Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 86
Kristín Árnadóttir rifjar upp að áminningin hafi alltaf verið sú að „meitluð
hugsun og vönduð skrif væru skilyrði fyrir því að texti væri birtur“.
Morgunblaðið er 100 ára, jafngamalt Litlu haf-meyjunni á Löngulínu í Kaupmannahöfn. Blaðiðog hafmeyjan eiga ef til vill fátt sameiginlegt
annað en aldur og forna frægð. Morgunblaðið var lengi
akkeri í íslenskum fjölmiðlaheimi og borið inn á flest
heimili landsins. Litlu hafmeyjuna þekkja allir sem
kennileiti og táknmynd í hinum forna höfuðstað Íslands
og úr ævintýrinu eftir H.C. Andersen sem flest börn
þekktu. Hún hefur „hímt á steini sínum í öllum veðrum“
eins og Morgunblaðið komst að orði í frétt um hana fyrir
nokkrum árum. Bæði hafa lifað tímana tvenna, Mogginn
og meyjan.
Áður en lengra er haldið skal játað að litla hafmeyjan
var fyrsta viðfangsefni sem óreyndri blaðakonu var falið
að skrifa um á stuttum ferli sínum hjá Morgunblaðinu.
Líklega eftir að hafmeyjan litla varð einu sinni sem oftar
fyrir barðinu á mótmælendum og yfir hana hellt blárri
málningu haustið 1986. Síðan hefur hún mátt þola aðför
margvíslega en endurheimt virðingu sína fyrir þraut-
seigju þeirra sem láta sig varða hag hennar og stöðu.
Það kom vel á vondan sem hafði séð kvennapólitísk
skrif í hillingum að fá úthlutað þessu litla verkefni, og hin
nakta dreymna mær var vissulega á skjön við þá mynd
sem kvennabaráttan vildi setja í öndvegi.
Öll viðfangsefni bar engu að síður að taka alvarlega og
áminningin var alltaf sú að meitluð hugsun og vönduð
skrif væru skilyrði fyrir því að texti væri birtur. Og
Mogginn gerði kröfu um að greint væri á milli aðalatriða
og aukaatriða.
Þótt minn tími á Morgunblaðinu væri stuttur, nánast
fleygaður á milli barneigna, finnst mér ávallt að það hafi
eignast í mér hlutdeild í áratugi – og ég í því. Þetta var
tími mikillar samfélagslegrar gerjunar. Vigdís var for-
seti, Kvennalistinn breytti umræðuhefðinni á Alþingi,
Kvennaframboðskonur í borgarstjórn Reykjavíkur neit-
uðu að sitja undir háðulegum glósum um konur og mót-
mæltu slíkum orðum og fegurðarsamkeppum með eft-
irminnilegum hætti. Vakningin var almenn og umræðan
áræðin og krefjandi. Morgunblaðið braut í blað, gekk á
svig við málfræðireglur svo ekki þyrfti að vísa til forset-
ans í karlkyni, en mikið þurfti til.
En eftir stendur að síst er mér sama um örlög litlu haf-
meyjunnar á Löngulínu og megi hún standa af sér allar
hremmingar.
Megi auðna jafnframt fylgja jafnaldranum, mínum
gamla vinnustað, og vinum og félögum frá árum áður.
Morgunblaðið/Ómar
Fyrsta verkefni Kristínar var að skrifa um spellvirki á
litlu hafmeyjunni, jafnöldru Morgunblaðsins.
Kristín A. Árnadóttir
sendiherra
Mogginn og meyjan
86 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Ég held að ég hafi verið send í tvær al-vöru ferðir á vegum Morgunblaðsins.Önnur var til Dalvíkur. Hin var til
London. Ég vann á föstudagskálfinum Dag-
legu lífi og allt var mögulegt efni. Þegar ég
var unglingur hafði ég setið yfir Sunnudags-
mogganum í dagrenningu eftir að heim var
komið af sveitaböllunum, sötrað seríós úr skál
og lesið um hugmyndir, atburði og áhugavert
fólk, án þess að hugsa út í það að blaðamenn-
irnir þyrftu að fá hugmyndir að þessum efn-
istökum sjálfir.
