Morgunblaðið - 02.11.2013, Side 94
F
orsíður Morgunblaðsins frá upphafi
eru á sinn hátt merkileg heimild um
sögu Íslands og Íslendinga og raun-
ar heimsbyggðarinnar allrar. Í 100
ár hefur blaðið skýrt frá öllum stór-
viðburðum innanlands og utan eins og þeir
hafa blasað við þegar þeir gerðust. Stundum
horfa þessir viðburðir öðruvísi við þegar þeir
eru löngu seinna komnir í sögubækurnar.
Ekki furða að blaðafréttir eru stundum kall-
aðar „fyrsta uppkast sögunnar“.
Myndirnar sem hér eru birtar eru aðeins
örlítið sýnishorn af forsíðufréttum blaðsins í
heila öld. Val verður alltaf umdeilanlegt. En
myndirnar ættu að gefa hugmynd um hvernig
blaðið hefur sagt frá nokkrum stóratburðum
undanfarinna áratuga.
Íslendingar fengu fullveldi árið 1918 og
Morgunblaðið birti sambandslagasáttmálann í
heild á sex síðum á íslensku og dönsku. Sér-
stakt aukablað var gefið út í fyrsta sinn til að
flytja fréttina. Fyrirsögnin á forsíðunni var
„Nýi sáttmáli“. Heitið vísaði til „Gamla sátt-
mála“ frá 1262 þegar Íslendingar glötuðu
sjálfstæði sínu. Fréttir af sjálfstæðismálinu
áttu eftir að vera áberandi í blaðinu næstu
áratugina fram að lýðveldisstofnun 1944.
Áratugum saman voru auglýsingar hafðar á
forsíðu í stað frétta. Frá því var ekki vikið
nema þegar stórtíðindi urðu. Ein slík voru ár-
ið 1931 þegar Tryggvi Þórhallsson forsætis-
ráðherra rauf þing án þess að gefa alþing-
ismönnum kost á að koma sér saman um nýja
ríkisstjórn. Þetta taldi Morgunblaðið valda-
rán. „Einræðisstjórn“ var fyrirsögnin yfir
þvera forsíðuna af því tilefni.
Þegar Bretar hernámu Ísland í maí 1940
var búið að prenta hluta af upplagi blaðsins.
Pressan var stöðvuð og tókst þá að koma
fréttinni að í hluta upplagsins. Fréttir af sam-
skiptum við aðrar þjóðir í blíðu og stríðu og
togstreita innanlands vegna þeirra eru gjarn-
an á forsíðunni næstu árin: Hervernd Banda-
ríkjanna 1941, Keflavíkursamningurinn 1946,
inngangan í NATO og óeirðirnar við Alþing-
ishúsið 1949, koma varnarliðsins 1951 og land-
helgisstríðin og mótmælafundirnir á sjötta
áratugnum og áttunda áratugnum.
Sambandslagasáttmálinn 1918 var birtur í
heild í blaðinu á íslensku og dönsku.
Mikið uppnám varð þegar Tryggvi Þórhalls-
son sendi Alþingi heim árið 1931.
Lýðveldi stofnað og fyrsti forseti Íslands
kjörinn á Þingvöllum 1944.
Heimsstyrjöldin nær til Íslands. Hernám
Breta 10. maí 1940.
Bústaður forsætisráðherra á Þingvöllum
brennur í júlí 1970.
Handritin heim. Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra tekur á móti Flateyjarbók 1971.
Vigdís verður forseti árið 1980, fyrst kvenna
til að gegna slíku embætti.
Fundur forseta Bandaríkjanna og leiðtoga
Sovétríkjanna í Reykjavík 1986.
Stórviðburðir á
forsíðum í 100 ár
Forsíður Morgunblaðsins frá 1913 til 2013 endurspegla á
sinn hátt sögu Íslands og heimsins alls í heila öld
94 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
„Sá voðaatburður hefir orðið hér í bænum,
sem eigi á sinn líka í annálum Reykjavíkur
eða landsins, og þó víðar sé leitað.“
Þannig hófst frétt á forsíðu Morgunblaðs-
ins 17. nóvember 1913 undir þriggja dálka
fyrirsögn „Bróðurmorð í Reykjavík“ og undir-
fyrirsögninni „Júlíana Jónsdóttir byrlar Eyjólfi
Jónssyni, bróður sínum, eitur, sem verður
honum að bana.“ Með fréttinni fylgdi stór
teikning af húsinu nr. 13 við Vesturgötu,
Dúkskoti, þar sem hinn látni bjó og lagðist
banaleguna.
Þessi forsíða hefur orðið fræg í sögunni,
því hér getur að líta fyrstu alíslensku frétta-
myndina. Það var Árni Óla blaðamaður sem
rissaði upp frummyndina en Bang bíóstjóri í
Nýja bíói skar í linoleum. Tæki til prent-
myndagerðar voru þá engin til í landinu.
Næstu daga var þessari tækni beitt áfram og
birtust þá andlitsmyndir af hinum myrta og
morðingjanum.
Það var ekki aðeins myndbirtingin sem braut í blað, heldur ekki síður fréttin sjálf.
Aldrei áður hafði íslenskt blað fjallað svo djarflega um glæpamál. Vilhjálmur Finsen
ritstjóri rifjaði seinna upp að fréttin hefði vakið mikla gremju meðal lesenda. „Fólkinu
þótti syndsamlegt að segja svo opinskátt frá öllum einstökum atburðum þessa sorg-
lega viðburðar sem þar var gert,“ skrifar hann í endurminningum sínum. „Síminn
þagði ekki allan þennan dag, ég var skammaður eins og hundur og það var sagt að
Morgunblaðið væri ekki lesandi o.s.frv. Það var jafnvel hringt til konu minnar og hún
beðin að hafa áhrif á mig til batnaðar.“ Árni Óla segir að hin hörðu viðbrögð hafi orð-
ið til þess að Vilhjálmur Finsen dró í land með fréttaflutning af afbrotamálum. Hafi
hann þó verið sáróánægður með það og kallað undanhald.
FYRSTA INNLENDA FRÉTTAMYNDIN 1913
Bróðurmorð í Reykjavík
Fyrsta innlenda fréttamyndin.