Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 98

Morgunblaðið - 02.11.2013, Page 98
98 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013 Margir eftirminnilegir einstaklingar hafa sett svip sinn á fréttaritarahópinn og Morgunblaðið. Ef aðeins er litið til síð- ustu áratuga dugir að nefna Sigurð Pét- ur Björnsson (Silla) á Húsavík, Árna Helgason í Stykkishólmi, Björn Jóns- son í Bæ og Sverri Pálsson á Akureyri. Þessir menn voru allir stofnfélagar Okk- ar manna og raunar einnig heiðurs- félagar og þjónuðu lesendum Morgun- blaðsins í áratugi. Marga fleiri góða menn og konur mætti nefna sem lagst hafa á árarnar með Morgunblaðinu. Fréttaritarar Morgunblaðsins mynda félagsskapinn Okkar menn sem starfað hefur í 28 ár. Hugmynd stofnendanna kemur fram í tilgangi félagsins sem er að efla og treysta Morgunblaðið og vinna að sameiginlegum hagsmuna- málum fréttaritara blaðsins. Þetta tvennt var talið fara mjög vel saman og það varð kjarninn í lögum félagsins. Félagið var stofnað 12. apríl 1985 fyr- ir forgöngu Helga Kristjánssonar í Ólafsvík og Úlfars Ágústssonar á Ísa- firði en sá síðarnefndi varð fyrsti for- maður félagsins. Á þeim tíma voru um 100 fréttaritarar starfandi og margir mikilvirkir. Sóttu þeir aðalfundi annað hvert ár og félagið gaf út fréttabréf með margvíslegu fræðsluefni sem seinna var miðlað á sérstökum vef. Fræðslu- námskeið hafa verið haldin í samvinnu við Morgunblaðið, ljósmynda- samkeppnir og ljósmyndasýningar sem víða hafa farið. Sigurður Jónsson á Selfossi tók við formennsku af Úlfari og síðan Grímur Gíslason í Vestmannaeyjum og loks nú- verandi formaður, Gunnlaugur Árnason í Stykkishólmi. Jón Sigurðsson á Blönduósi hefur manna lengst setið í stjórn en hann hefur verið gjaldkeri Okkar manna í 26 ár. Árni Helgason Sverrir Pálsson Björn Jónsson FÉLAGIÐ OKKAR MENN HEFUR STARFAÐ Í 28 ÁR Sigurður Pétur Björnsson Eftirminnilegir fréttaritarar „Aðalatriðið er að kynna sér söguna, athuga hvernig Katla hefur hagað sér í gegnum aldirnar,“ segir Jónas Er- lendsson í Fagradal sem er ávallt á Kötluvaktinni, bæði sem íbúi í Mýrdal og fréttaritari. Bær Jónasar stendur það hátt að hann þarf væntanlega ekki að yfirgefa heimili sitt vegna jökulhlaupsins. Í staðinn hefur hann velt því mikið fyrir sér hvert best væri að fara til að ná fréttamyndum af ham- förunum. Hann hefur helst augastað á Háfelli sem stend- ur hátt með endurvarpsstöðvar fyrir sjónvarp og síma. Þar segist hann sjá til eldstöðvarinnar og einnig skriðjök- ulinn sem búast má við að hleypi jökulvatninu út. Þá gefur hann sér að hlaupið komi í farveg Múlakvíslar, eins og oft- ast hefur verið og gerðist í hlaupi fyrir tveimur árum þegar brúna tók af. „Það verður mikið öskufall í upphafi og það ræðst af vindátt hvort hægt er að komast eitthvað. Ef hann verður norðanstæður sér maður ekki neitt og verður að halda sig heima,“ segir Jónas. Eins getur það ráðið miklu um svig- rúm ljósmyndarans hvenær sólarhringsins Katla gýs og hvar hlaupið kemur niður. „Hún kemur, það er bara spurning hvenær,“ segir Jón- as um Kötlugos sem raunar hefur verið beðið eftir frá því fyrir 1960. „Nei, ég sef rólegur á nóttunni eins og flestir