En á ritstjórninni lærðist fljótt sá siður: Að
vera vakandi fyrir (góðu) efni. Þess vegna –
og vegna þess að mér fannst óþægilegt að
blaðið borgaði undir mig heila utanlandsferð
til þess að skrifa um eina ferðasýningu – kom
ég heim frá London með efni í tíu greinar í
farteskinu. Ég var jafnvel farin að taka viðtöl
við leigubílstjórana. Einn hafði átt föður í
herþjónustu á Íslandi og út frá því spannst
samtal sem rataði í blaðið. Charles Dickens-
veitingahúsið sem ég snæddi á varð önnur
grein, skóli íslenskra barna sú þriðja. Svo
heyrði ég um skyndileg mótmæli við gríska
sendiráðið, þar voru á ferð Kúrdar sem
kveiktu í sér vegna frétta um að Grikkir
hefðu framselt einn leiðtoga þeirra, Abdullah
Öcalan, til handtöku. Ég hoppaði upp í taxa
og sagði: Gríska sendiráðið! Sorry, miss, þar
eru uppþot, svaraði bílstjórinn. Einmitt, sagði
ég sigri hrósandi án þess beint að vita hverjir
Kúrdar væru eða hvað þeir vildu. Einhvern
veginn lánaðist mér samt að ná spjalli við full-
trúa úr útlagastjórn þeirra og næst rankaði
ég við mér í höfuðstöðvum Reuters þar sem
Einar Falur Ingólfsson myndstjóri hafði sam-
bönd; þar tóku menn að sér að framkalla vett-
vangsmyndir mínar og víra til Íslands. Undir
miðnætti las ég svo myndatextana fyrir í
svartan skífusíma og fannst ég vera að rap-
portera úr heimsstyrjöld.
Ég efast um að ég hafi skrifað nokkra næt-
urvinnu á tíu-greina-ferðina, hún lýsir ástríðu
ungra blaðamanna sem finnst þeir þurfa að
koma allri veröldinni á prent.
Ég hafði verið ráðin inn af Matthíasi
Johannessen, öðrum tveggja ritstjóra. At-
vinnuviðtalið var um það bil að hefjast þegar
hann leit á mig og spurði hvort það hefði ver-
ið ég sem skrifaði fluggreinarnar. Ég játti
því, en þær hafði hann beðið mig að skrifa
þegar ég kjarkaði mig upp í að hringja í blað-
ið hálfu ári fyrr til þess að bjóða til birtingar
það sem ég taldi vera áríðandi grein um
Skakka turninn í Pisa. Matthías hafði í stað-
inn beðið mig um að lýsa pílagrímaflugi ís-
lenskra ungmenna í þremur greinum og sagði
nú að ég hefði gert það sem um var beðið –
það dygði. Ritarinn gaf mér bendingu um að
viðtalinu væri lokið.
Síðar, ef maður hætti sér upp á rit-
stjórahæðina í ræfildómi sínum, var manni
auðveldlega kippt inn í spjall þar sem öðruvísi
flug bar á góma, skáldlegt og streymandi, og
maður fékk innsýn í það hvernig praktísku
dagblaði var stýrt með menningarlegum
slætti, og öfugt.
Það sem lærðist á Morgunblaðsárunum
gildir allt enn, því auk hugarflugsins hafði það
að gera með góð vinnubrögð. Ungur blaða-
maður lærði að taka ábyrgð á eigin efni, bæði
inntaki og formi. Þegar prófarkalesararnir
hringdu var eins gott að standa á sínu, eða
vera búinn undir lærdómsríkt samtal. Ljós-
myndararnir bættu efnið undantekning-
arlaust og ómetanlegt var líka að ná síðustu
pennastrikum alvöru útlitshönnuða sem hand-
teiknuðu allar síður – áður en umbrotsforritin
tóku yfir. Valgerður Þ. Jónsdóttir, lengi yfir-
maður á Daglegu lífi, var ein þeirra og sýndi
fram á að unglingarnir yfir seríósskálunum
sofna síður ef opnurnar eru líflegar.
Eldveggur milli auglýsingadeildar og rit-
stjórnar var annað sem prentaðist inn í mann
fyrstu árin, kurteisi við viðmælandann, virð-
ing fyrir tíma annarra, gagnleg skoðanaskipti
og frjó samvinna – þetta hljómar eins og hall-
ærisfrasar úr kynningarbæklingi, en lýsir því
sem ég vil kalla tíu ára óviðjafnanlegt starfs-
nám á ritstjórn Morgunblaðsins.
Öll veröldin á prent
Sigurbjörg Þrastardóttir
rithöfundur
Morgunblaðið/Ómar
„Þetta hljómar eins og hallærisfrasar úr kynningarbæklingi, en lýsir því sem ég vil kalla tíu
ára óviðjafnanlegt starfsnám á ritstjórn Morgunblaðsins,“ segir Sigurbjörg Þrastardóttir.