Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Síða 33
Morgunblaðið/Ómar
* „Matseld erlíka mikil-vægur þáttur í
bókunum um
Hannibal Lecter.
Það sagði ein-
mitt ýmislegt um
Lecter hvað
hann borðaði,“
segir Sindri.
Við borðið sitja frá vinstri: Oddný Gestsdóttir,
Sindri Þór Steingrímsson, Magnús Theodórsson,
Signý Friðriksdóttir, Sonja Huld Guðjónsdóttir,
Sindri Freysson, Auður Anna Kristjánsdóttir,
Héðinn Briem, Máni Sigfússon, Aldís Rún Ingólfsdóttir,
Hildur Þorsteinsdóttir og Steingrímur Elíasson.
14.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
SALAT
1 poki spínat 400 grömm
1 agúrka – skorin niður.
3 litlar lárperur (avocado) skornar
½ pera skorin í þunnar sneiðar
1 rauðrófa rifin
valhnetur dreifðar yfir eftir smekk
gráðaostur niðurskorinn yfir allt
DRESSING
Gróft sinnep ¼ á móti ¾ ólífuolía, dash af
balsamediki, salt og pipar og smá-hunang.
SUMARFERSK SKYRTERTA
MEÐ JARÐARBERJUM
Gott hafrakex, t.d. Haust, ½-1½ pakki eftir stærð
tertuformsins
Kexið er mulið niður.
1 dl smjörvi bræddur
Kexmylsnunni og brædda smjörinu er blandað saman og
þjappað vel ofan í form. Ferskum jarðarberjum er raðað
ofan á blönduna.
1 lítil dós hreint skyr
1 dós 18% sýrður rjómi
½ bolli sykur
1 tsk. vanilla
Þetta er hrært saman í hrærivél. Fjögur blöð matarlím lögð
í bleyti í köldu vatni í tíu mínútur. Síðan eru þau tekin upp
og undin lauslega. Matarlímið er þá sett í skál og hún látin
ofan á pott með sjóðandi vatni til að bræða það. Þegar
matarlímið er bráðnað er því hrært saman við kremið,
þetta látið bíða og stífna í smá stund og eftir það er sett í
kremið einn peli af þeyttum rjóma. Síðan er blandan smurð
ofan á botninn og skreytt með ferskum jarðarberjum. Gott
að geyma í kæli í nokkrar klst. áður en borið er fram.