Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 50
50 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Ómar Óskarsson hefur
starfað við Morgun-
blaðið frá árinu 1984
og gegnt þar ýmsum
störfum. Eitt af áhuga-
sviðum Ómars eru
náttúrulífs- og fuglamyndir og hefur
hann haldið einkasýningu á þeim
myndum sínum. Í ár eru fjörutíu ár
frá því að ljósmyndaáhugi Ómars
hófst af alvöru.
Mótmæli á Austurvelli
„Þessi mynd lýsir upplausninni í sam-
félaginu, þar sem Jón Sigurðsson, tákn
lýðveldisins, er umvafinn logum,og
myndin gefur manni tilfinningu um að
það sé að hitna undir lýðveldinu,“ segir
Ómar um myndina sem tekin er daginn
sem þing var sett, 4. október 2010. „Það
var alltaf beygur í manni þegar maður fór
á Austurvöll á þessum tíma.“
Ómar Óskarsson
Kríuungi skoðar heiminn
„Þarna er kríuunginn að skoða heiminn, og sér Baldursbrána nánast eins og
tré,“ segir Ómar, sem þrætir ekki fyrir áhuga sinn á fallegum náttúrulífs-
myndum. „Þessi mynd er tekin í upphafi júlí þegar kríuungarnir eru farnir að
láta á sér kræla,“ segir hann og bætir við að hann eigi sér uppáhaldsstað til
þess að taka myndir af kríuungum. „En þegar ég kom á staðinn var annar ljós-
myndari á fleti fyrir og ég þurfti að bíða í klukkutíma áður en ég komst að og var
í annan klukkutíma að taka myndir. Þolinmæðin skilaði sér í þessari mynd.“
Kvikmyndatökumenn
framtíðarinnar
„Þessi mynd er tekin í ágústbyrjun
2006 í skákheimsókn Hróksins til Tasi-
ilaq í Grænlandi,“ segir Ómar. „Myndin
lýsir því hversu mikinn áhuga græn-
lensk börn hafa á gestum,“ segir Ómar,
en þau höfðu fengið að láni upp-
tökutæki Þorfinns Guðnasonar kvik-
myndagerðarmanns.