Morgunblaðið - 02.11.2013, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
S
tyrkur Morgunblaðsins felst ekki
síst í því að við getum boðið upp
auglýsingar innan um vandað efni.
Við erum að framleiða áhugavert
efni sem fólk borgar fyrir að lesa
og ver meiri tíma í en það lesefni sem það fær
óbeðið inn um lúguna.“
Þetta segir Magnús E. Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölumála, þegar
hann er spurður um stöðu Morgunblaðsins á
auglýsingamarkaði á 100 ára afmælinu. Hann
kveðst vera bærilega sáttur við hlut blaðsins í
veltunni á markaðnum miðað við þá stöðu sem
nú er í fjölmiðlaheiminum, en segir stefnt að
því að auka hann enn frekar.
Tveir ólíkir miðlar
„Við erum að gefa út dagblað með aldarsögu
og ríkar hefðir,“ segir Magnús. „En svo höld-
um við líka úti öðruvísi miðli, mbl.is, sem er
öflugasti og vinsælasti netmiðill landsins með
fréttum, afþreyingu, margvíslegum upplýs-
ingum og þjónustuauglýsingum. Fasteignavef-
urinn er til dæmis mikið skoðaður. Við erum
með öflugasta fasteignavefinn.“
Magnús rifjar upp að á netinu hér heima eru
Morgunblaðsmenn frumkvöðlar að fréttaflutn-
ingi. Þetta var ekki auðvelt á sínum tíma. Var
mikið brautryðjandastarf með ærnum til-
kostnaði. Það tók langan tíma að byggja þenn-
an vef upp og festa hann í sessi, en nú er hann
mest sótti netmiðill landsins og besti vett-
vangur íslenskra auglýsenda á netinu. „Æ
fleiri auglýsendur eru að sjá þá kosti sem aug-
lýsingar á netinu bjóða upp,“ bætir hann við.
Tölur frá óháðum aðila um notkun mbl.is og
annarra vefja staðfesta orð Magnúsar. Yf-
irburðirnir eru miklir og ekki furða að vef-
urinn sé eftirsóttur auglýsingavettvangur.
Heimsækja um 190 þúsundir notendur á aldr-
inum 12 til 80 ára mbl.is í hverri viku. Allir Ís-
lendingar á þessum aldri eru 239 þúsund.
Miklar breytingar
Gífurlegar breytingar hafa orðið í íslenskum
fjölmiðlaheimi á örfáum árum. „Hvað auglýs-
ingar varðar snúa þessar breytingar ekki bara
að Morgunblaðinu, heldur öllum miðlum og al-
veg sérstaklega áskriftarmiðlum. Hjá Árvakri
höfum við þurft að aðlaga okkur þessum nýja
heimi sem er kröfuharður og sífellt að breyt-
ast. Auglýsendur standa hvergi í biðröðum hjá
fjölmiðlum, við þurfum öll að hafa fyrir því að
fá auglýsingar og rökstyðja hvernig og hvers
vegna okkar miðill hentar. Við kvörtum ekki.
Þetta er krefjandi starf, en mjög ánægjulegt,“
segir Magnús.
Kaupgetan ræður úrslitum
„Það hefur verið stöðug aukning í auglýsinga-
viðskiptum Morgunblaðsins og mbl.is und-
anfarin ár,“ segir Magnús. En framboð á aug-
lýsingum er háð efnahagsástandi í landinu
hverju sinni. „Kaupgeta fólks skiptir auðvitað
öllu máli,“ segir Magnús. „Um leið og fólk
getur keypt vörur eykst þörf verslana og
framleiðenda til að auglýsa. Þetta hangir
saman.“
Magnús kveðst bærilega sáttur við stöðu
Morgunblaðsins á auglýsingamarkaði eins og
hún er núna. „En við viljum að sjálfsögðu
stækka okkar hlutdeild enn frekar,“ segir
hann. Hann segir menn vongóða um að senn
fari að birta til í efnahagslífinu.
Öflugur hópur
Magnúsi er ofarlega í huga hve öflugur hópur
vinnur á auglýsingadeild Morgunblaðsins og
mbl.is. „Þetta er hæfileikaríkt fólk með mikla
þekkingu og reynslu af markaðnum. Hvaða
fyrirtæki sem er væri öfundsvert af þessum
hópi,“ segir hann. „Okkar aðalmarkmið er að
veita viðskiptavinunum framúrskarandi þjón-
ustu.“
Gera kannanir
Á vegum Árvakurs eru reglulega gerðar
kannanir um notkun Morgunblaðsins.
