Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Qupperneq 27
Morgunblaðið/Rósa Braga
Hákon Hertervig arkitekt teiknaði húsið á
sínum tíma og þótti það mjög fram-
úrstefnulegt. Húsið var kallað „stælkompan“
af krökkunum í hverfinu.
I
nga Sigurjónsdóttir og Hörður Sigurð-
arson búa í einstaklega fallegu fjöl-
skylduhúsi sem má finna í Kópavogi og
var byggt í kringum 1960. Sjötti áratug-
urinn þykir sem betur fer mjög smart í
dag en þótti verulega hallærislegur stíll fyr-
ir um 25 árum síðan.
„Tengdaforeldrar mínir byggðu þetta hús
og börnin þeirra, maðurinn minn og mág-
kona mín sem ólust hér upp, búa bæði hér
í dag, enda húsið stórt og á tveimur hæð-
um. Það má því segja að þetta sé fjöl-
skylduhús, einskonar félagsbú. Hörður hefur
í rauninni ekki hleypt heimdraganum ennþá.
Ég flutti til hans fyrir langa löngu enda var
ekki um annað að ræða á þeim tíma þar
sem maðurinn er einstaklega heimakær. Það
var ekki átakalaust fyrir unga Reykjavík-
urmær að flytja í aðra sókn, sem mér
fannst vera langt upp í sveit,“ segir Inga
kímin.
Húsið er að mörgu leyti innréttað eins og
það var upphaflega enda vandað vel til
verks að sögn Ingu og því sá enginn ástæðu
til að breyta því. „Í þá daga henti fólk ekki
því sem entist og var í góðu lagi og þess
vegna eru allar þessar tekk-innréttingar og
húsgögn hér ennþá,“ segir Inga. Sveinn Kjarval arkitekt.
Fagurt félagsbú
INGA OG HÖRÐUR HAFA LITLU SEM ENGU
BREYTT Á HEIMILI SÍNU SEM VAR BYGGT Á
SJÖTTA ÁRATUGNUM. FORELDRAR HARÐ-
AR BYGGÐU ÞETTA STÓRA OG FALLEGA
HÚS SEM HÁKON HERTERVIG TEIKNAÐI OG
HÝSIR ÞAÐ NÚ TVÆR FJÖLSKYLDUR ENDA
NÓG PLÁSS.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
TEKK-TÍSKAN TÍMALAUS
11.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i O P I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 , l a u g a r d , 1 1 - 1 6 , s u n n u d . LO K AÐ E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
– fyrir lifandi heimili –
| BORÐSTOFUSTÓLAR | BORÐSTOFUBORÐ | SÓFABORÐ | LAMPAR | PÚÐAR | GLERVARAOG FALLEG SMÁVARA