Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 74

Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 74
74 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 É g var rétt rúmlega tvítugur þegar ég byrjaði að skrifa í Morgunblaðið,“ segir Jóhann Hjálmarsson. „Þetta voru aðallega yfirlitsgreinar um bók- menntir og myndlist, en einhver gagnrýni líka. Þetta kom til af því að starf mitt á Pósti og síma dugði ekki og ég varð að fá mér annað starf til að lífið gengi upp. Svo var auðvit- að gífurlegur áhugi á efninu og hafði verið alveg frá því ég var unglingur, þannig að þetta var mér ekki leitt,“ segir hann og brosir við. Jóhann talaði við Matthías Johannessen, sem samþykkti að Jóhann kæmi til liðs við blaðið. „Hann sagði aðeins að ég mætti ekki birta andkristileg viðhorf,“ segir Jóhann. „Ekkert níð um Jesú, það var það eina sem hann sagði. Hann talaði ekkert um pólitík eða neitt þannig, það var ekki til umræðu.“ Á þessum tíma var pólitísk undiralda mikil. Jóhann segir að Matthías hafi vitað hvar hann stóð í pólitík. „Ég var frekar borgaralegur eða hægrisinn- aður,“ segir Jóhann. „En ég hafði verið kommi, kem frá sósíalísku heimili og var alinn upp í því. Þegar uppreisnin var barin niður í Austur- Þýskalandi 1953, innrásin gerð í Ungverjalandi 1956 og aftur í Tékkóslóvakíu 1968 treysti ég mér ekki til að fylgja þessari stefnu, gat ekki hugsað mér það.“ Árið fyrir innrásina í Ungverjaland hafði Jó- hann farið á heimsmót æskunnar í Póllandi. „Þar kynntist maður Pólverjum og fann mað- ur á því, sem þeir hvísluðu að manni bak við tjöldin, að þeir voru mjög óánægðir,“ segir hann. „Ég var því farinn að finna fyrir efasemd- um áður og þær hafa reyndar alltaf fylgt mér.“ Morgunblaðið var til húsa í Aðalstræti þegar Jóhann fór fyrst að skrifa í það 1961. „Það var frekar fjölmennt á blaðinu, en mað- ur hafði mest samskipti við ákveðna menn og þá helst Þorbjörn Guðmundsson,“ segir hann. „Svo bar Matthías ábyrgð á þessu.“ „Eitt sinn var búið að ganga frá blaðinu til prentunar og í því var grein með mynd af Matt- híasi Johannessen. Undir myndinni stóð Matt- hías Jochumsson. Við á ritstjórninni gátum bjargað þessu á síðustu stundu. Nöfnin eru lík, en ekki eru þeir líkir sem skáld.“ Nokkrum sinnum gerðist það líka að höfund- anöfn víxluðust. „Ég man eftir því að nokkrar greinar birtust merktar Jóhönnu Kristjáns- dóttur, en voru eftir mig.“ Línan var á hvolfi Jóhann segir að fyrr á árum hafi menn ávallt verið dauðhræddir við að gera mistök, enda hafi tæknin ekki verið sú sama og nú. Þegar Jóhann var að byrja í blaðamennsku var prentað með lausaletri í sátri eða „satsa“. „Ég hafði lært prentverk hjá Hafsteini Guð- mundssyni í Hólum, sem var þá sá fræknasti meðal setjara og prentara, en hætti því eftir þrjú ár og kláraði ekki,“ segir hann. „Ég var því kannski enn næmari fyrir prentverkinu. Stund- um gat verið rugl á satsinum og einu sinni fór ég niður í prentsmiðju. Menn voru þá svo upp- teknir að þeir máttu ekki vera að því að sinna mér þannig að ég fékk satsinn lánaðan, tók línu út og lét setja aðra í staðinn. Þegar þetta birtist daginn eftir var sú lína á hvolfi. Þetta voru alger mistök og eftir þetta hef ég aldrei reynt að sinna tæknilegu hliðinni. Ég dæmdi mig eig- inlega til dauða sem prentari.“ Árið 1990 kemur Jóhann inn á ritstjórnina í fullu starfi og segir að Matthías hafi tekið vel í það. „Eini ritstjórinn, sem ræddi við mig hvort ég hefði áhuga á blaðamennsku, var Sigurður Bjarnason frá Vigur,“ segir Jóhann. „Þá var ég rúmlega tvítugur og fylgdi því ekki eftir. Aðrir nefndu það ekki að fyrra bragði. Ég varð því að bjóða mig fram sjálfur.“ Þegar Jóhann byrjar að skrifa um menningu í Morgunblaðið var kalda stríðið í algleymingi og settu skotgrafir þess mark sitt á menninguna. „Það gat andað köldu,“ segir Jóhann. „Ég varð fyrir stanslausum árásum í Austra-dálkum Magnúsar Kjartanssonar í Þjóðviljanum. Af þeim var ekki annað að ráða en ég væri svikari og hefði selt mig. Stundum var þetta daglega. Ég klippti þetta alltaf út og á því dágott safn. Orðbragðið vantaði ekki. Ég var kallaður „litla skáld á grænni grein“,“ segir hann og hlær. „Ég svaraði þessu stundum, en bjóst við þessu og því skipti það mig engu máli. Svo kom að því að ég fékk frið og þá saknaði ég greinanna.