Morgunblaðið - 02.11.2013, Qupperneq 74
74 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
É
g var rétt rúmlega tvítugur þegar ég
byrjaði að skrifa í Morgunblaðið,“
segir Jóhann Hjálmarsson. „Þetta
voru aðallega yfirlitsgreinar um bók-
menntir og myndlist, en einhver
gagnrýni líka. Þetta kom til af því að starf mitt á
Pósti og síma dugði ekki og ég varð að fá mér
annað starf til að lífið gengi upp. Svo var auðvit-
að gífurlegur áhugi á efninu og hafði verið alveg
frá því ég var unglingur, þannig að þetta var
mér ekki leitt,“ segir hann og brosir við.
Jóhann talaði við Matthías Johannessen, sem
samþykkti að Jóhann kæmi til liðs við blaðið.
„Hann sagði aðeins að ég mætti ekki birta
andkristileg viðhorf,“ segir Jóhann. „Ekkert níð
um Jesú, það var það eina sem hann sagði.
Hann talaði ekkert um pólitík eða neitt þannig,
það var ekki til umræðu.“
Á þessum tíma var pólitísk undiralda mikil.
Jóhann segir að Matthías hafi vitað hvar hann
stóð í pólitík.
„Ég var frekar borgaralegur eða hægrisinn-
aður,“ segir Jóhann. „En ég hafði verið kommi,
kem frá sósíalísku heimili og var alinn upp í því.
Þegar uppreisnin var barin niður í Austur-
Þýskalandi 1953, innrásin gerð í Ungverjalandi
1956 og aftur í Tékkóslóvakíu 1968 treysti ég
mér ekki til að fylgja þessari stefnu, gat ekki
hugsað mér það.“
Árið fyrir innrásina í Ungverjaland hafði Jó-
hann farið á heimsmót æskunnar í Póllandi.
„Þar kynntist maður Pólverjum og fann mað-
ur á því, sem þeir hvísluðu að manni bak við
tjöldin, að þeir voru mjög óánægðir,“ segir
hann. „Ég var því farinn að finna fyrir efasemd-
um áður og þær hafa reyndar alltaf fylgt mér.“
Morgunblaðið var til húsa í Aðalstræti þegar
Jóhann fór fyrst að skrifa í það 1961.
„Það var frekar fjölmennt á blaðinu, en mað-
ur hafði mest samskipti við ákveðna menn og þá
helst Þorbjörn Guðmundsson,“ segir hann. „Svo
bar Matthías ábyrgð á þessu.“
„Eitt sinn var búið að ganga frá blaðinu til
prentunar og í því var grein með mynd af Matt-
híasi Johannessen. Undir myndinni stóð Matt-
hías Jochumsson. Við á ritstjórninni gátum
bjargað þessu á síðustu stundu. Nöfnin eru lík,
en ekki eru þeir líkir sem skáld.“
Nokkrum sinnum gerðist það líka að höfund-
anöfn víxluðust. „Ég man eftir því að nokkrar
greinar birtust merktar Jóhönnu Kristjáns-
dóttur, en voru eftir mig.“
Línan var á hvolfi
Jóhann segir að fyrr á árum hafi menn ávallt
verið dauðhræddir við að gera mistök, enda hafi
tæknin ekki verið sú sama og nú. Þegar Jóhann
var að byrja í blaðamennsku var prentað með
lausaletri í sátri eða „satsa“.
„Ég hafði lært prentverk hjá Hafsteini Guð-
mundssyni í Hólum, sem var þá sá fræknasti
meðal setjara og prentara, en hætti því eftir
þrjú ár og kláraði ekki,“ segir hann. „Ég var því
kannski enn næmari fyrir prentverkinu. Stund-
um gat verið rugl á satsinum og einu sinni fór ég
niður í prentsmiðju. Menn voru þá svo upp-
teknir að þeir máttu ekki vera að því að sinna
mér þannig að ég fékk satsinn lánaðan, tók línu
út og lét setja aðra í staðinn. Þegar þetta birtist
daginn eftir var sú lína á hvolfi. Þetta voru alger
mistök og eftir þetta hef ég aldrei reynt að
sinna tæknilegu hliðinni. Ég dæmdi mig eig-
inlega til dauða sem prentari.“
Árið 1990 kemur Jóhann inn á ritstjórnina í
fullu starfi og segir að Matthías hafi tekið vel í
það.
„Eini ritstjórinn, sem ræddi við mig hvort ég
hefði áhuga á blaðamennsku, var Sigurður
Bjarnason frá Vigur,“ segir Jóhann. „Þá var ég
rúmlega tvítugur og fylgdi því ekki eftir. Aðrir
nefndu það ekki að fyrra bragði. Ég varð því að
bjóða mig fram sjálfur.“
Þegar Jóhann byrjar að skrifa um menningu í
Morgunblaðið var kalda stríðið í algleymingi og
settu skotgrafir þess mark sitt á menninguna.
„Það gat andað köldu,“ segir Jóhann. „Ég
varð fyrir stanslausum árásum í Austra-dálkum
Magnúsar Kjartanssonar í Þjóðviljanum. Af
þeim var ekki annað að ráða en ég væri svikari
og hefði selt mig. Stundum var þetta daglega.
