforða
Eygló segir börnin hafa skemmt sér vel yfir
ljóðagerðinni og hafi verið fljót að tileinka sér að
semja ljóð. Þau semja gjarnan um eitthvað sem
þau hafa upplifað eða langar til að upplifa. Eygló
segir þau alltaf gera titilinn síðast því þá viti þau
um hvað ljóðið fjallar. Hún bendir á að ljóðagerð
þjálfi bæði hugsun og orðaforða og auki ímynd-
unaraflið.
Eygló gengur gjarnan um með blað og penna,
því ljóðin geta vaknað hvar sem er, jafnt í rólu
sem á salerninu. „Skemmtilegt að heyra hvað þau
hafa að segja, þau hafa svo margt að segja!“ Hún
bætir við: „Þetta er tjáning, þetta er sköpun og
útrás,“ segir hún, en annað bindi ljóðabókar er í
bígerð og er Eygló nú þegar byrjuð að safna efni.
Eygló Ida Gunnarsdóttir, leikskólakennari, er hér umvafin ungum og hæfileikaríkum ljóðskáldum á leikskólanum Garðaborg í Fossvogi.
Morgunblaðið/Golli
LEIKSKÓLABÖRN GEFA ÚT LJÓÐABÓK
LJÓÐAGERÐ ER EINFALT OG
SKEMMTILEGT LISTFORM OG KOST-
AR EKKERT. BÖRNIN Á GARÐA-
BORG HAFA NÝLEGA GEFIÐ ÚT
LJÓÐABÓK ÞAR SEM ÞAU FÁ ÚTRÁS
FYRIR SKÖPUNARGLEÐI, TJÁNINGU
OG ÍMYNDUNARAFL.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
* „Hún ákvað fyrst að hún ætlaði aðskrifa um bleikan lit og
byrjaði að tala um nátt-
kjólinn sinn og þá fer hún
að rifja upp. Og þá kemur
ljóð um litla bróður.“
Núna er hann beinagrind
Fjórir fætur.
Svartur.
Einu sinni
var ég með hund.
Hann var svartur
með mörg hár
og með fætur.
Núna er hann beinagrind
uppi í himninum.
Núna er hann dáinn.
Greyið.
Hann langaði ekki
að vera dáinn.
Ljóð eftir
Kára Víðisson.
Morgunblaðið/Eggert
HUNDUR
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Borðplötur
í öllum stærðum og gerðum
• Swanstone
• Avonite
• Harðplast
• Límtré
Smíðað eftir máli
og þínum óskum