“ Jóhann segir hins vegar að þetta hafi komið niður á sér sem skáldi. „Þau blöð og tímarit, sem voru hliðholl sósíal- isma, sinntu mér ekki neitt,“ segir hann. „Ef þau skrifuðu eitthvað var það helst níð.“ Jóhann segir að í Morgunblaðinu hafi verið skrifað um næstum því allt sem kom út. „Þegar ég tók við sem umsjónarmaður gagn- rýni og deildi út verkum til gagnrýnenda fannst mér það í lagi því að jákvætt væri að fá sem mest skrif um bókmenntir. Ritstjórarnir gerðu engar athugasemdir við það. Þó gat verið sárt og leiðinlegt að þurfa að segja höfundum að ekki væri hægt að skrifa um þessa bók, en við skyldum sjá til með þá næstu. Þar er ég að tala um bækur, sem mér þóttu ekki nógu góðar, það var ekki út af pólitík. Á þessum tíma var Gísli Sigurðsson ritstjóri Lesbókarinnar og ég hafði ágæt samskipti við hann. Hann birti gífurlega mikið af ljóðum og varð til titillinn Lesbókar- skáld, sem þótti niðrandi, þótt auðvitað birtust úrvalsskáld innan um. En það var mikið af fólki, sem orti sér til hugarhægðar og fékk það svo birt í Lesbókinni. Þetta fólk, sem hafði fengið kvæði í Lesbókinni, kom svo til mín með bókina sína og sagði mér að Gísli hefði tekið sér vel, en það nægði ekki alltaf. Krafan var meiri frá bók- menntadeildinni.“ Eilítið erfitt að vera skáld og gagnrýnandi um leið Jóhann var gagnrýnandi í fjóra áratugi. „Þetta er gífurlegt safn, þúsundir greina, og myndi fylla nokkrar bókahillur ef tekið yrði saman,“ segir hann. „Mér fannst eilítið erfitt að vera skáld og gagnrýnandi um leið, en það var ekki um annað að ræða og þekkt um öll lönd að menn séu skáld og gagnrýnendur um leið. En því fylgir auðvitað pressa og best hefði verið láta nægja að vera skáld, en maður þurfti að fá æski- leg laun. Lesendur gátu fundið að því að skáld væri að skrifa gagnrýni, en verst var að fengi ég góða gagnrýni sagði fólk að það væri ekki furða, ég ynni á blaðinu. Þetta var óþægilegt, en ég hafði töluverðan skráp og vandist því við að lesa um mig nánast daglega níðgreinar með stórum fullyrðingum þar sem Magnús Kjartansson kallaði mig meðal annars „hundingja“ í leiðara. Á þeim tíma var lesið úr leiðurum í útvarpinu. Ég sat með fjölskyldunni og var að drekka morgunkaffið og þá fékk fjölskyldan að heyra það að ég væri hundingi.“ Að baki bjó að Magnús var ósáttur við rit- dóm, sem hann hafði skrifað um Stefán Hörð Grímsson. „En Stefán var hissa á þessu og gerði ekkert úr þessu sjálfur,“ segir hann. „Við vorum góðir vinir. Ritdómurinn var reyndar mjög lofsam- legur, en þetta tengdist eitthvað pólitík.“ Jóhann segir að blaðið hafi iðulega verið þröngt og þá hafi efni safnast upp. Þá gat hann orðið óþolinmóður og sömuleiðis höfundar, sem biðu umfjöllunar. „Það voru ekki síst róttækir höfundar og and- stæðingar mínir í skoðunum, sem höfðu sam- band við mig til að fá ritdóm,“ segir hann. „Þeir lögðu áherslu á það, en út á við var Morg- unblaðið bara eitthvert drasl og þá var hin fræga Moggalygi mikið notuð. En eftir innrás- ina í Tékkóslóvakíu, þegar í ljós kom að meiri- hlutinn reyndist sannur, breyttist það.“ Það gat andað köldu Morgunblaðið/Árni Sæberg Jóhann Hjálmarsson byrjaði að skrifa um bókmenntir í Morg- unblaðið um tvítugt. Viðtal Karl Blöndal | kbl@mbl.is Jóhann Hjálmarsson skáld hefur gefið út fjölda ljóðabóka, þá fyrstu þegar hann var 17 ára. Hann byrjaði að skrifa um bókmenntir í Morgunblaðið í upphafi sjöunda áratugarins og gerði það í rúma fjóra áratugi. Jóhann Hjálmarsson varð fyrir stöðugum árásum af vinstri vængnum þegar hann var bókmenntagagnrýnandi Morg- unblaðsins: „Svo kom að því að ég fékk frið og þá saknaði ég greinanna.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.