Morgunblaðið - 05.12.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2013
VIÐTAL
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Tveir lögreglumenn leituðu skjóls
hjá pólskri fjölskyldu á þriðju og
efstu hæð Hraunbæjar 20 til að forð-
ast byssumann sem þá hafði skotið á
þá og félaga þeirrra.
Þeir voru í fyrsta hópnum sem
kom á vettvang aðfaranótt mánu-
dags. Í fyrstu taldi lögregla mögu-
legt að maðurinn hefði framið sjálfs-
víg í íbúðinni og opnaði dyrnar að
íbúðinni til að kalla inn til hans. Mað-
urinn skaut þá úr haglabyssu á lög-
reglu, skotið hæfði skjöld eins lög-
reglumannsins sem kastaðist við það
aftur á bak niður stigann. Lögreglu-
mennirnnir tveir hörfuðu upp á
þriðju hæð og þar urðu þeir í raun
innlyksa. Þeir voru óvopnaðir og
höfðu því afar litla eða enga mögu-
leika til að verjast byssumanninum.
Sveittir og stressaðir
Í íbúðinni voru systkini, 17 ára
stúlka og 26 ára karlmaður, móðir
þeirra og kærasta mannsins. Fjöl-
skyldan hefur búið hér í 5-6 ár en
þau eru frá borginni Elk í norðaust-
urhluta Póllands. Morgunblaðið
ræddi í gær við systkinin tvö.
„Mamma vakti okkur og sagði að
það væri verið að berja á dyrnar og
að hún hefði heyrt skot eða spreng-
ingu. Ég fór að dyrunum og kallaði
og spurði hver hefði bankað. Ég leit í
gegnum gægjugatið á hurðinni og sá
tvo lögreglumenn á stigapallinum,“
sagði maðurinn. Lögreglumennirnir
hefðu líka barið á dyrnar á hinum
tveimur íbúðunum á stigaganginum
en virtust ekki hafa fengið svör þar.
„Ég opnaði fyrir þeim og hleypti
þeim inn. Þeir voru sveittir og
greinilega mjög stressaðir,“ sagði
maðurinn.
Þegar stúlkan kom fram voru lög-
reglumennirnir komnir inn og hún
áttaði sig ekki strax á því hvað væri
að gerast. „Við vissum ekki hvort
hann væri með byssu eða sprengju.
Við vorum óskaplega hrædd,“ segir
stúlkan. „Þetta var bara eins og í bíó-
mynd.“
Þótt lögreglumennirnir hafi aug-
ljóslega verið stressaðir hafi þeir
verið mjög almennilegir og m.a. hafi
þeir látið hana fá lögregluúlpu þegar
hún kvartaði undan kulda.
Lögreglumennirnir voru óvopnað-
ir og maðurinn bendir á að þótt ann-
ar þeirra hafi haft hylki með pipar-
úða hefði það dugað skammt ef
byssumaðurinn hefði komið á eftir
þeim upp á þriðju hæð. Lögreglu-
mennirnir hefðu spurt hvort byssa
eða annað sem mætti nota til varnar
væri í íbúðinni en svo var ekki.
Þeir hefðu beðið konurnar þrjár
sem voru í íbúðinni að vera frammi í
stofu og sitja í sófa en þar voru þær
fjarri gluggum. Maðurinn og lög-
reglumennirnir tveir hefðu síðan
hjálpast að við að setja rúm, kassa
með gervijólatré og stóla fyrir dyrn-
ar til að torvelda manninum inn-
göngu, reyndi hann að brjóta sér leið
inn í íbúðina.
Maðurinn segir að annar lögreglu-
maðurinn hafi tekið sér stöðu á
gangi, við hlið inngangsins í íbúðina
en hann hafi sjálfur tekið sér stöðu í
eldhúsinu. Þannig hefðu þeir getað
sótt að byssumanninum úr tveimur
áttum, kæmist hann inn. Hinn lög-
reglumaðurinn hafi fylgst með at-
burðarásinni út um glugga.
