Morgunblaðið - 02.11.2013, Blaðsíða 90
H
inn 25. febrúar árið 1964 fengu lesendur Morg-
unblaðsins að sjá „Landgönguna miklu“. Um var að
ræða skopteikningu eftir uppfinningamanninn og
teiknarann Sigmúnd Jóhannsson úr Vestmanna-
eyjum, en áður hafði hann teiknað forsíðumyndir
fyrir tímarit eins og Vikuna og Fálkann. Myndin vakti nokkra at-
hygli og birtust myndir Sigmúnds með óreglulegu millibili í
blaðinu næstu árin, tvær til þrjár á viku, en Sigmúnd var þá verk-
stjóri í frystihúsi.
Sigmúnd fæddist 22. apríl 1931 í Noregi. Faðir hans var ís-
lenskur en móðir hans norsk. Hann ólst upp fyrstu árin á Akur-
eyri. Sigmúnd eignaðist konu úr Vestmannaeyjum, Helgu Ólafsdóttur, og bjó þar
mestalla ævi sína. Einnig var hann uppfinningamaður sem fann upp ýmsar nýlundur
í sjávarútvegi, eins og til dæmis gelluvél sem gat skorið rúmlega þúsund gellur á
klukkustund og sjálfvirkan sleppibúnað fyrir gúmbjörgunarbáta sem hefur bjargað
mörgum mannslífum.
Þegar Vestmannaeyjagosið hófst 1973 gerðist Sigmúnd fastráðinn teiknari hjá
Morgunblaðinu og urðu skopteikningar hans aðalstarf. Hann féllst þó aldrei á það að
orðið „skopteikning“ væri réttnefni yfir ævistarfið. „Þarna er bara verið að sýna
daglegt líf og atburði í þessu ljósi. Bæði til að fólk geti haft gaman af því og skilji
hvað er að gerast, jafnvel á bak við tjöldin,“ sagði hann í viðtali við Morgunblaðið ár-
ið 2004.
Samstarfi Morgunblaðsins og Sigmúnds lauk snögglega í október 2008 og söknuðu
margir lesendur hans af síðum Morgunblaðsins. Síðasta mynd Sigmúnds fjallaði um
þá staðreynd að Bretar ættu næst að sinna loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafs-
bandalagsins, þó að Íslendingar væru þá á hryðjuverkalistanum alræmda. Sigmúnd
lagði pennann á hilluna eftir það. Sigmúnd lést 19. maí árið 2012, 81 árs að aldri, eftir
erfið veikindi.
Ungur borgarfulltrúi
hefur hér fundið
syndaselinn Gunnar
Thoroddsen, varafor-
mann Sjálfstæðis-
flokksins.
Birtist 15. apríl 1976.
Aldarspegill í
svörtu og hvítu
Skopteikningar Sigmúnds Jóhannssonar uppfinn-
ingamanns settu sterkan svip á blaðið í meira en
fjörutíu ár. Sigmúnd hitti í teikningum sínum
naglann oft á höfuðið.
„Jólasveinn ársins er að
sjálfsögðu stóla-krækir.“
Birtist 9. janúar 1986.
„Við ætlum öll að fá
eins og hann.“
Birtist 1. september 2004.
„Landgangan mikla.“ Fyrsta mynd
Sigmúnds sem birtist í Morgun-
blaðinu var af fyrstu landgöngunni í
Surtsey, þegar blaðamenn Paris
Match urðu á undan vísindamönnum í
eyna og konur voru með í för.
Birtist 25. febrúar 1964.
„Jæja. Þá erum við
búnir með síldina!!!“
Birtist 28. febrúar 1970.
„Nei — nei. Þetta
má ekki, Valur minn.
Láttu dugga-dugg í
dótahilluna aftur,
góði!“
Birtist 4. desember
1985.
90 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Sigmúnd
Jóhannsson