Mýrdælingar. Menn eru ekki að hugsa um þetta nema þegar hér verða skjálftar yfir þrjú stig og þegar hlaup verða í ánum,“ segir Jónas þegar hann er spurður hvort menn hugsi mikið um hugsanlegar náttúruhamfarir. Jónas hefur nokkra reynslu af eldgosum og öskufalli eins og aðrir Mýrdælingar, eftir eldgosin í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum. Hann fór til dæmis á Kirkjubæjarklaustur í upphafi gossins í Grímsvötnum til að mynda og lenti í myrkri um hábjartan dag. Jónas Erlendsson JÓNAS Í FAGRADAL ALLTAF Á VAKTINNI Spáir í leiðir til að mynda Kötlugos S ímfréttir af landsbyggðinni voru meðal nýjunga í blaða- mennsku sem stofnendur Morgunblaðsins innleiddu við útkomu blaðsins. Áttatíu ár- um seinna markaði símamynd af stór- atburði þáttaskil í fréttaþjónustu blaðsins. Fréttaritarar Morgunblaðsins á lands- byggðinni hafa fylgt Morgunblaðinu frá stofnun og eiga merkan sess í sögu þess. „Fréttir hvaðanæva af landinu mun og eigi skorta í blað vort. Símfréttir munu við og við birtast frá öllum stærri bæjum og kauptúnum landsins, og úr sveitum, þegar þess gefst kostur,“ skrifaði Vilhjálmur Finsen, stofnandi Morgunblaðsins, þegar hann fylgdi blaðinu úr hlaði fyrir hundrað árum. Símfréttirnar af landsbyggðinni og frá útlöndum voru meðal þeirra nýjunga sem hann boðaði. Á fyrstu forsíðunni var símfregn frá Seyðisfirði um ljósahátíð og í blaðinu voru einnig símfréttir frá Akureyri og Ísafirði. Fréttirnar frá Seyðisfirði og Akureyri voru ekki merktar fréttaritara en undir Ísafjarðarfréttina skrifaði „R.“ Væntanlega eru þetta skrif fyrstu fréttaritara blaðsins og hafa þeir verið með frá fyrsta degi. Finsen sagði í ævisögu sinni að þessar fréttir hefðu þótt nýnæmi. Smám saman var fréttaöflunarkerfi byggt upp. Mikilvægur lið- ur í því í upphafi var ferð Árna Óla blaðamanns með Sterling um- hverfis landið. Tilgangurinn var að útvega Morgunblaðinu út- sölumenn og fréttaritara sem víðast. Raunar notaði Árni frí sitt frá starfinu til að fara í þessa ferð, eins og hann getur um í bókinni Er- ill og ferill blaðamanns. Skipið kom við í hverri höfn, en ekki var ferðin jafn hentug og Árni hafði búist við. Á mörgum stöðum var ekki lagst að bryggju og viðstöðutími sums staðar svo stuttur, að ekki gafst ráðrúm til að fara í land. Á öðrum stöðum fékk skipið af- greiðslu um nætur og þar þýddi ekki að fara í land. Árni segir að samt sem áður hafi sér tekist að útvega út- sölumenn í öllum helstu höfnum og nær 20 fréttaritara. Þótti Fin- sen þetta góð erindislok, er Árni kom heim. Sjálfur var hann ánægður og fannst Morgunblaðið hafa þarna fetað í fótspor Ísa- foldar Björns Jónssonar. Fram kemur það álit Árna að ferðin með Sterling hafi verið upphaf þess að Morgunblaðið ruddi sér til rúms í kauptúnum landsins. Grunnur sem byggt var á Óhætt er að segja að það fréttaritarakerfi sem Finsen og Árni Óla byggðu upp á fyrsta starfsári Morgunblaðsins hafi verið grunnur- inn að farsælu fréttaritarakerfi sem gegndi gífurlega mikilvægu hlutverki við fréttaöflun blaðsins lengi vel. Breytingar á tækni og aðgengi að upplýsingum og umhverfið á fjölmiðlamarkaðnum hefur breytt hlutverki fréttaritaranna. Enn eru