Morgunblaðið - 02.11.2013, Síða 14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þróttmikill fjölmiðill með 100 ára sögu
Hjá Árvakri starfar samhent áhöfn að því að færa landsmönnum fréttir í Morgunblaðinu og á mbl.is. Á aldarafmæli
Morgunblaðsins horfa starfsmenn á þróttmiklum fjölmiðli til framtíðar með 100 ára arfleifð að veganesti, tilbúnir að
bjóða upp á góða og vandaða blaðamennsku hver sem þróunin verður á fjölmiðlamarkaði.
14 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
É
g ætlaði snemma að verða blaðamað-
ur,“ segir Guðmundur Sveinn Her-
mannsson, fréttastjóri Morgunblaðs-
ins, en hann hefur verið viðloðandi
blaðamennskuna frá því að hann
skrifaði í skólablaðið á menntaskólaárunum. „Á
háskólaárunum byrjaði ég að skrifa bridsþætti í
Tímann og fékk sumarvinnu út á það, og síðan
eru liðin þrjátíu ár.“ Guðmundur segir starfs-
umhverfið vera annað nú en þá. „Tæknin hefur
breytt öllu verulega, en í sjálfu sér breytist eðli
blaðamennskunnar ekki mikið,“ segir Guð-
mundur og bætir við að stóra breytingin sé
einkum auðveldara aðgengi að upplýsingum.
„Það er auðveldara að nálgast upplýsingar nú
en þá og auðveldara að ná í fólk, það eru allir
með farsíma eða tölvupóstfang.“
Fjóra tíma að senda ljósmyndir
Sú var ekki raunin í upphafi ferilsins. „Það var
oft svo að ekki var hægt að ná í viðmælendur í
síma fyrr en þeir var komnir heim úr vinnu og
búnir að borða kvöldmat,“ segir Guðmundur.
Úrvinnsla frétta átti það því til að teygjast langt
fram á kvöldin, vegna þess hve langan tíma það
tók að afla upplýsinganna.
Í því samhengi eru Guðmundi minnisstæðar
vinnuferðir til útlanda fyrir tíma netsins. „Þetta
voru einkum staðir sem tengdust sjávarútvegi
og langt í burtu frá höfuðborgunum. Þá fóru oft
einn til tveir dagar í það að stilla tölvuna og
tengjast við tölvukerfi blaðsins og finna leið til
þess að senda ljósmyndir til Íslands.“
Hann rifjar upp þegar hann fór til Yokohama
í Japan árið 1991 til þess að fylgjast með heims-
meistaramótinu í brids, þar sem Íslendingar
stóðu uppi sem sigurvegarar. „Ég gat tengst
símakerfinu hér og sent textann minn eins og
ekkert væri en ljósmyndirnar voru allt annar
handleggur. Eina leiðin sem ég fann til þess var
að fara á Reuters-skrifstofuna í Tókýó með lest
og framkalla myndirnar hjá þeim og símsenda
til Íslands. Það tók tvo tíma, og ég beið á meðan
og tók svo lestina til baka til Yokohama, klukku-
tíma hvora leið. Einhverjir hefðu farið að æsa
sig yfir seinlætinu!“ segir Guðmundur og hlær.
Guðmundur segir að starf fréttastjórans sé
margþætt, hann þurfi að fylgjast vel með og
leita uppi áhugaverð viðfangsefni, útdeila þeim
verkefnum sem komi á borð blaðsins og stilla
fréttasíðunum upp.
Hann bendir á að Morgunblaðið hafi breyst
mikið síðasta áratuginn til þess að laga sig að
breyttum neysluvenjum fólks. „Netið hefur orð-
ið á þeim tíma hluti af daglegu lífi og fólk getur
fylgst þar jafnharðan með því sem er að gerast.
En í blaðinu verður að vera annað efni en fólk
hefur lesið á netinu daginn áður.“
„Ekki láta Gumma vita!“
Guðmundur var fréttastjóri mbl.is í fjórtán ár.
Hann segir mikinn mun á því að vera frétta-
stjóri blaðs, sem kemur út einu sinni á dag og
fréttavefjar, sem stöðugt þarf að uppfæra, „og
ég þurfti að læra alveg ný vinnubrögð og til-
einka mér nýja hugsun, bæði þegar ég tók við
mbl.is og raunar einnig þegar ég snéri aftur á
Morgunblaðið í fyrra,“ segir hann.
Á meðan mbl.is sleit barnsskónum var nokk-
uð um að blaðamenn Morgunblaðsins voru treg-
ir til að deila fréttunum sínum með mbl.is.
„Ekki láta Gumma vita,“ heyrðist þá hvíslað úr
sumum hornum. Guðmundur segir að það hafi
verið skiljanlegt. „Þegar maður gefur út dag-
blað og er með góða frétt, þá vill maður ekki sjá
fréttina sem maður telur sig sitja einan að koma
annars staðar, hvað þá í vefmiðli undir hatti
sama fyrirtækis.“ Guðmundur segir að þetta
hafi verið heilbrigð samkeppni sem hafi komið
báðum miðlum til góða. „Sum átök eru bara holl
ef þau eru á jákvæðum forsendum.“
Engin af spánum hefur ræst
„Ég hef reynt að fylgjast með umræðum um
þróun fjölmiðla og tækninnar síðustu árin og
hverju menn búast við, og sýnist að það eina
sem þessar spár eiga sameiginlegt sé að engin
þeirra hefur ræst fullkomlega,“ segir Guð-
mundur. Þar komi tvennt til, annaðhvort hafi
þróunin sem fólk ímyndaði sér verið mun hæg-
ari en talið var, eða þá að óvæntar nýjungar hafi
komið fram á sjónarsviðið sem gerbreyttu hug-
myndum manna.
Guðmundur gefur því lítið fyrir spádóma um
að dagblöð fari að leggja upp laupana í bráð.
„Morgunblaðið byggist á mjög langri hefð og
það hefur verið óragt við að tileinka sér tækni-
nýjungar. Og hver sem þróunin verður almennt
á fjölmiðlamarkaði á blaðið að vera vel í stakk
búið til að standa sig í þeirri samkeppni; það
verður áfram eftirspurn eftir vandaðri og góðri
blaðamennsku. “
Við byggjum á
mjög langri hefð
Guðmundur Sveinn Hermannsson, fréttastjóri Morgun-
blaðsins, segir blaðið hafa verið óragt við nýjungar.
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Hermannsson fréttastjóri segir að tæknin hafi haft miklar breytingar í för með
sér og auðveldað öflun upplýsinga, en blaðamennskan sjálf hafi í eðli sínu lítið breyst.