Ég klippti þetta alltaf út og á því dágott safn.
Orðbragðið vantaði ekki. Ég var kallaður „litla
skáld á grænni grein“,“ segir hann og hlær. „Ég
svaraði þessu stundum, en bjóst við þessu og því
skipti það mig engu máli. Svo kom að því að ég
fékk frið og þá saknaði ég greinanna.“
Jóhann segir hins vegar að þetta hafi komið
niður á sér sem skáldi.
„Þau blöð og tímarit, sem voru hliðholl sósíal-
isma, sinntu mér ekki neitt,“ segir hann. „Ef
þau skrifuðu eitthvað var það helst níð.“
Jóhann segir að í Morgunblaðinu hafi verið
skrifað um næstum því allt sem kom út.
„Þegar ég tók við sem umsjónarmaður gagn-
rýni og deildi út verkum til gagnrýnenda fannst
mér það í lagi því að jákvætt væri að fá sem
mest skrif um bókmenntir. Ritstjórarnir gerðu
engar athugasemdir við það. Þó gat verið sárt
og leiðinlegt að þurfa að segja höfundum að
ekki væri hægt að skrifa um þessa bók, en við
skyldum sjá til með þá næstu. Þar er ég að tala
um bækur, sem mér þóttu ekki nógu góðar, það
var ekki út af pólitík. Á þessum tíma var Gísli
Sigurðsson ritstjóri Lesbókarinnar og ég hafði
ágæt samskipti við hann. Hann birti gífurlega
mikið af ljóðum og varð til titillinn Lesbókar-
skáld, sem þótti niðrandi, þótt auðvitað birtust
úrvalsskáld innan um. En það var mikið af fólki,
sem orti sér til hugarhægðar og fékk það svo
birt í Lesbókinni. Þetta fólk, sem hafði fengið
kvæði í Lesbókinni, kom svo til mín með bókina
sína og sagði mér að Gísli hefði tekið sér vel, en
það nægði ekki alltaf. Krafan var meiri frá bók-
menntadeildinni.“
Eilítið erfitt að vera skáld
og gagnrýnandi um leið
Jóhann var gagnrýnandi í fjóra áratugi. „Þetta
er gífurlegt safn, þúsundir greina, og myndi
fylla nokkrar bókahillur ef tekið yrði saman,“
segir hann. „Mér fannst eilítið erfitt að vera
skáld og gagnrýnandi um leið, en það var ekki
um annað að ræða og þekkt um öll lönd að menn
séu skáld og gagnrýnendur um leið. En því
fylgir auðvitað pressa og best hefði verið láta
nægja að vera skáld, en maður þurfti að fá æski-
leg laun. Lesendur gátu fundið að því að skáld
væri að skrifa gagnrýni, en verst var að fengi ég
góða gagnrýni sagði fólk að það væri ekki furða,
ég ynni á blaðinu. Þetta var óþægilegt, en ég
hafði töluverðan skráp og vandist því við að lesa
um mig nánast daglega níðgreinar með stórum
fullyrðingum þar sem Magnús Kjartansson
kallaði mig meðal annars „hundingja“ í leiðara.
Á þeim tíma var lesið úr leiðurum í útvarpinu.
Ég sat með fjölskyldunni og var að drekka
morgunkaffið og þá fékk fjölskyldan að heyra
það að ég væri hundingi.“
Að baki bjó að Magnús var ósáttur við rit-
dóm, sem hann hafði skrifað um Stefán Hörð
Grímsson.
„En Stefán var hissa á þessu og gerði ekkert
úr þessu sjálfur,“ segir hann. „Við vorum góðir
vinir. Ritdómurinn var reyndar mjög lofsam-
legur, en þetta tengdist eitthvað pólitík.“
Jóhann segir að blaðið hafi iðulega verið
þröngt og þá hafi efni safnast upp. Þá gat hann
orðið óþolinmóður og sömuleiðis höfundar, sem
biðu umfjöllunar.
„Það voru ekki síst róttækir höfundar og and-
stæðingar mínir í skoðunum, sem höfðu sam-
band við mig til að fá ritdóm,“ segir hann. „Þeir
lögðu áherslu á það, en út á við var Morg-
unblaðið bara eitthvert drasl og þá var hin
fræga Moggalygi mikið notuð. En eftir innrás-
ina í Tékkóslóvakíu, þegar í ljós kom að meiri-
hlutinn reyndist sannur, breyttist það.“
Það gat andað köldu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhann
Hjálmarsson
byrjaði að
skrifa um
bókmenntir í
Morg-
unblaðið um
tvítugt.
Viðtal Karl Blöndal | kbl@mbl.is
Jóhann Hjálmarsson skáld hefur gefið út fjölda ljóðabóka, þá fyrstu þegar hann var 17 ára. Hann byrjaði að skrifa um
bókmenntir í Morgunblaðið í upphafi sjöunda áratugarins og gerði það í rúma fjóra áratugi.
Jóhann Hjálmarsson varð fyrir stöðugum
árásum af vinstri vængnum þegar hann
var bókmenntagagnrýnandi Morg-
unblaðsins: „Svo kom að því að ég fékk
frið og þá saknaði ég greinanna.“