Morgunblaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Fyrsta fréttamyndin
Ég var í Tækniskólanum að læra
rafvirkjun og átti myndavél og
lögguskanna eins og margir strák-
ar á þeim árum. Ég var inni í Laug-
arnesi 19. september 1979 og tók
mynd af lögreglunni fjarlægja
hesthaust sem settur hafði verið á
níðstöng. Ég brunaði með mynd-
ina á Morgunblaðið og hitti Björn
Jóhannsson fréttastjóra. Hann tók
mér opnum örmum og hvatti mig
til að koma með sem flestar mynd-
ir. Myndin birtist daginn eftir en
það gleymdist að merkja hana
ljósmyndaranum! Næstu fjögur ár-
in tók ég fjölda mynda sem lausa-
maður. Eftir að ég lauk náminu
æxluðust málin þannig að ég end-
aði á Morgunblaðinu vorið 1984
sem ljósmyndari í stað þess að
fara að vinna sem rafvirki.
Á vakt í Pittsburgh
Ég fór ásamt Guðna Einarssyni blaðamanni til
Pittsburgh í Bandaríkjunum sumarið 1999. Þar
kynntum við okkur framhaldsnám íslenskra
sjúkraflutningamanna í bráðatækni. Þetta var
ævintýraferð. Við brunuðum um götur borg-
arinnar með varðstjóra og bráðatækni hjá
sjúkraflutningum borgarinnar. Í umdæmi hans
voru sjö sjúkrabílastöðvar og mætti hann allt-
af á vettvang þegar stór atvik urðu. Hann sló
aldrei af í neyðarakstrinum. Við fórum í útköll
jafnt í skuggahverfi og glæsihverfi og fengum
að kynnast sjúkraflutningum með þyrlum og
bátadeild bráðatækna í Pittsburgh. F.v.: Sig-
urjón Valmundarson, þá nemi í bráðatækni,
Lárus Petersen bráðatæknir, Jason Bahm lög-
reglumaður, Dan Capatolla bráðatæknir, og
John H. Soderberg, bráðatæknir og kafari.
Söguleg mótmæli
Ég tók mikið af myndum þegar mótmælin í
miðborg Reykjavíkur stóðu sem hæst veturinn
2008 til 2009. Sá tími er mér ákaflega minnis-
stæður og allt í kringum mótmælin. Ég dáðist
mikið að jafnaðargeði og stillingu lögreglu-
mannanna sem voru grýttir dag eftir dag, hellt
yfir þá skyri og ýmsu öðru fyrstu daga mót-
mælanna. Næstu vikurnar var maður jafnt dag
og nótt í miðbænum að mynda mótmælin.
Júlíus Sigurjónsson
Júlíus Sigurjónsson byrjaði sem
lausamaður í ljósmyndun fyrir
Morgunblaðið 20. september 1979.
Hann var ráðinn ljósmyndari Morg-
unblaðsins 2. maí 1984. Frétta-
myndir þar sem lögregla og slökkvilið
koma við sögu hafa lengi verið sérsvið Júlíusar og
hefur hann aflað sér mikillar reynslu á því sviði.
Júlíus er einnig verkstjóri á ljósmyndadeild blaðsins.