Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Síða 13
Morgunblaðið/Ásdís
finn ég þetta djúpa þakklæti, þakk-
læti fyrir að vera Íslendingur og
þakklæti gagnvart fólki,“ segir
Kidda.
Á laugardag ætlar hún að byrja
daginn á að hlusta á lag hátíð-
arinnar, „Ég er eins og ég er“, og
gráta svolítið yfir því af gleði. Síð-
an munu þær Ína ganga niður
Laugaveginn með börnin sín ásamt
öðrum hinsegin fjölskyldum. Svo
taka við skemmtanir og veisluhöld.
„Við endum svo í góðu lessupartíi
og svo fer ég að spila alla nóttina
en ég verð aðal DJ á Gay Pride
ballinu sem er á Rúbín í Öskju-
hlíð,“ segir Kidda og er mjög
spennt. „Það verður mikið stuð!“
Stolt að vera lesbía
Kidda segist aldrei hafa óskað sér
þess að hún væri gagnkynhneigð
og upplifir sig ekki öðruvísi en ann-
að fólk. „Í dag er ég bara svo stolt,
ég hef aldrei óskað að ég væri ekki
lesbía.“ Hún segir að samband
tveggja manneskja af sama kyni
þurfi ekkert að vera öðruvísi en hjá
konu og manni. „Ást er ekkert ann-
að en það að vilja deila lífi sínu og
hrifningu með einhverri manneskju
og það þarf ekki að vera svo flók-
ið,“ segir hún. „Stundum einblínir
fólk á kynlífið, en við erum að sjálf-
sögðu bara með sömu þrár og
væntingar og aðrir, við erum auð-
vitað bara öll manneskjur,“ segir
Kidda. Hún segist afar þakklát á
hverjum degi. „Ég veit líka af
bræðrum mínum og systrum úti í
heimi sem hafa ekki sömu tækifæri
og ég. Að stofna fjölskyldu til
dæmis. Maður getur ekki verið ein-
hver annar en maður er, þó maður
reyni kannski í byrjun. En svo
kemur að því að maður þarf að
horfast í augu við sjálfa sig og
segja bara, ég er svona!“
Kidda rokk með syni sína tvo, Ell-
ert Orra og Þóri Sólbjart.
* Þetta er svo merkilegt og fallegt.Skilaboðin eru bara, eins og í lag-inu, við erum bara eins og við erum.
Ég er svo þakklát fyrir hugarfar Íslend-
inga, sem koma svo niður í miðbæ og
sýna stuðninginn í verki, ég meina: það
koma stundum sextíu þúsund manns og
ekki eru þeir allir hinsegin.“
11.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
PAPPÍR • POKAR • RÚLLUR
Sérprentanir í minni eða stærri upplögum!
PAPPÍR HF • Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfirði • Sími 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is
Íslensk
framleiðsla