Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.08.2013, Blaðsíða 59
11.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Hætti kjaftavaðall af enn einni samantekinni bók. (8) 9. Gull og liþíum gera þig að fífli. (4) 10. Ræð unglingi að búa til smán. (11) 11. Ung úr görmunum frá formæðrum. (5) 12. Freyðið vatn sem inniheldur skepnuna. (8) 13. Stjórni skass eitt yfir fjárhirslu. (10) 15. Flani margsinnis með enga fleirtölu. (3,3) 16. Kærasti Barbie er ennþá við ofninn hjá leiðbeinandanum. (9) 18. Felling inn á við er glæpur. (7) 19. Ílát bókar fyrir ungar sem eru góðir pennar. (12) 21. Fólk og arar eru fyrir flöskur af spritti. (7) 22. Drepa frosið vatn með skafli. (10) 23. Fljótur hefur sin í farveginum. (8) 26. Haus stoppar við aðalaðsetur. (12) 28. Með hrópi hlífðir í átökum. (7) 30. Leki á rafmagni er á útleið slagkrafts. (9) 31. Snurfusið S-nafnið á netinu. (7) 32. Heimskulegt eftir innstungu en samt gáfulegt. (12) 34. Draga lífverur að sér súrefni þrátt fyrir að vera ekki lifandi? (9) 35. Járn brúar tímabil. (7) LÓÐRÉTT 1. Sleikur við Dan á balli. (10) 2. Fer fúll á blaðamannafundinn. (8) 3. Fallið heimskauta nagdýr lendir hjá Hollendingi. (8) 4. Ha? Girðingar er sagðar gerðar af skáldum. (11) 5. Biðli til stigans á skrá. (8) 6. Sá sem þekkir spýtu er göldróttur (12) 7. Hæsta mastur hjá vönustum. (8) 8. Sá sem er hægt að borða þurrkar kassava. (10) 14. Næla Forngrikkja þvælist um í hópum glæpamanna. (15) 17. Gera meiri þögn með hávaða sem á ekki að vera. (9) 20. Einn enn þrisvar fær nema sem er enn með sjúkdómunum. (11) 21. Lendir pilluílát fyrir bergsnös út af líkamshluta sem er nokk- uð kringlóttur. (11) 24. Án auðs lendir maður næstum í þrælahaldi. (5) 25. Í allar áttir nema vestur hendir að gleggstum. (9) 26. Hraðir fá ekkert frá mögrum. (7) 27. Að útskýra hest fyrir telpu. (6) 29. Ávinningur snýst við við að innheimta. (5) 33. Glúrinn fær svefn. (3) Friðrik Ólafsson er í góðum fé-lagsskap á skákhátíð, „Pega-sus chess summit“, sem hefst í Dresden í Þýskalandi þann 16. ágúst nk. en ýmsar gamlar hetjur skákarinnar eru þar kall- aðar til og heiðraðar fyrir framlag sitt til skáklistarinnar og vekur þátttaka Boris Spasskí fyrrver- andi heimsmeistara mesta athygli. Nú er ár liðið frá því hann hann flutti óvænt og með leynd frá Frakklandi til Rússlands þar sem hann unir hag sínum vel þrátt fyr- ir fötlun í kjölfar heilablóðfalls. Spasskí mun væntanlega taka sæti í liði Rússa, sem teflir samráðas- kák við úrvalslið Þjóðverja með „lifandi taflmönnum“ frá „skák- bænum Stroeberg“. Viðureignin fer fram á torginu fyrir framan Frúarkirkjuna í Dreden. Hún var endurreist fyrir um 20 árum en var bókstaflega brædd niður í loft- árásum Bandamanna á síðustu dögum seinni heimsstyrjaldar. Friðrik tók þátt í þessari hátíð í fyrra og tefldi þá sýningarskák í gömlum kastala við gamla brýnið Wolfgang Uhlmann. Annar kappi sem flýgur yfir hafið til Dresden er bandaríski stórmeistarinn Willi- am Lombardy. Kannski er líka kominn tími til að endurreisa hinn skapheita og bænheita Bill Lomb- ardy í hugum vorum því sannleik- urinn er sá að hann átti ekki lítinn þátt í uppgangi Bobby Fischers á sjötta áratugnum, var aðstoð- armaður hans í Portoroz 5́8 og aft- ur í „einvígi aldarinnar“ 7́2. Lombardy vann ýmis mögnuð af- rek áður hann tók vígslu sem kaþ- ólskur prestur í byrjun sjöunda áratugarins; varð heimsmeistari unglinga árið 1957 með fullu húsi, hlaut 11 vinninga af 11 mögu- legum og á heimsmeistaramóti stúdenta í Leningrad árið 1960 leiddi hann bandarísku sveitina til sigurs með glæstum árangri á 1. borði, 12 vinningum af 13 mögu- legum. Það fór ekki vel í yfirvöld í Sovét og Spasskí var umsvifalaust settur út af sakramentinu, þurfti kannski á því að halda því frægð- arsól hans reis aldrei hærra en á árunum 1964-1970. Eftir að hafa „kastað hempunni“ skömmu eftir einvígið mikla í Reykjavík hóf Lombardy að tefla aftur og var í liði bandarísku sveitarinnar sem vann gullverðlaun á Ólympíu- mótinu í Haifa í Ísrael árið 1976. Hann tefldi á fjölmörgum mótum hér á landi á tímabilinu 1957-1986. En lítum á áðurnefnda skák við Spasskí. Leningrad 1960: Boris Spasskí – William Lomb- ardy Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 Rbd7 7. Bc4 Da5 8. Dd2 e6 9. O-O Miklu skarpara er að hrókera langt eins og Spasskí gerði í frægri vinningsskák gegn Tigran Petrosjan vorið 1969. 9. … Be7 10. a3 h6 11. Be3 Re5 12. Ba2 Dc7 13. De2 b5 14. f4 Reg4 15. h3 Rxe3 16. Dxe3 O-O 17. Hae1 Svartur hefur auðveldlega náð að jafna taflið og stendur heldur betur betur ef eitthvað er. 17. … e5 18. Rf5 Bxf5 19. exf5 ( Sjá stöðumynd) 19. … d5! Þennan einfalda leik hefði Spasskí átt að hafa séð fyrir, svartur hótar að leppa drottn- inguna með 20. …. Bc5. 20. Dxe5 Bd6 21. De2 Bxa3! 22. Rd1? Slakur leikur. Hvítur gat haldið jafnvægi með 22. rxd5 Rxd5 23. bxd5 Dc5+ 24. Kh2 Dxd5 25. bxa3 Dxf5 26. c4! o.s.frv. ) 22. … Hae8 23. Df3 Bc5+ 24. Kh1 Hxe1 25. Hxe1 Da5! Tvöfalt uppnám. Svartur stend- ur til vinnings. 26. Rc3 b4 27. Rxd5 Dxa2 28. Rxf6+ gxf6 29. Dc6 Dc4! – og hér má svara 30. Dxf6 með 30. … Dxf4 o.s.frv. Spasskí gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Friðrik til fundar við Spasskí og Lombardy í Dresden Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseð- ilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Kross- gáta Morgunblaðsins, Há- degismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 11. ágúst rennur út föstu- daginn 16. ágúst. Vinningshafi krossgát- unnar 4. ágúst sl. eru Ari og Ragnar Blöndal, Njálsgötu 39a, Reykjavík. Þeir hljóta í verðlaun bókina Ærlegi lærlingurinn eftir Vikas Swarup. JPV gefur út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.