Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 6

Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 6
6 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 D agblað það, sem hér byrjar starf sitt, á fyrst og fremst að vera áreiðanlegt, skemtilegt og lipurt ritað fréttablað,“ segir á forsíðu fyrsta tölublaðs Morgunblaðsins 2. nóvember 1913. „Reykjavíkurbær hefir enn eigi eignast slíkt blað, þó þörfin hafi verið mikil um mörg ár og mörg nauðsynleg skilyrði hafi þegar verið fyrir hendi. Stjórnmálabarátta sú, sem þjóðin hefir átt í síðasta áratuginn, hefir tekið svo mikið rúm í blöðunum, að þeim hefir eigi verið unt að rita um margt hið skemtilega og nýstárlega, sem gerst hefir innanlands og utan. En Morgunblaðið tekur engan þátt í flokkadeilum, þó það auðvitað muni gefa les- endum sínum kost á að kynnast fljótt og greinilega öllu því helzta er gerist í lands- og bæjarmálum. Þær fréttir munu ritaðar með öllu litlaust.“ Tíu árum áður hafði Vilhjálmur Finsen, stofnandi Morgunblaðsins, gengið með grein um Ísland inn á skrifstofu Henriks Cavlings, aðalritstjóra Politiken, í Kaupmannahöfn og boðið honum til birtingar. „Um Ísland!?“ á Cavling að hafa svarað, nokkuð hæðnislega. „Enginn vill lesa neitt um Ísland, blessaðir verið þér.“ „Hvernig getið þér vitað það, þegar þér birt- ið aldrei neitt um Ísland í blaðinu,“ svaraði Vil- hjálmur. Beið þess að Reykvíkingum fjölgaði Greinin birtist og Vilhjálmur og Cavling urðu góðir vinir. Vilhjálmur varð einnig fastur starfsmaður Politiken. Þremur árum síðar skýrði Vilhjálmur Cavling frá því að hann væri að hugsa um að fara heim til Íslands og „stofna nýtízku dagblað í Reykjavík“. Cavling á að hafa spurt hve margir byggju í Reykjavík. Vil- hjálmur sagði að íbúar Reykjavíkur væru um átta þúsund. „Látið yður eigi til hugar koma að dagblað geti lifað í slíku fámenni. Þér verðið að bíða þar til Reykvíkingar eru orðnir tólf þúsundir, að minnsta kosti. Og þér getið beðið rólegir því að ólíklegt er að nokkur taki hugmyndina frá yð- ur. En árunum, sem nú eru framundan, skuluð þér verja til þess að kanna annarra manna siðu. Reynið að komast út í heiminn, kynnið yður hvernig blaðamennska er meðal stórþjóð- anna. Og skrifið greinar um það sem fyrir yður ber á ferðalaginu, ég skal birta þær.“ Vilhjálmur tók Cavling á orðinu. Hann lærði loftskeytafræði og sigldi sem loftskeytamaður víða um heim. Á ferðum sínum skrifaði hann greinar, sem birtust í blöðum á Norð- urlöndum. Alltaf hljómuðu orð Cavlings um að útgáfa dagblaðs gæti staðið undir sér þegar íbúar í Reykjavík yrðu 12 þúsund í huga Vil- hjálms. Í upphafi ársins 1913 fréttir Vil- hjálmur að íbúar í Reykjavík nálgist þessa tölu. Dreif hann sig þá heim til Íslands með konu og börn og reynsluna af ferðum sínum og skrifum. Þannig lýsir Árni Óla upphafi Morgunblaðs- ins í bók sinni Erill og ferill blaðamanns. Árni var ráðinn blaðamaður á Morgunblaðið nokkr- um dögum áður en útgáfa þess hófst og mun hafa verið fyrstur til að gera blaðamennsku að ævistarfi á Íslandi. Vilhjálmur fékk Ólaf Björnsson, sem hafði tekið við útgáfu Ísafoldar af föður sínum, til liðs við sig. Ísafold varð síðar mánudagsútgáfa Morgunblaðsins. Þeir byrjuðu á því að slá 2.500 króna víxil í Landsbankanum, en Björn Kristjánsson bankastjóri hafði litla trú á fyr- irætlunum þeirra: „Þið farið á hvínandi haus- inn með þetta, piltar.