Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.07.2013, Page 57
14.7. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Skáldsagan Demtantstorgið eftir Merce Rodoreda kom fyrst út árið 1962 í þýðingu Guðbergs Bergssonar og er nú endurútgefin í bókaflokknum Erlend klassík sem er á vegum Forlagsins. Hafi Forlagið þökk fyrir að huga að þýðingum og endurútgáfum á erlendri klass- ík! Hin unga Natalía hittir pilt á Demantstorginu í Barcelona. Þau verða ástfangin en svo skellur borgarastyrjöldin á og allt breytist. „Fegursta skáldsaga sem komið hefur út á Spáni síðan í borgarastyrjöldinni,“ sagði Gabriel Garcia Marquez. Guðbergur Bergsson ritar eftirmála. Ást í skugga styrjaldar Eins og kunnugt hefur Yrsa Sigurð- ardóttir fengið afar góða dóma í breska blaðinu Sunday Times fyrir skáldsögu sína Someone to Watch over Me eða Horfðu á mig eins og bókin heitir á ís- lensku. Blaðið bætir nú enn við hrósið því bókin er meðal þeirra hundrað bóka sem mælt er með sem bestu sumarlesningu árs- ins. Átta spennubækur komust þar á lista sem bestu spennubækurnar og það hlýtur að teljast nokkur sigur fyrir Yrsu að vera þar á meðal, en bók hennar er sögð vera áhrifa- mikil og hrífandi. Aðrir rithöfundar sem eiga bækur á lista yfir bestu spennusögur sumarsins eru Roger Hobbs, Philip Kerr, Charles Cumming, Antonin Varenne og Joyce Carol Oates. Einnig Joe Hill sem er sonur meistara hryll- ingsins, Stephens King og franski rithöf- undurinn Fred Vargas en Sunday Times valdi bók hans, The Ghost Riders of Ordebec, bestu spennusögu sumarsins. Sunday Times þreytist ekki á að bera lof á Yrsu Sigurðardóttur og bók hennar Horfðu á mig. MÆLT MEÐ YRSU Í SUMARFRÍIÐ Gengið hefur verið frá útgáfusamn- ingi um hina ástsælu barnabók – Ást- arsögu úr fjöllunum, við kínverskt forlag, Beijing Science and Techno- logy Press. Hugljúf saga Guðrúnar Helgadóttur og eftirminnilegar myndir Brians Pilkingtons munu án efa gleðja tröllaáhugafólk í Kína. Sagan kom fyrst úr hér á landi árið 1981 og veitir innsýn í heillandi heim íslenskra þjóðsagna og ævintýra. Sagan hefur þegar komið út í Nor- egi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum, Bandaríkjunum, Japan, Kóreu, Ítalíu, Eistlandi og Slóveníu. Annar góðvinur barnanna, Max- ímús Músíkús, er síðan á leið í lang- ferð alla leið til Brasilíu. Forlagið Mel- horamentos hefur tryggt sér útgáfuréttinn að þremur bókum um músina tónelsku, Maxímús heimsækir hljómsveit- ina, Maxímús trítlar í tónlistarskólann og Maxímús bjargar ballettinum. Maxímús heldur áfram að vera í slagtogi með Sinfóníuhljómsveit Íslands, nú síðast í vor smekkfylltu þau Kennedy-miðstöðina í Washington við frábæran orðstír. TRÖLL TIL KÍNA OG MÚS TIL BRASILÍU Ástarsaga úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur með myndskreytingum Brians Pilkingtons er á leið til Kína. Snillingurinn Arto Paasilinna er Íslendingum að góðu kunnur fyrir skáldsögurnar frábæru Ár hérans, Dýrðlegt fjöldasjálfs- morð og Maðurinn sem span- gólaði. Hann bregst ekki í Heimsins besti bær, sem er frá- bærlega skemmtileg bók, hug- myndarík og full af kaldhæðni. Í heiminum er órói og heimsstyrjöld brýst út en í litlum finnskum bæ eiga litríkir bæjarbúar meira en nóg með sitt. Finnskur snillingur í fínu formi Sænsk spenna, finnsk gæði og ástir í stríði NÝJAR BÆKUR BÓKAÚTGÁFAN ER MEÐ RÓLEGU MÓTI NÚ Í JÚLÍ EN ÞAÐ ER ÞÓ ÚR ÝMSU AÐ VELJA. SÆNSK SPENNUSAGA KOM NÝLEGA ÚT OG SPÆNSK SKÁLDSAGA HEFUR VERIÐ ENDURÚTGEFIN. FINNSK SKÁLDSAGA EFTIR FRÁBÆRAN HÖFUND ER SVO BÓK SEM MENN ÆTTU EKKI AÐ LÁTA FRAMHJÁ SÉR FARA. Dauðaengillinn er spennandi glæpa- saga eftir Söru Blædel og fimmta bók hennar sem kemur út á ís- lensku. Aldagömul og ómetanleg steinglersmynd hverfur. Um sama leyti vinnur Louise Rick að máli konu sem hverfur í sólarlandaferð. Önnur kona hverfur svo á sömu slóðum. Mál þessara kvenna og hvarf myndarinnar tengjast á óhugnanlegan hátt. Spennandi sænsk glæpasaga Markþjálfun – Vilji, vit og viska fjallar um markþjálfun á Íslandi og í alþjóðlegu umhverfi, nám í markþjálfun og aðferðir mark- þjálfa. Markþjálfun hefur notið mikillar hylli undanfarin ár og þessi bók nýtist stjórnendum, starfsmannastjórum, fræðslu- stjórum og starfsþróunarstjórum. Höfundar bókarinnar eru þrír: Matilda Gregersdotter, Arn- ór Már Másson og Haukur Ingi Jónasson. Bók um markþjálfun á Íslandi * Ég skildi að orð er á Íslandi til um allt,sem er hugsað á jörðu. Einar Benediktsson BÓKSALA 3.- 9. JÚLÍ Allar bækur Listinn er byggður á upplýsingum frá Eymundsson 1 Maður sem heitir Ove - kiljaFrederik Backman 2 Iceland small world-small ed.Sigurgeir Sigurjónsson 3 Áður en ég sofnaS.J.Watson 4 Lág Kolvetna lífstílinn LKLGunnar Már sigfússon 5 DauðaengilinnSara Blædel 6 Hún er horfinGillian Flynn 7 RósablaðaströndinDorothy Koomson 8 I Was hereKristján Ingi 9 Ærlegi lærlingurinnVikas Swarup 10 Ekki þessi týpaBjörg Magnúsdóttir Kiljur 1 Maður sem heitir OveFrederik Backman 2 Áður en ég sofnaS.J.Watson 3 DauðaengilinnSara Blædel 4 Hún er horfinGillian Flynn 5 RósablaðaströndinDorothy Koomson 6 Ærlegi lærlingurinnVikas Swarup 7 Ekki þessi týpaBjörg Magnúsdóttir 8 Heimsins besti bærArto Paasilinna 9 SnjókarlinnJo Nesbo 10 EnglasmiðurinnCamilla Lackberg MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Mennt er máttur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.