Morgunblaðið - 02.11.2013, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
D
agblað það, sem hér byrjar starf
sitt, á fyrst og fremst að vera
áreiðanlegt, skemtilegt og lipurt
ritað fréttablað,“ segir á forsíðu
fyrsta tölublaðs Morgunblaðsins
2. nóvember 1913. „Reykjavíkurbær hefir enn
eigi eignast slíkt blað, þó þörfin hafi verið mikil
um mörg ár og mörg nauðsynleg skilyrði hafi
þegar verið fyrir hendi. Stjórnmálabarátta sú,
sem þjóðin hefir átt í síðasta áratuginn, hefir
tekið svo mikið rúm í blöðunum, að þeim hefir
eigi verið unt að rita um margt hið skemtilega
og nýstárlega, sem gerst hefir innanlands og
utan. En Morgunblaðið tekur engan þátt í
flokkadeilum, þó það auðvitað muni gefa les-
endum sínum kost á að kynnast fljótt og
greinilega öllu því helzta er gerist í lands- og
bæjarmálum. Þær fréttir munu ritaðar með
öllu litlaust.“
Tíu árum áður hafði Vilhjálmur Finsen,
stofnandi Morgunblaðsins, gengið með grein
um Ísland inn á skrifstofu Henriks Cavlings,
aðalritstjóra Politiken, í Kaupmannahöfn og
boðið honum til birtingar.
„Um Ísland!?“ á Cavling að hafa svarað,
nokkuð hæðnislega. „Enginn vill lesa neitt um
Ísland, blessaðir verið þér.“
„Hvernig getið þér vitað það, þegar þér birt-
ið aldrei neitt um Ísland í blaðinu,“ svaraði Vil-
hjálmur.
Beið þess að Reykvíkingum fjölgaði
Greinin birtist og Vilhjálmur og Cavling urðu
góðir vinir. Vilhjálmur varð einnig fastur
starfsmaður Politiken. Þremur árum síðar
skýrði Vilhjálmur Cavling frá því að hann væri
að hugsa um að fara heim til Íslands og „stofna
nýtízku dagblað í Reykjavík“. Cavling á að
hafa spurt hve margir byggju í Reykjavík. Vil-
hjálmur sagði að íbúar Reykjavíkur væru um
átta þúsund.
„Látið yður eigi til hugar koma að dagblað
geti lifað í slíku fámenni. Þér verðið að bíða þar
til Reykvíkingar eru orðnir tólf þúsundir, að
minnsta kosti. Og þér getið beðið rólegir því að
ólíklegt er að nokkur taki hugmyndina frá yð-
ur. En árunum, sem nú eru framundan, skuluð
þér verja til þess að kanna annarra manna
siðu. Reynið að komast út í heiminn, kynnið
yður hvernig blaðamennska er meðal stórþjóð-
anna. Og skrifið greinar um það sem fyrir yður
ber á ferðalaginu, ég skal birta þær.“
Vilhjálmur tók Cavling á orðinu. Hann lærði
loftskeytafræði og sigldi sem loftskeytamaður
víða um heim. Á ferðum sínum skrifaði hann
greinar, sem birtust í blöðum á Norð-
urlöndum. Alltaf hljómuðu orð Cavlings um að
útgáfa dagblaðs gæti staðið undir sér þegar
íbúar í Reykjavík yrðu 12 þúsund í huga Vil-
hjálms. Í upphafi ársins 1913 fréttir Vil-
hjálmur að íbúar í Reykjavík nálgist þessa
tölu. Dreif hann sig þá heim til Íslands með
konu og börn og reynsluna af ferðum sínum og
skrifum.
Þannig lýsir Árni Óla upphafi Morgunblaðs-
ins í bók sinni Erill og ferill blaðamanns. Árni
var ráðinn blaðamaður á Morgunblaðið nokkr-
um dögum áður en útgáfa þess hófst og mun
hafa verið fyrstur til að gera blaðamennsku að
ævistarfi á Íslandi.
