Morgunblaðið - 02.11.2013, Qupperneq 98
98 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2013
Margir eftirminnilegir einstaklingar hafa
sett svip sinn á fréttaritarahópinn og
Morgunblaðið. Ef aðeins er litið til síð-
ustu áratuga dugir að nefna Sigurð Pét-
ur Björnsson (Silla) á Húsavík, Árna
Helgason í Stykkishólmi, Björn Jóns-
son í Bæ og Sverri Pálsson á Akureyri.
Þessir menn voru allir stofnfélagar Okk-
ar manna og raunar einnig heiðurs-
félagar og þjónuðu lesendum Morgun-
blaðsins í áratugi. Marga fleiri góða
menn og konur mætti nefna sem lagst
hafa á árarnar með Morgunblaðinu.
Fréttaritarar Morgunblaðsins mynda
félagsskapinn Okkar menn sem starfað
hefur í 28 ár. Hugmynd stofnendanna
kemur fram í tilgangi félagsins sem er
að efla og treysta Morgunblaðið og
vinna að sameiginlegum hagsmuna-
málum fréttaritara blaðsins. Þetta
tvennt var talið fara mjög vel saman og
það varð kjarninn í lögum félagsins.
Félagið var stofnað 12. apríl 1985 fyr-
ir forgöngu Helga Kristjánssonar í
Ólafsvík og Úlfars Ágústssonar á Ísa-
firði en sá síðarnefndi varð fyrsti for-
maður félagsins. Á þeim tíma voru um
100 fréttaritarar starfandi og margir
mikilvirkir. Sóttu þeir aðalfundi annað
hvert ár og félagið gaf út fréttabréf með
margvíslegu fræðsluefni sem seinna
var miðlað á sérstökum vef. Fræðslu-
námskeið hafa verið haldin í samvinnu
við Morgunblaðið, ljósmynda-
samkeppnir og ljósmyndasýningar sem
víða hafa farið.
Sigurður Jónsson á Selfossi tók við
formennsku af Úlfari og síðan Grímur
Gíslason í Vestmannaeyjum og loks nú-
verandi formaður, Gunnlaugur Árnason í Stykkishólmi. Jón
Sigurðsson á Blönduósi hefur manna lengst setið í stjórn
en hann hefur verið gjaldkeri Okkar manna í 26 ár.
Árni Helgason
Sverrir Pálsson
Björn Jónsson
FÉLAGIÐ OKKAR MENN HEFUR
STARFAÐ Í 28 ÁR
Sigurður Pétur
Björnsson
Eftirminnilegir fréttaritarar
„Aðalatriðið er að kynna sér söguna,
athuga hvernig Katla hefur hagað sér í
gegnum aldirnar,“ segir Jónas Er-
lendsson í Fagradal sem er ávallt á
Kötluvaktinni, bæði sem íbúi í Mýrdal
og fréttaritari.
Bær Jónasar stendur það hátt að
hann þarf væntanlega ekki að yfirgefa
heimili sitt vegna jökulhlaupsins. Í
staðinn hefur hann velt því mikið fyrir
sér hvert best væri að fara til að ná fréttamyndum af ham-
förunum. Hann hefur helst augastað á Háfelli sem stend-
ur hátt með endurvarpsstöðvar fyrir sjónvarp og síma.
Þar segist hann sjá til eldstöðvarinnar og einnig skriðjök-
ulinn sem búast má við að hleypi jökulvatninu út. Þá gefur
hann sér að hlaupið komi í farveg Múlakvíslar, eins og oft-
ast hefur verið og gerðist í hlaupi fyrir tveimur árum þegar
brúna tók af.
„Það verður mikið öskufall í upphafi og það ræðst af
vindátt hvort hægt er að komast eitthvað. Ef hann verður
norðanstæður sér maður ekki neitt og verður að halda sig
heima,“ segir Jónas. Eins getur það ráðið miklu um svig-
rúm ljósmyndarans hvenær sólarhringsins Katla gýs og
hvar hlaupið kemur niður.
