Morgunblaðið - 02.11.2013, Qupperneq 68
68 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
B
rúnin lyftist á Freysteini
Jóhannssyni þegar hann
sér Ragnar Axelsson
ljósmyndara í gættinni.
Freysteinn var blaða-
maður og fréttastjóri á Morgun-
blaðinu í rösk fjörutíu ár og við að sjá
Ragnar hrúgast upp minningar. „Ég
veit ekki hve oft ég blótaði Freysteini
fyrir að senda mig út í eitthvert
óveðrið,“ segir Ragnar. „En alltaf
náðist myndin.“
Eitt sinn hringdi Freysteinn í
Ragnar. Þá hafði leit staðið lengi yfir
að flugvél, sem fórst á Arnarvatns-
heiði skammt frá Fornahvammi sum-
arið 1981 og var talið að flakið væri
fundið. „Þú rétt ræður hvort þú kem-
ur ekki með mynd,“ sagði Freysteinn
áður en Ragnar flaug út í sortann.
Hann náði mynd úr lítilli hæð þar
sem björgunarmenn voru að ganga
út úr þyrlu Landhelgisgæslunnar.
„Það var ekki fyrr en myndirnar
voru framkallaðar að það sást að lík
þeirra, sem fórust, lágu við brakið úr
vélinni,“ segir Freysteinn, sem þá var
á fréttastjóravakt. „Ég ákvað að tússa
yfir líkin áður en ég sýndi ritstjór-
anum myndina. Einhverjir eigendur
blaðsins sátu á fundi hjá Matthíasi Jo-
hannessen og voru m.a. að velta fyrir
sér hvort ætti að birta myndina. Matt-
hías varði það og sagði að þetta væri
fréttamynd. Þegar Matthías sagði
mér frá umræðunum sýndi ég honum
myndina sem við birtum og myndina
eins og hún leit út áður. Svona sýnir
Morgunblaðið virðingu þegar þarf að
birta erfiðar myndir.“
Freysteinn starfaði við blaða-
mennsku í rúma fjóra áratugi. „Ég
byrjaði í blaðamennsku ’67 á hátíðis-
degi verkalýðsins,“ segir hann. „Ég
var svo á Morgunblaðinu eins og
límdur þar til ekki var pláss fyrir
okkur Davíð báða.“
Freysteinn rifjar upp að nokkru
áður en hann hætti á Morgunblaðinu
hafði Davíð Oddsson hætt sem for-
maður Sjálfstæðisflokksins. Frey-
steinn tók þá viðtal við Davíð sem
birtist í sérstökum kálfi sem fylgdi
Morgunblaðinu. „Á leiðinni á lands-
fundinn gaf hann sér tíma til að
hringja í mig og þakka mér fyrir því
honum þótti vænt um þetta. Næst
þegar við hittumst var ég að labba út
af Mogganum og hann inn. Þá sagði
hann við mig: „Þetta eru skrítin örlög
hjá okkur, Freysteinn minn.“ Svo
löbbuðum við hvor í sína áttina.“
Dvöl Freysteins á Morgunblaðinu
var þó ekki alveg samfelld. Í tvö ár,
1973 til 1975, var hann ritstjóri Al-
þýðublaðsins og síðan ritstjórnar-
fulltrúi á Tímanum í eitt ár. Hann
sneri aftur á Morgunblaðið 1977 eftir
veruna á Tímanum og 1981 verður
hann fréttastjóri í innlendum fréttum
ásamt Magnúsi Finnssyni og Sig-
tryggi Sigtryggssyni og síðar bættist
Ágúst Ingi Jónsson við. Tóku þeir við
af Birni Jóhannssyni. „Björn Jóh. var
ægilega montinn af því að hann var
einn fréttastjóri og svo komum við
þrír,“ segir Freysteinn. „Honum þótti
alltaf gaman að geta þess að hann
væri þriggja manna maki minnst.“
Freysteinn kom eins og gefur að
skilja víða við á blaðamannsárum sín-
um. Um sinn hafði hann stjórnmálin
á sinni könnu en Magnús Finnsson
var með verkalýðsmálin.