Vilhjálmur fékk Ólaf Björnsson, sem hafði
tekið við útgáfu Ísafoldar af föður sínum, til
liðs við sig. Ísafold varð síðar mánudagsútgáfa
Morgunblaðsins. Þeir byrjuðu á því að slá
2.500 króna víxil í Landsbankanum, en Björn
Kristjánsson bankastjóri hafði litla trú á fyr-
irætlunum þeirra: „Þið farið á hvínandi haus-
inn með þetta, piltar.“
Þeir hugðust nefna blaðið Dagblaðið og átti
það að koma út síðdegis, en keppinautar þeirra
á Vísi, sem hóf göngu sína 1910, náðu til sín
nafninu. Var það því nefnt Morgunblaðið og
var um leið afráðið að það myndi koma út á
morgnana. Markmiðið strax í upphafi var að í
blaðinu fengju lesendur „allar fréttir fljótastir
af öllum“.
Í upphafi var fjárhagur blaðsins heldur bág-
ur. Mikið af tíma Vilhjálms fór í að afla auglýs-
inga. Auglýsendur voru hins vegar margir
tregir til að borga reikningana sína. Um tíma
leit út fyrir að ekki yrði hægt að halda útgáfu
blaðsins áfram og fór Vilhjálmur utan til að
afla lánsfjár til rekstrarins. Þetta var 1914 og
blikur á lofti í Evrópu. Vilhjálmur sendi heim
frétt um í skeyti um að Franz Ferdinand, rík-
isarfi Austurríkis, hefði verið skotinn í Saraj-
evo 28. júní. Prentaður var fregnmiði með
fréttinni og dreift um bæinn.
Fregnmiðar og skeyti í gluggum
Fregnmiðarnir urðu fleiri og var þetta upp-
hafið að miklum fjörkipp í útgáfu blaðsins.
Ekki var þó auðvelt að nálgast upplýsingar.
Fréttir af því hvernig stríðið brast á í Evrópu
fékk Árni Óla með því að tala við loftskeyta-
mann í skemmtiferðaskipi. Hjá honum fékk
hann blað, sem gefið var út um borð í skipinu,
og notaði hann upplýsingar úr því til að miðla
fréttum til lesenda Morgunblaðsins.
Einnig fékk blaðið upplýsingar hjá kaup-
mönnum, sem sendu fyrirspurnir til viðskipta-
félaga erlendis og fengu fá þeim skeyti með
upplýsingum. Skeytin voru hengd upp í glugga
blaðsins og safnaðist iðulega svo mikill mann-
fjöldi við gluggana að ekki gátu allir lesið og
tók þá einhver að sér að lesa upphátt. Fjár-
hagslegur grunnur hafði skapast fyrir útgáfu
Morgunblaðsins.
Byggt á Erill og ferill blaðamanns eftir Árna Óla og
Nýjustu fréttir eftir Guðjón Friðriksson.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Árni Óla var fyrsti blaðamaður Morgun-
blaðsins og sá eini framan af.
„Allar fréttir fljótastir af öllum“
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Vilhjálmur Finsen átti sér árum saman þann draum að hefja útgáfu dagblaðs í Reykjavík. Fyrsta tölublaðið kom
út 2. nóvember 1913 og sagði á forsíðu að það ætti að „fyrst og fremst að vera áreiðanlegt, skemtilegt og lipurt“.
Vilhjálmur Finsen, stofnandi og fyrsti ritstjóri Morgunblaðsins, við skrifborð sitt. „Þið farið á
hvínandi hausinn með þetta, piltar,“ sagði bankastjórinn þegar hann veitti lán fyrir blaðinu.
Þegar tíðindi gerðust safnaðist fólk saman við Morgunblaðsgluggann þar sem blaðamenn
settu upp fréttaskeyti um leið og þau bárust. Glugganum hefur verið líkt við net okkar tíma.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Framkvæmdastjórar Árvakurs
Óskar
Magnússon
Útgefandi
2009
Einar
Sigurðsson
Forstjóri
2006-2009
Hallgrímur
Geirsson
Framkvæmdastjóri
1995-2006
Haraldur
Sveinsson
Framkvæmdastjóri
1968-1995
Sigfús
Jónsson
Framkvændastjóri
1923 - 1968