„Hún kemur, það er bara spurning hvenær,“ segir Jón-
as um Kötlugos sem raunar hefur verið beðið eftir frá því
fyrir 1960. „Nei, ég sef rólegur á nóttunni eins og flestir
Mýrdælingar. Menn eru ekki að hugsa um þetta nema
þegar hér verða skjálftar yfir þrjú stig og þegar hlaup
verða í ánum,“ segir Jónas þegar hann er spurður hvort
menn hugsi mikið um hugsanlegar náttúruhamfarir.
Jónas hefur nokkra reynslu af eldgosum og öskufalli
eins og aðrir Mýrdælingar, eftir eldgosin í Eyjafjallajökli og
Grímsvötnum. Hann fór til dæmis á Kirkjubæjarklaustur í
upphafi gossins í Grímsvötnum til að mynda og lenti í
myrkri um hábjartan dag.
Jónas Erlendsson
JÓNAS Í FAGRADAL ALLTAF Á VAKTINNI
Spáir í leiðir til að
mynda Kötlugos
S
ímfréttir af landsbyggðinni
voru meðal nýjunga í blaða-
mennsku sem stofnendur
Morgunblaðsins innleiddu við
útkomu blaðsins. Áttatíu ár-
um seinna markaði símamynd af stór-
atburði þáttaskil í fréttaþjónustu blaðsins.
Fréttaritarar Morgunblaðsins á lands-
byggðinni hafa fylgt Morgunblaðinu frá
stofnun og eiga merkan sess í sögu þess.
„Fréttir hvaðanæva af landinu mun og eigi
skorta í blað vort. Símfréttir munu við og
við birtast frá öllum stærri bæjum og
kauptúnum landsins, og úr sveitum, þegar
þess gefst kostur,“ skrifaði Vilhjálmur
Finsen, stofnandi Morgunblaðsins, þegar
hann fylgdi blaðinu úr hlaði fyrir hundrað
árum. Símfréttirnar af landsbyggðinni og
frá útlöndum voru meðal þeirra nýjunga
sem hann boðaði. Á fyrstu forsíðunni var símfregn frá Seyðisfirði
um ljósahátíð og í blaðinu voru einnig símfréttir frá Akureyri og
Ísafirði. Fréttirnar frá Seyðisfirði og Akureyri voru ekki merktar
fréttaritara en undir Ísafjarðarfréttina skrifaði „R.“ Væntanlega
eru þetta skrif fyrstu fréttaritara blaðsins og hafa þeir verið með
frá fyrsta degi. Finsen sagði í ævisögu sinni að þessar fréttir hefðu
þótt nýnæmi.
Smám saman var fréttaöflunarkerfi byggt upp. Mikilvægur lið-
ur í því í upphafi var ferð Árna Óla blaðamanns með Sterling um-
hverfis landið. Tilgangurinn var að útvega Morgunblaðinu út-
sölumenn og fréttaritara sem víðast. Raunar notaði Árni frí sitt frá
starfinu til að fara í þessa ferð, eins og hann getur um í bókinni Er-
ill og ferill blaðamanns. Skipið kom við í hverri höfn, en ekki var
ferðin jafn hentug og Árni hafði búist við. Á mörgum stöðum var
ekki lagst að bryggju og viðstöðutími sums staðar svo stuttur, að
ekki gafst ráðrúm til að fara í land. Á öðrum stöðum fékk skipið af-
greiðslu um nætur og þar þýddi ekki að fara í land.
Árni segir að samt sem áður hafi sér tekist að útvega út-
sölumenn í öllum helstu höfnum og nær 20 fréttaritara. Þótti Fin-
sen þetta góð erindislok, er Árni kom heim. Sjálfur var hann
ánægður og fannst Morgunblaðið hafa þarna fetað í fótspor Ísa-
foldar Björns Jónssonar. Fram kemur það álit Árna að ferðin með
Sterling hafi verið upphaf þess að Morgunblaðið ruddi sér til rúms
í kauptúnum landsins.
Grunnur sem byggt var á
Óhætt er að segja að það fréttaritarakerfi sem Finsen og Árni Óla
byggðu upp á fyrsta starfsári Morgunblaðsins hafi verið grunnur-
inn að farsælu fréttaritarakerfi sem gegndi gífurlega mikilvægu
hlutverki við fréttaöflun blaðsins lengi vel.
