Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 67
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 67
maður á Morgunblaðinu í meira en
fjóra áratugi, frá 1964 og fram á
sumar 2006, er hann fór á eft-
irlaun að eigin ósk. Hann er nú 73
ára gamall. Lengst af var Magnús
fréttastjóri innlendra frétta, en
síðustu árin var hann fulltrúi rit-
stjóra og hafði umsjón með að-
sendum greinum til blaðsins.
Í landhelgisstríðunum
Á áttunda áratugnum eftir út-
færslu fiskveiðilögsögunnar í 50 og
200 mílur var landhelgismálið eitt
helsta fréttaefnið. Var umfjöllun
um það á könnu Magnúsar og
leiddi hann í mörg ævintýri. Hann
var til dæmis ásamt breskum sjón-
varpsmönnum um borð í varðskip-
inu Þór í ársbyrjun 1976 þegar
freigátan Andromeda keyrði á
skipið og laskaði það talsvert.
Hlaust af því gífurlegt uppnám í
samskiptum Breta og Íslendinga.
Bretar neituðu sök en þeirra eigin
sjónvarpsmenn gátu staðfest með
myndum að þarna hafði viljandi
verið lagt til atlögu við langtum
minna skip og mannslífum stefnt í
voða. Magnús var vitni að atvikinu
og kveðst hafa verið agndofa af
undrun yfir offorsi og magnaðri
ófyrirleitni yfirmanns freigátunnar
þegar hann gerði aftur og aftur
tilraunir til að sigla á Þór.
Klippum beitt
Annað atvik um borð í Þór, að
þessu sinni í landhelgisdeilunni
vorið 1973, er Magnúsi ekki síður
ofarlega í huga. Þá fékk hann að
sjá í fyrsta sinn frægt leynivopn
Landhelgisgæslunnar, togv-
íraklippurnar sem beitt var á
botnvörpur bresku togaranna þeg-
ar þeir neituðu að hlýða fyr-
irmælum og fara út úr landhelg-
inni. Magnús hafði farið á miðin
ásamt fleiri blaðamönnum með
varðskipinu Óðni, en þegar komið
var á Reykjanesröstina þar sem
fjöldi breskra togara var að ólög-
legum veiðum, bauð góðkunningi
Magnúsar, Helgi Hallvarðsson
skipherra á Þór, sem einnig var á
staðnum, að Magnús skyldi sóttur
og fluttur á gúmmíbáti milli varð-
skipanna.
„Þegar um borð í Þór var komið
sagði Helgi formálalaust við mig
að ekki langt fyrir austan okkur
væri siglutrjáaskógur breskra tog-
ara og nú fengi ég að sjá hvernig
klippt væri aftan úr togara,“ segir
Magnús.
Klippt á togvíra
Helgi stóð við það. Fann breskan
togara sem ekki hafði fylgt fyrir-
skipun um að hífa upp veiðarfæri
sín og klippti þau miskunnarlaust
af. Ætlast hafði verið til þess að
farið væri varlega í slíkar aðgerðir
því reynt var að semja um lausn
landhelgisdeilunnar. Hraðskeyti
barst nú til varðskipsins frá for-
stjóra Landhelgisgæslunnar í
Reykjavík „Hvers vegna klippt-
irðu?“ Magnús varð vitni að um-
búðalausu svari Helga skipherra:
„Hann átti það skilið!“
Bresku togaraskipstjórarnir
sem hlýtt höfðu fyrirmælunum sáu
hvað gerðist og tóku sig saman og
streymdu að Þór, greinilega í þeim
tilgangi að vinna skipinu tjón. „Við
ofurefli var að etja en varðskipinu
tókst hins vegar að forða sér á
hraðri siglingu inn fyrir gömlu 12
mílna landhelgina og hættu þeir
þá eftirförinni,“ segir Magnús.
Hleranir í Moskvu
Magnús er minnisstæð ferð á veg-
um Morgunblaðsins til Moskvu
haustið 1977 þegar Geir Hall-
grímsson forsætisráðherra var þar
í opinberri heimsókn. Úr þeirri
ferð komu margar fréttir sem at-
hygli vöktu. Var meðal annars
upplýst um hleranir sovésku leyni-
þjónustunnar í íslenska sendi-
ráðinu í borginni.
Magnús reyndi að ná viðtali við
mannréttindafrömuðinn Andrei
Sakharov, en tókst ekki að hafa
uppi á honum. Sögðu Sovétmenn
honum að slíkt viðtal yrði illa séð,
gæti spillt árangri ferðar forsætis-
ráðherra. „Þeir litu svo á að við
blaðamennirnir værum á einhvern
hátt hluti af hinni opinberri sendi-
nefnd frá Íslandi og því væri hægt
að tala svona við okkur. Það sýndu
þeir líka með sérstöku örlæti við
mig og Eið Guðnason, sem þarna
var á vegum Sjónvarpsins, og
leyfðu okkur aldrei að taka upp
veskin, borguðu allar veitingar
fyrir okkur og sögðu að ekki kæmi
annað til greina.“
’Þegar um borð í Þór var komið sagði Helgi for-málalaust við mig að ekki langt fyrir austan okkurværi siglutrjáaskógur breskra togara og nú fengi ég
að sjá hvernig klippt væri aftan úr togara … Við
ofurefli var að etja en varðskipinu tókst hins vegar
að forða sér á hraðri siglingu inn fyrir gömlu 12
mílna landhelgina og hættu þeir þá eftirförinni.