Heimildarmenn í öllum flokkum
„Maggi var með sína trúnaðarmenn í
verkalýðsfélögum og ég var með
menn í öllum flokkum sem töluðu við
mig,“ segir hann. „Lúðvík Jósepsson
leyfði flokksmönnum sínum þó ekki
að tala við mig þegar hann var for-
maður Alþýðubandalagsins og sagði
þeim að það væri ekkert að marka
það sem ég skrifaði. Raunverulega
ástæðan var sú að hann vildi sitja
einn að því að tala við mig.“
Freysteinn starfaði hjá Skák-
sambandi Íslands sem blaðafulltrúi í
einvígi Bobby Fischers og Boris
Spassky 1972 og skrifaði árið eftir
bók um einvígi aldarinnar, Fischer
gegn Spassky, sem nú er illfáanleg.
„Ég kynntist Spassky og Fischer,“
segir hann. „Spassky var mikill kúlt-
úristi og fágaður, en ég áttaði mig
aldrei á Fischer, hvort hann væri
sinnisveikur eða ekki. Sennilega var
hann það, en hann var snillingur.
Fischer vildi ráðskast með sitt um-
hverfi. Einu sinni hringdi hann um
miðja nótt í Guðmund G. Þórarinsson
og vildi fara í Laugardalshöll út af
lýsingunni. Daði ljósameistari var
kvaddur til og spurði Fischer hvern-
ig hann vildi hafa þetta, hann gæti
stillt hverja einustu peru nákvæm-
lega eins og skákmeistarinn vildi.
Þegar Fischer sá að hann gæti ekki
hleypt öllu í hnút með aðfinnslum
sínum hljóp hann út.
Fischer gat með einum leik á skák-
borðinu opnað heilu ævintýraheim-
ana. Spassky sagði að allan seinni
hluta einvígisins hefði hann haldið að
hann væri með Fischer, en hann
hefði alltaf sloppið. Fischer sagði að
Spassky hefði dottið niður á nokkra
leiki, en úrslitin aldrei verið í vafa.“
Þá varð ég
hræddastur um ævina
Freysteinn rifjar upp atvik úr eld-
gosinu í Eyjum þegar hann fylgdi
ljósmyndara National Geographic of-
an í gíginn.
„Ég var í forláta regnkápu, sem ég
hafði fengið lánaða hjá Magnúsi
Finnssyni,“ segir hann. „Þegar við
vorum komnir ofan í gíginn fór að
drynja í öllu og við tókum á rás upp
úr gígnum svo það sást ekki einu
sinni slóð eftir okkur. Þá varð ég
hræddastur um ævina. Þegar við
vorum komnir upp úr fann ég að mér
var orðið heitt á bakinu. Ég fór úr
kápunni og þá hafði komist glóð í
hana og var komið stærðar brunagat.
Magnúsi brá þegar hann sá úlpuna,
en hann fékk hana bætta.“
Freysteinn segir að einn merkileg-
asti atburðurinn á ferli sínum í blaða-
mennsku hafi verið þegar hann fór til
Indlands í ágúst 1971 og horfði upp á
fæðingu Bangladesh-ríkis. „Flótta-
Morgunblaðið/RAX
Á rösklega fjögurra áratuga ferli Freysteins Jóhannssonar í blaðamennsku stendur margt upp úr. Stórslys voru erfið, en gaman þegar mannbjörg varð.
Gaman þegar allt fór á besta veg
Viðtal Karl Blöndal | kbl@mbl.is
Freysteinn Jóhannsson á að baki rúmlega fjörutíu ára feril í blaðamennsku og hápunktarnir eru margir.
Starfið gat verið erfitt þegar harmur var að kveðinn, en að sama skapi gaman þegar mannbjörg varð.
Freysteinn segir að einn merkilegasti atburð-
urinn á ferli sínum í blaðamennsku hafi verið
þegar hann fór til Indlands í ágúst 1971 og
horfði upp á fæðingu Bangladesh-ríkis.
Freysteinn ræðir við Viktor Kortsnoj 1981: „Það var skrítið að tala við
hann. Ég hélt að hann væri villimaður, en svo var hann kúltúristi, vitn-
aði í stórskáld á borð við Tolstoj og Dostojevskí og ég mátti hafa mig
allan við til að fara rétt með.“
Útsíðufrétt Freysteins
um björgun skipverj-
anna á Stapa. „Rólegur
og æðrulaus.“