Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 83
Morgunblaðið árin 1986 til1995 var besti vinnustaðursem hægt var að hugsa
sér. Eigendur útgáfufélagsins Ár-
vakurs voru af þeim gamla, góða
skóla sem vissi að gæði fjölmiðils
velta á fólkinu sem við hann vinn-
ur, ekki síst blaðamönnunum. Þeir
sýndu ótal sinnum í verki að þeim
var annt um sitt fólk. Það var vel
farið með okkur og við vissum það.
Þess vegna var líka ánægjulegt að
leggja mikið á sig til að ná að gera
sitt besta.
Og Matthías var minn mentor.
Sá stórbrotni maður tók á móti
gemlingnum mér sem hélt að ég
vissi allt og gæti allt. Hann var
fljótur að láta mig skilja að ég vissi
ekki neitt en myndi hugsanlega
geta býsna mikið, ef ég væri til í að
hlusta og læra, vera heiðarleg og
gagnrýnin á verk mín og vinnu-
brögð. Ég blómstraði í Matthías-
arskólanum og mér leið ákaflega
vel.
Ég hlakkaði alltaf til að mæta í
vinnuna. Samstarfsfólkið var upp
til hópa skemmtilegt, miklir kar-
akterar og húmoristar í hverju
horni – en umfram allt góðar
manneskjur. Verkefnin á menning-
arritstjórninni voru alltaf ögrandi;
vinnudagurinn stundum ljóna-
Besti vinnu-
staður sem
hægt var að
hugsa sér
Morgunblaðið/Ómar
Súsanna Svavarsdóttir segist þakklát fyrir áratug „í návígi við skapandi hluta þjóðarinnar, hjá góðu fólki og kyn-
slóðinni sem skóp siðareglur fyrir blaðamenn og skildi manna best að öllu frelsi fylgir mikil ábyrgð“.
gryfja, stundum hús fullt af kólibr-
ífuglum. Íslenska listamannaflóran
litrík og skapmikil og alveg lygi-
lega uppátækja- og framkvæmda-
söm. Ég skal aldrei bakka með það
að það eru listamennirnir með sinn
skapandi hug og djarfa hjarta sem
munu halda nafni þessarar litlu ey-
þjóðar á lofti um allan aldur. Það
voru forréttindi að fá að kynnast
þeirri staðreynd og sú þjóð sem
heldur ekki utan um og styður sína
listamenn er aum.
Svo kom sá dagur að heiðarleik-
inn og sjálfsgagnrýnin sagði mér
að ég væri farin að endurtaka mig
og hætt að gera góða hluti. Það
væri kominn tími á nýja skóla, tími
Súsanna Svavarsdóttir
rithöfundur
til að kveðja mitt kæra Morg-
unblað. Því fylgdi ekki söknuður,
bara gleði og þakklæti yfir því að
hafa átt um tíu ár í návígi við skap-
andi hluta þjóðarinnar, hjá góðu
fólki og kynslóðinni sem skóp siða-
reglur fyrir blaðamenn og skildi
manna best að öllu frelsi fylgir
mikil ábyrgð.
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 83