Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 69
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 69
mannastraumurinn frá Austur-
Pakistan eða Bangladesh var stríður
allan sólarhringinn og ég kom meðal
annars í flóttamannabúðir og sá þá og
heyrði ýmislegt sem hefur fylgt mér
allt fram á þennan dag,“ segir hann.
„Þar á meðal var sagan um flóttafólkið
sem áði við vatn. Allir reyndu að láta
sem minnst á sér bera því pakist-
anskir hermenn voru alls staðar á
mannaveiðum. Í hópnum var ung
móðir með kornabarn sitt sem allt í
einu fór að gráta og allir flóttamenn-
irnir litu hver á annan og óttuðust að
hermennirnir myndu heyra í barninu
og ganga á hljóðið. Enginn sagði neitt
en þegar flóttamennirnir héldu áfram
ferð sinni lá lítið barn eftir í vatninu.
Móðir þess hafði tryggt ferðafélög-
unum frið til þess að þeir gætu náð til
fyrirheitna landsins fyrir líf þessa litla
barns.“
Þetta skemmtilega,
klámfengna tröll
Þrjú viðtöl standa upp úr á ferlinum í
huga Freysteins og öll birtust þau í
sérblöðum, sem fylgdu Morgun-
blaðinu.
„Þau voru við Sigurbjörn Einars-
son biskup, Davíð Oddsson og Jón
Ásgeirsson tónskáld,“ segir hann.
„Þetta voru allt saman aukablöð upp
á átta eða tólf síður þar sem var farið
yfir feril þessara manna, allt ein-
stakir persónuleikar. Sigurbjörn var
náttúrulega þessi mikli ræðusnill-
ingur og andans maður, Davíð eins
margbreytilegur og hann er og Jón
Ásgeirsson þetta skemmtilega, klám-
fengna tröll. Ég var fréttastjóri
menningarmála um tíma og Jón
gerði það þannig að þótt hann væri
með tölvu heima hjá sér lét hann
aldrei tengja sig inn á Moggann.
Hann vildi koma sjálfur með greinina
sína og afhenda hana inni á Morg-
unblaðinu. Þá fór hann eins og
stormsveipur um blaðið og æsti upp
allt og alla. Ég lagði honum alltaf til
góða klámsögu. Ég er ekki að upp-
ljóstra neinu þegar ég segi það. Í
sjónvarpinu hafði verið þáttaröð um
skóla og einn þeirra var um söng-
skólann þar sem voru viðtöl við nem-
endur. Þeir voru spurðir hvort þeir
vissu hvað kennararnir væru að
bralla á kennarastofunni. Þá segir
ein stúlkan: „Jú, jú, hann Jón Ás-
geirsson er að segja þeim klám-
sögur.“ Svo þetta var opinbert. En
Jón er líka mikill hugsuður og fræði-
maður og svo náttúrulega það mikla
tónskáld sem hann er.
Þegar Freysteinn var fréttastjóri í
innlendum fréttum var allt þjóðfélag-
ið undir. Þegar hann varð fréttastjóri
í menningunni hafði hann afmarkað
svið þjóðfélagsins á sinni könnu, en
atið var ekki minna.
„Listamennirnir gáfu öðrum ekkert
eftir í sjálfselsku og tilætlunarsemi.
Þeir gerðu alltaf rosalegar kröfur.
Fólk, sem margt var ekki á sömu póli-
tísku línu og Mogginn og lét mig vita
af því, gerði miklar kröfur um að blað-
ið sinnti því og þess fagi. Oft fékk ég
upphringingar á þessa leið: Hann
fékk heila tvo dálka, þessi, í blaðinu í
dag. Ég spurði á móti hvort þetta
væri ekki gott efni. Þá kom svarið: Ég
fékk nú bara hálfan dálk. Það var allt í
lagi með pólitíkusana, þau hundsbit
hrinu ekki á manni, en harka lista-
mannanna kom mér mest á óvart.“
Slys erfiðustu málin
Freysteinn segir að oft hafi hann
þurft að glíma við erfið mál á löngum
blaðamannsferli.
„Slys voru erfiðustu málin,“ segir
hann. „Það var siður á Morgun-
blaðinu ef einhver fórst að fá myndir
af viðkomandi. Ef fleiri en einn fórust
stunduðu hin blöðin það að láta okk-
ur safna myndunum og fá þær svo
lánaðar hjá okkur. Nokkrum sinnum
ræddi ég þetta við Matthías og kom
aldrei annað til greina hjá honum en
að við lánuðum þeim myndir. Ég
spurði hvort hann héldi að þeir
myndu lána okkur myndir af öðrum
tilefnum, en hann sagði að við ættum
ekkert að ætlast til slíks.“
Oft voru sporin þung þegar þurfti
að útvega myndir. „Ég man sér-
staklega eftir að hafa þurft að fá
mynd af ungu barni, sem hafði farist,
hjá afa þess og ömmu á heimili í
Reykjavík. Þá situr móðir barnsins
hjá þeim. Þau fara í gegnum mynda-
albúm. Fólk vissi af þessari venju
okkar og hafði undirbúið sig og jafn-
vel valið myndir sjálft. Þarna situr
móðir barnsins fyrir framan mig –
mér fannst þetta erfitt en dáðist líka
að því hvað hún var stór í sinni sorg –
og réttir mér mynd af barninu sínu:
Heldur þú að þessi mynd passi í
Morgunblaðið. Ég sagði við hana: Þú
velur þá mynd, sem þú vilt, það passa
allar myndir í Morgunblaðið.“
En blaðamennskan var líka gef-
andi. „Biddu fyrir þér, allt það fólk,
sem maður kynntist. Mér er alltaf
minnisstætt þegar maður missti bát
sinn á Breiðafirði, komst ásamt skips-
félögum sínum í björgunarbát og
fannst eftir að hafa velkst um í
klukkutíma. Ég næ sambandi við
manninn, Ólaf Tryggvason, skipstjóra
á Stapa, þegar hann var kominn í land
og spyr hvort þetta hafi ekki verið
ömurlegur klukkutími. Þá horfir þessi
maður á mig og segir: „Þetta var sex-
tíu mínútna klukkutími.“ Mér fannst
þetta lýsa viðhorfi mannsins, hvað
hann var rólegur og æðrulaus, og setti
í fyrirsögn á Mogganum og hlaut mik-
ið skens fyrir. Menn sögðu að ég væri
hinn nýi Einstein og hefði uppgötvað
að klukkutíminn væri sextíu mínútur
og full ástæða væri til að hafa það í
stórri og mikilli fyrirsögn á útsíðu
Morgunblaðsins. Það var ofsalega
gaman í svona málum þegar allt fór á
besta veg og menn björguðust.“
Öflugi sportjeppinn
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
8
7
5
Mercedes-Benz GLK er einstaklega öflugur og ríkulega búinn sportjeppi. Hann er búinn hinu háþróaða
4MATIC aldrifskerfi sem tryggir framúrskarandi aksturseiginleika og aukinn stöðugleika, jafnt á
bundnu sem óbundnu slitlagi. 4MATIC er ávallt virkt og bregst strax við breyttum akstursaðstæðum,
t.d. mikilli úrkomu, ísingu eða snjó. Dráttargetan er heil 2.400 kg og hann eyðir aðeins 6,1 l/100 km
í blönduðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til sýnis og reynsluaksturs.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz GLK 220 CDI með 7 þrepa 7 G-TRONIC PLUS sjálfskiptingu.
Verð frá 7.590.000 kr.