“ Þeir hugðust nefna blaðið Dagblaðið og átti það að koma út síðdegis, en keppinautar þeirra á Vísi, sem hóf göngu sína 1910, náðu til sín nafninu. Var það því nefnt Morgunblaðið og var um leið afráðið að það myndi koma út á morgnana. Markmiðið strax í upphafi var að í blaðinu fengju lesendur „allar fréttir fljótastir af öllum“. Í upphafi var fjárhagur blaðsins heldur bág- ur. Mikið af tíma Vilhjálms fór í að afla auglýs- inga. Auglýsendur voru hins vegar margir tregir til að borga reikningana sína. Um tíma leit út fyrir að ekki yrði hægt að halda útgáfu blaðsins áfram og fór Vilhjálmur utan til að afla lánsfjár til rekstrarins. Þetta var 1914 og blikur á lofti í Evrópu. Vilhjálmur sendi heim frétt um í skeyti um að Franz Ferdinand, rík- isarfi Austurríkis, hefði verið skotinn í Saraj- evo 28. júní. Prentaður var fregnmiði með fréttinni og dreift um bæinn. Fregnmiðar og skeyti í gluggum Fregnmiðarnir urðu fleiri og var þetta upp- hafið að miklum fjörkipp í útgáfu blaðsins. Ekki var þó auðvelt að nálgast upplýsingar. Fréttir af því hvernig stríðið brast á í Evrópu fékk Árni Óla með því að tala við loftskeyta- mann í skemmtiferðaskipi. Hjá honum fékk hann blað, sem gefið var út um borð í skipinu, og notaði hann upplýsingar úr því til að miðla fréttum til lesenda Morgunblaðsins. Einnig fékk blaðið upplýsingar hjá kaup- mönnum, sem sendu fyrirspurnir til viðskipta- félaga erlendis og fengu fá þeim skeyti með upplýsingum. Skeytin voru hengd upp í glugga blaðsins og safnaðist iðulega svo mikill mann- fjöldi við gluggana að ekki gátu allir lesið og tók þá einhver að sér að lesa upphátt. Fjár- hagslegur grunnur hafði skapast fyrir útgáfu Morgunblaðsins. Byggt á Erill og ferill blaðamanns eftir Árna Óla og Nýjustu fréttir eftir Guðjón Friðriksson. Morgunblaðið/Ól.K.M. Árni Óla var fyrsti blaðamaður Morgun- blaðsins og sá eini framan af. „Allar fréttir fljótastir af öllum“ Karl Blöndal kbl@mbl.is Vilhjálmur Finsen átti sér árum saman þann draum að hefja útgáfu dagblaðs í Reykjavík. Fyrsta tölublaðið kom út 2. nóvember 1913 og sagði á forsíðu að það ætti að „fyrst og fremst að vera áreiðanlegt, skemtilegt og lipurt“. Vilhjálmur Finsen, stofnandi og fyrsti ritstjóri Morgunblaðsins, við skrifborð sitt. „Þið farið á hvínandi hausinn með þetta, piltar,“ sagði bankastjórinn þegar hann veitti lán fyrir blaðinu. Þegar tíðindi gerðust safnaðist fólk saman við Morgunblaðsgluggann þar sem blaðamenn settu upp fréttaskeyti um leið og þau bárust. Glugganum hefur verið líkt við net okkar tíma. Morgunblaðið/Ól.K.M. Framkvæmdastjórar Árvakurs Óskar Magnússon Útgefandi 2009 Einar Sigurðsson Forstjóri 2006-2009 Hallgrímur Geirsson Framkvæmdastjóri 1995-2006 Haraldur Sveinsson Framkvæmdastjóri 1968-1995 Sigfús Jónsson Framkvændastjóri 1923 - 1968
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.