Breytingar á tækni og aðgengi að upplýsingum og umhverfið á
fjölmiðlamarkaðnum hefur breytt hlutverki
fréttaritaranna. Enn eru fréttaritararnir
mikilvæg stoð í fréttaöflunarkerfi blaðsins,
bæði til frásagnar af atburðum úr daglegu lífi
fólksins í landinu og þegar stórviðburðir ger-
ast.
Símamynd frá björgunarafreki
Í ljósi þess hvað símfréttirnar voru mikil nýj-
ung á fyrstu dögum Morgunblaðsins er ekki
úr vegi að rifja upp aðra nýjung sem varð fyr-
ir tæpum tuttugu árum þegar í fyrsta skipti
tókst að senda símamynd frá stórviðburði hér
á landi og birta í dagblaði.
Björgunarþyrlur varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli björguðu sex skipbrotsmönnum af
Goðanum sem fórst í Vöðlavík 10. janúar 1994
en einn maður fórst. Mönnunum var bjargað
af þaki brúar skipsins sem var að sökkva.
Ekki var auðvelt að fá fréttamyndir til birtingar í blaðinu. Ofsa-
veður var og því ekkert flug á Egilsstaði og Norðfjörð. Raunar var
ófærð svo mikil að ekki náðist að koma filmu frá slysstað með bíl til
Eskifjarðar nógu tímanlega fyrir prentun blaðsins um nóttina.
En oft finnast nýjar leiðir þegar aðrar lokast. Ágúst Blöndal,
fréttaritari í Neskaupstað, hafði tekið myndir af bandarísku björg-
unarsveitinni og tveimur skipbrotsmönnum sem þyrlurnar komu
með þangað. Filman var framkölluð og kópíur gerðar af tveimur
myndum sem Ágúst fékk Huga Þórðarson til að skanna inn í tölvu
og senda með mótaldi við síma til Morgunblaðsins. Myndirnar
voru komnar til blaðsins klukkan hálftólf um kvöldið og birtust í
blaðinu morguninn eftir.
Önnur myndin birtist um þvera forsíðuna sem í þá daga var að-
eins tekin undir innlendar fréttir þegar leggja þurfti áherslu á
stórfréttir. Þess má geta að það tók tölvurnar tólf mínútur að
senda og taka við myndinni, að því er fram kemur í frásögn Magn-
úsar Finnssonar fréttastjóra frá þessum tíma, og öllu lengri tíma
tók að senda hina myndina sem var í stærri upplausn. Þetta er
gamalkunnug tækni og þykir forneskjuleg í dag vegna þess að aðr-
ar og nútímalegri aðferðir komu með stafrænu ljósmyndatækninni
og öflugri tölvum og netsambandi. Samt eru ekki tuttugu ár liðin
síðan þetta var nýjung í sendingu fréttamynda á Íslandi og þótti
saga til næsta bæjar að blaðinu skyldi hafa tekist að birta mynd að
austan þegar allar samgönguleiðir voru lokaðar á milli Reykjavík-
ur og Austfjarða. Fjölda annarra viðburða, smárra jafnt sem
stórra, var hægt að gera skil með þessari tækni á næstu árum,
þangað til stafræna ljósmyndatæknin tók alveg við og fréttaritarar
þurftu ekki lengur að leita fljótvirkustu flutningsleiða fyrir filmur
sínar til Morgunblaðsins, með flugvélum, rútum, skipum eða
einkabílum. Stundum þurfti raunar að nota marga mismunandi
flutningsmáta og jafnvel senda bíl á móti.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, fundaði í Morgunblaðshúsinu við Hádegismóa haustið 2009.
Helgi Bjarnason | helgi@mbl.is
Fréttaritarar Morgunblaðsins hafa unnið fyrir blaðið frá fyrsta degi. Hlutverkið
er breytt en enn eru þeir stoð í fréttaöflunarkerfi blaðsins og þjónustu við lesendur.
Þá voru símfréttir og -myndir
nýjungar í blaðamennsku
Á forsíðu Morgunblaðsins 11. janúar
1994 birtist óvænt mynd sem tengist
björgunarafrekinu í Vöðlavík daginn áður.