Morgunblaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Matthías Johannessen og Hannes
Pétursson við Morgunblaðið.
Forsíðan 17. maí, 1960 þegar
toppfundurinn splundraðist.
Morgunblaðið/ÓL.K.M.
Á ritstjórn Morgun-
blaðsins árið 1958,
ári áður en Matt-
hías verður ritstjóri
blaðsins:Haraldur
Hamar, Matthías,
Sigurður A. Magn-
ússon og Þorbjörn
Guðmundsson
ræða saman um
fréttir og annað
efni Morgunblaðs-
ins næsta dag.
Vitanlega hefur margt gerst á löngum ritstjóraferli skáldsins. Matthías segir
að hann hafi aldrei upplifað meiri gleði í starfi en þegar greint var frá því á
allri forsíðu Morgunblaðsins fimmtudaginn 14. janúar 1960, að togarinn Úr-
anus væri fundinn og skipshöfn hans heil á húfi. Fyrirsögn aðalfréttarinnar
var: Úranus fundinn og skipshöfn hans heil á húfi. Undirfyrirsögnin var:
Fagnaðarbylgja fór um Reykjavík, er gleðitíðindin bárust.
Fram kom í þessari gleðifrétt, að ekkert hafði spurst til Úranusar frá því á
sunnudagskvöldinu eða í þrjá sólarhringa og skýringin hafi verið sú að
senditæki togarans voru biluð.
Í minningargrein um Ólaf K. Magnússon, ljósmyndara Morgunblaðsins
um áratuga skeið, sem birtist 26. nóvember 1997, segir m.a.: „Matthías Jo-
hannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, segir frá því í sýningarskrá frétta-
ljósmyndara 1977, að hann hafi óskað eftir myndinni (sem birtist á forsíðu
Morgunblaðsins með fréttinni um Úranus 17 árum áður – innskot blm.) því
fólk þyrfti að sjá hana til þess að trúa að Úranus væri ofansjávar. Hann lýsir
síðan baráttu Morgunblaðsmanna við að fá filmuna hjá varnarliðsmönnum,
sem sögðu hana ekki sýna neitt að gagni. Það væri engin leið að þekkja
skipið af myndinni. Matthías segir Ólaf K. Magnússon þá hafa sagt: „Ef ég
fæ filmuna, skal ég framkalla Úranus.“ Það fannst varnarliðsmönnum ótrú-
legt, en létu myndina samt af hendi eftir nokkurt þref. Næsta dag, 14. janúar
1960, birtist Úranus auðþekkjanlegur á forsíðu Morgunblaðsins … Á tutt-
ugu ára ritstjóraferli mínum þykir mér vænst um þessa forsíðu Morgun-
blaðsins – og þessa mynd,“ sagði Matthías jafnframt í sýningarskránni.
Ekkert hefur breyst í þeim efnum, því Matthías sagði, þegar hann var beðinn að rifja upp gleðilegasta viðburðinn á
42 ára ritstjóraferli sínum: „Ég hef sagt það áður og segi það enn: Ég hef aldrei haft jafnmikla ánægju af starfi mínu
sem ritstjóri og þegar við birtum fréttina um að Úranus væri fundinn og myndina af togaranum með, í janúar 1960.
Þá sagði Morgunblaðið þjóðinni frá því að á milli 25 og 30 sjómenn væru lifandi, sem höfðu verið taldir af. Þetta voru
einhver gleðilegustu tíðindi sem Morgunblaðið hefur birt.“
Gleðitíðindin voru
Úranus fundinn
Forsíða Morgunblaðsins 14. janúar
1960 þegar blaðið gat birt þá gleði-
frétt að Úranus væri fundinn.