Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 44
44 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Eyðibýli
Ég hef alltaf verið veikur fyrir eyðibýlum. 1986 var ég að vinna verkefni fyrir
austan ásamt Urði Gunnarsdóttur, sem þá var blaðamaður á Morgunblaðinu,
og við hjá Eystra-Horni skammt frá Stokksnesi. Þessi staður hafði verið not-
aður sem leikmynd í Pourqoi Pas, mynd Kristínar Jóhannesdóttur, og ég plat-
aði hana til að koma með mér. Þegar ég var að mynda fannst mér eitthvað
vanta og ég fékk hana til að stinga handleggnum út um gluggann. Einhverju
seinna vantaði Elínu Pálmadóttur mynd með grein, sem hún var að skrifa og
ég sýndi henni þessa. „Þetta er morð, þetta er morð,“ hrópaði hún. „Það er
ekki hægt að birta þetta.“ Urður var þó sprelllifandi. Ári seinna kom ég þarna
aftur og þá var búið að eyðileggja gluggakarmana í húsinu.
Víetnam
Ég var staddur við Ha Long-flóa í Víetnam árið 2000 og leigði mér bát fyrir 20
krónur á klukkustund. Báturinn var reyrður með bambustrefjum og þéttur
með kvoðu, en hriplak samt svo stöðugt þurfrti að ausa hann. Konan, sem
gerði út leigubátinn, var með silkihanska og breiddi fyrir andlitið því það
þykir ekki fínt að vera útitekinn.
Árni Sæberg
Kúba
Ég fór til Kúbu árið
1999. Meðferðis hafði
ég tvær myndvélar,
Mamiu 6.7 og gamla
4x5 tommu blaðfilmu-
vél. Dag einn var ég
staddur í hverfi í Vara-
dero, litlum bæ rétt við
hliðina á ferða-
mannastað um 150 km
austur af Havana. Ég
hafði dottið í ræsi og
brotið Mamiu-vélina
þannig að ég hafði
bara plötuvélina, sem
ég þurfti að stilla upp á
þrífót og fara undir
svartan dúk til að taka
myndina. Ég kom á
sveitabæ þar sem ég
fékk að mynda gegn
þóknun. Ég borgaði
með dollurum, sem ég
var með á mér, og
myndaði hluta úr degi.
Þegar ég var búinn fór
ég í eldhúsið og þar
stóð þess kona við
hlóðirnar. Ég sá strax
að þetta yrði frábær
mynd, en spurði sjálfan
mig um leið hvert ég
væri kominn. Á hverj-
um degi í fjörtutíu ár
hafði konan hugsað
um að fara á brott. Í
húsinu voru ekki einu
sinni gluggar. En þetta
var glatt fólk þótt það
ætti ekki neitt. Hún gaf
mér sítrónu að skilnaði
og ég var hálfklökkur
þegar ég fór.
Árni Sæberg hefur
verið ljósmyndari á
Morgunblaðinu frá
því í júní 1984.
Hann starfaði hjá
Landhelgisgæslunni
og sigldi á varðskipum áður en
hann sneri sér að ljósmyndun. Árni
er fjölhæfur ljósmyndari og nýtur sín
þegar hann fær að sökkva sér í
áhugaverð verkefni.