fréttaritararnir mikilvæg stoð í fréttaöflunarkerfi blaðsins, bæði til frásagnar af atburðum úr daglegu lífi fólksins í landinu og þegar stórviðburðir ger- ast. Símamynd frá björgunarafreki Í ljósi þess hvað símfréttirnar voru mikil nýj- ung á fyrstu dögum Morgunblaðsins er ekki úr vegi að rifja upp aðra nýjung sem varð fyr- ir tæpum tuttugu árum þegar í fyrsta skipti tókst að senda símamynd frá stórviðburði hér á landi og birta í dagblaði. Björgunarþyrlur varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli björguðu sex skipbrotsmönnum af Goðanum sem fórst í Vöðlavík 10. janúar 1994 en einn maður fórst. Mönnunum var bjargað af þaki brúar skipsins sem var að sökkva. Ekki var auðvelt að fá fréttamyndir til birtingar í blaðinu. Ofsa- veður var og því ekkert flug á Egilsstaði og Norðfjörð. Raunar var ófærð svo mikil að ekki náðist að koma filmu frá slysstað með bíl til Eskifjarðar nógu tímanlega fyrir prentun blaðsins um nóttina. En oft finnast nýjar leiðir þegar aðrar lokast. Ágúst Blöndal, fréttaritari í Neskaupstað, hafði tekið myndir af bandarísku björg- unarsveitinni og tveimur skipbrotsmönnum sem þyrlurnar komu með þangað. Filman var framkölluð og kópíur gerðar af tveimur myndum sem Ágúst fékk Huga Þórðarson til að skanna inn í tölvu og senda með mótaldi við síma til Morgunblaðsins. Myndirnar voru komnar til blaðsins klukkan hálftólf um kvöldið og birtust í blaðinu morguninn eftir. Önnur myndin birtist um þvera forsíðuna sem í þá daga var að- eins tekin undir innlendar fréttir þegar leggja þurfti áherslu á stórfréttir. Þess má geta að það tók tölvurnar tólf mínútur að senda og taka við myndinni, að því er fram kemur í frásögn Magn- úsar Finnssonar fréttastjóra frá þessum tíma, og öllu lengri tíma tók að senda hina myndina sem var í stærri upplausn. Þetta er gamalkunnug tækni og þykir forneskjuleg í dag vegna þess að aðr- ar og nútímalegri aðferðir komu með stafrænu ljósmyndatækninni og öflugri tölvum og netsambandi. Samt eru ekki tuttugu ár liðin síðan þetta var nýjung í sendingu fréttamynda á Íslandi og þótti saga til næsta bæjar að blaðinu skyldi hafa tekist að birta mynd að austan þegar allar samgönguleiðir voru lokaðar á milli Reykjavík- ur og Austfjarða. Fjölda annarra viðburða, smárra jafnt sem stórra, var hægt að gera skil með þessari tækni á næstu árum, þangað til stafræna ljósmyndatæknin tók alveg við og fréttaritarar þurftu ekki lengur að leita fljótvirkustu flutningsleiða fyrir filmur sínar til Morgunblaðsins, með flugvélum, rútum, skipum eða einkabílum. Stundum þurfti raunar að nota marga mismunandi flutningsmáta og jafnvel senda bíl á móti. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, fundaði í Morgunblaðshúsinu við Hádegismóa haustið 2009. Helgi Bjarnason | helgi@mbl.is Fréttaritarar Morgunblaðsins hafa unnið fyrir blaðið frá fyrsta degi. Hlutverkið er breytt en enn eru þeir stoð í fréttaöflunarkerfi blaðsins og þjónustu við lesendur. Þá voru símfréttir og -myndir nýjungar í blaðamennsku Á forsíðu Morgunblaðsins 11. janúar 1994 birtist óvænt mynd sem tengist björgunarafrekinu í Vöðlavík daginn áður.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.