Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 87
LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 87
Ég man ekki hvenær ég afréð að verðablaðamaður en það var líkast til nokkuðsnemma á lífsleiðinni. Tólf ára gamall
las ég Morgunblaðið spjaldanna á milli á hverj-
um degi og almennur fréttaáhugi varð
snemma mikill. Ég var ráðinn til starfa á við-
skiptablaði Morgunblaðsins vorið 1995, þá ný-
útskrifaður úr Háskóla Íslands. Atvinnu-
ástandið var ekki gott á þessum tíma og ég
man að ég var þessu tækifæri afar feginn.
Mogginn var góður skóli. Vinnutíminn var
oft langur og vinnuhraðinn mikill en fyrir vikið
var heldur aldrei leiðinlegt í vinnunni. Í hröðu
umhverfi var endurgjöfin á frammistöðuna þó
oft af skornum skammti. Mig minnir að eftir
fyrstu greinina sem ég skrifaði hafi ég fengið
stutt og laggott „þetta er fínt“ frá næsta yfir-
manni og þar með var það afgreitt.
Næsta hrós sem ég man eftir fólst í nokkuð
löngum reiðilestri frá Matthíasi Johannessen,
um ári síðar fyrir að ofnota forsetningar í text-
um. Minnir að „sem að“ hafi verið sökudólg-
urinn í það skiptið. Matthías lauk síðan langri
yfirhalningu með: „því annars er þetta svo gott
hjá þér“. Fréttastjórinn sem fylgdi mér hálf
ráðvilltum út klappaði mér á bakið og tjáði
mér að ég mætti líta á þetta sem mikið hrós.
Ég var þó ekki alveg sannfærður í fyrstu.
Það sem mér er þó alltaf minnisstæðast var
góður starfsandi. Blaðamenn voru flestir í
þessu starfi af lífi og sál og Morgunblaðið eini
vinnustaðurinn sem þar kom til greina. Rit-
stjórar blaðsins á þeim tíma, þeir Styrmir og
Matthías, áttu að öðrum ólöstuðum mestan
heiður af þessu. Þeir voru afar gott tvíeyki,
ólíkir um margt, en lögðu greinilega hjarta sitt
og sál í blaðið. Vinnusemi Styrmis var nærri
ómannleg að manni fannst og maður varð þess
fljótt áskynja að hann las stærstan hluta blaðs-
ins á hverjum degi áður en það fór í prent. Víð-
tæk þekking hans og skilningur á þjóðfélaginu
var og er enn aðdáunarverður. Matthíasi
kynntist ég minna í starfi mínu en ástríða hans
fyrir blaðinu var engu minni.
Það voru ekki hástemmdar hvatningar-
ræður sem drifu mann áfram heldur fordæmi
þeirra í störfum sínum og augljós metnaður og
hugsjón í rekstri blaðsins. Ritstjórnarstefna
þeirra hafði betra samfélag að leiðarljósi og
blaðið studdist við góð gildi á borð við aukið
lýðræði, frjáls viðskipti og framþróun lands-
ins. Þessi stefna veitti mér innblástur í starfi,
gerði það skemmtilegra og þýðingarmeira fyr-
ir vikið og átti vafalítið sinn þátt í óbilandi
áhuga á þessum málum allar götur síðan.
Það er sagt að allir starfsmenn Morgun-
blaðsins sem hverfi til annarra starfa endi þar
alltaf aftur á endanum. Ég er sjálfsagt undan-
tekningin sem sannar þá reglu. Þó munaði afar
litlu að ég snéri aftur fjórum árum eftir að ég
hætti en spennandi tilboð úr annarri átt kom í
veg fyrir það. Ekki sá ég eftir því vali en þó
hafa fáir vinnustaðir á ferli mínum til þessa
haft meiri áhrif á mig en Mogginn. Ég hugsa
því alltaf með hlýhug og ákveðnum söknuði til
blaðsins og þeirra ára sem ég starfaði þar.
Mogginn reyndist mér afar gott veganesti.
Mogginn var gott veganesti
Þorsteinn Víglundsson var blaðamaður á viðskiptaritstjórn Morgunblaðsins: „Vinnutíminn
var oft langur og vinnuhraðinn mikill en fyrir vikið var heldur aldrei leiðinlegt í vinnunni.“
Þorsteinn Víglundsson
framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins
INNRÉTTINGAR
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK
SÍMI: 530-2800 · www.ormsson.is
Stofnað 1922
SAMFERÐAMORGUNBLAÐINU Í 90ÁR
– alltaf með leiðandi vörumerki:
Heillaóskir til Morgunblaðsins – það lengi lifi !
SÍÐUMÚLA 9 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2900
samsungsetrid . is