„Niðurstaðan er alveg ótvíræð,“ segir
Magnús. „Fólk les áskriftarblöð betur og
lengur og það hefur áhrif á hvernig það
upplifir auglýsingar og bregst við þeim.
Kannanirnar sýna að lesendur verja að
jafnaði 169 mínútum á viku í lestur Morgun-
blaðsins, en 112 mínútum í lestur Frétta-
blaðsins.
Stöðugar breytingar
„Það eru miklar tæknibreytingar í gangi,“ seg-
ir Magnús. Hann segir að þær hafi áhrif á
framsetningu auglýsinga. Báðir aðilar, þeir
sem auglýsa og hinir sem miðla þeim, þurfi
stöðugt að vera vakandi yfir þróuninni. „Stutt
er síðan auglýsingagerð fyrir netið miðaðist
við stóra tölvuskjái, fartölvur eða borðtölvur.
En nú hefur notkunin verið að færast yfir í
snjallsíma og spjaldtölvur. Það breytir því
hvernig auglýsingar eru settar fram,“ segir
hann. „Mér finnst þetta gera starf okkar
spennandi og örvandi,“ segir Magnús E. Krist-
jánsson.
Bjóðum auglýs-
ingar innan um
vandað efni
Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs, er sáttur við hlut blaðsins á auglýs-
ingamarkaði, en hyggst auka hann enn frekar.
Morgunblaðið/Golli
„Auglýsendur standa hvergi í biðröðum hjá fjölmiðlum, við þurfum öll að hafa fyrir því að fá
auglýsingar,“ segir Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Árvakurs.
Flettingar fréttamiðla 2013
Meðaltal síðustu tólf vikna samkvæmt mælingum Modernus
mbl.is
11.582.967
visir.is
6.835.415
dv.is
4.845.544
fotbolti.net
2.141.171
pressan.is
2.075.094
ruv.is
1.652.515
vb.is
289.094
Vikulestur dagblaða
Lestur í mínútum á viku í september 2013
Morgunblaðið Fréttablaðið
169
122
Þ
að hefur margt breyst á Morg-
unblaðinu og í þjóðfélaginu frá
því að ég byrjaði að vinna á
blaðinu haustið 1966,“ segir Lilja
Leifsdóttir sem á lengstan
starfsaldur þeirra sem nú vinna á blaðinu,
þegar hún rifjar upp gamla tíma í tilefni af
aldarafmælinu.
Faðir Lilju, Leifur Sveinsson lögfræð-
ingur, var meðal eigenda Morgunblaðsins
og föðurbróðir hennar, Haraldur Sveinsson,
var stjórnarformaður og síðar fram-
kvæmdastjóri blaðsins um langt árabil. Þeg-
ar hún kom heim frá verslunarnámi á Eng-
landi 18 ára gömul og leitaði fyrir sér um
vinnu, var því ekki nema eðlilegt að hún
spyrðist fyrir á blaðinu. Sigfús Jónsson var
þá framkvæmdastjóri og réð hana. Fyrstu
verkefnin sem hann fól henni sneru að sam-
skiptum við áskrifendur blaðsins.
Gjaldkeri 19 ára
Lilja var ekki búin að vera lengi á blaðinu
þegar Sigfús spurði hana hvort hún vildi
ekki verða gjaldkeri. „Mér brá svolítið,
fannst þetta ansi mikið starf fyrir mig, 19
ára gamla,“ segir Lilja. Henni er minn-
isstætt að Sigfús sagði þá: „Viljið þér ekki
ræða þetta við föður yðar.“ Sigfús var af
þeirri kynslóð sem þéraði alla.
Lilja varð gjaldkeri og við tók fjölbreytt
starf sem leiddu til kynna við fjölda fólks,
við starfsmenn og viðskiptavini. Hún starf-
aði með fimm framkvæmdastjórum, auk
Sigfúsar og Haraldar, þeim Hallgrími
Geirssyni, Einari Sigurðssyni og nú Óskari
Magnússyni.
„Viljið þér ekki
ræða þetta við
föður yðar“
Lilju Leifsdóttir hóf átján ára störf á Morgun-
blaðinu og er nú með lengstan starfsaldur þar.
Morgunblaðið/Kristinn
„Ég man eftir því að hafa verið að vélrita í sexriti kvittun fyrir umboðsmann okkar í Kópavogi í
gamla daga,“ segir Lilja Leifsdóttir og bætir við að tæknin hafi auðveldað margt.
Sjá næstu opnu