Systkinin telja að lögreglumenn-
irnir hafi verið í íbúðinni frá um
klukkan 3.30 til um 5, þegar liðs-
menn sérsveitar ríkislögreglustjóra
fylgdu þeim út. Það bar mjög brátt
að. Stúlkan segir að sérsveitarmenn
hafi barið á dyrnar og lögreglumenn-
irnir tveir í fyrstu ekki verið vissir
um að þarna væru lögreglumenn á
ferð. Síðan hafi þeir sagt að allir
ættu að fara út þegar í stað. Þau hafi
ekki haft ráðrúm til að klæða sig og
hún var því aðeins á náttfötunum og
berfætt þegar þau yfirgáfu íbúðina.
Sérsveitarmennirnir hafi fylgt þeim
niður stigaganginn, skýlt þeim með
skjöldum sínum og beint byssum sín-
um að íbúð mannsins þegar þau fóru
framhjá henni. Stigangurinn var þá
fullur af reyk eða gasi og leysimið
sem lögregla notar til að miða
byssum sínum sáust því vel. Stúlkan
segist hafa þurft að hlaupa dálítinn
spöl í snjónum berfætt og auðvitað
orðið ískalt. „Ég fæ gæsahúð þegar
ég hugsa um þetta núna,“ segir hún.
Fékk enga hjálp
Systkinin og annar nágranni
mannsins sem Morgunblaðið ræddi
við í gær lýsa því hvernig veikindi
byssumannsins virðast hafa ágerst
undanfarið. Þau lýsa ýmsu ónæði af
hans völdum, hann talað eða rifist við
sjálfan sig, sparkað ítrekað í bíl sem
hann átti o.fl. Nágranninn taldi að
manninum hefði hrakað í kjölfar
áreksturs sem hann hefði lent í fyrir
um tveimur vikum.
„Greyið maðurinn, hann fékk enga
hjálp. En löggan gerði allt sem hún
gat,“ segir stúlkan.
Fengu skjól hjá fjölskyldu
Tveir lögreglumenn fengu skjól í íbúð hjá fjölskyldu á 3. hæð í Hraunbæ 20
Hörfuðu undan byssumanninum og börðu á dyr hjá íbúum Voru óvopnaðir
Morgunblaðið/Rósa Braga
Rannsókn Liðsmenn tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á
leið inn í íbúð byssumannsins. Búið er að loka íbúðinni með tréplötu.
Maðurinn sem
lést eftir viður-
eign við lögreglu
í Hraunbæ 20 í
Reykjavík að
morgni mánu-
dags hét Sævar
Rafn Jónasson.
Hann var 59 ára
gamall, fæddur
17. apríl 1954.
Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú
hvaðan haglabyssan sem Sævar
Rafn hafði í fórum sínum og skaut
af á lögreglu er komin. Sævar Rafn
hafði ekki byssuleyfi og var byssan
ekki skráð á hann, samkvæmt
heimildum mbl.is.
Sævar Rafn skaut að sérsveit-
armönnum og hæfði tvo þeirra.
Hann lést síðar af skotsárum sem
hann hlaut í viðureign við lögreglu.
Meðal þess sem lögreglan skoðar
er hvort hann hafi fengið byssuna
að láni. Hann var vopnaður hagla-
byssu.
Atvik og aðgerðir
rannsakaðar
Í tilkynningu frá ríkissaksóknara
á þriðjudag kom fram að atriði sem
varða forsögu mannsins sem lést,
m.a. meðferð hans á skotvopni, sé á
forræði lögreglustjórans á höfuð-
borgarsvæðinu að rannsaka, allt
eftir því sem hann telji tilefni til.
Ríkissaksóknari hefur hins vegar
hafið rannsókn á atvikum og að-
gerðum lögreglu í fjölbýlishúsinu að
Hraunbæ 20 í Reykjavík.
Kanna
uppruna
byssunnar
Var ekki skráð-
ur fyrir byssu
Sævar Rafn
Jónasson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Umsátursástand myndaðist á Sauð-
árkróki í gær þegar maður á fimm-
tugsaldri hafði samband við fjar-
skiptamiðstöð lögreglunnar og
kvaðst vera vopnum búinn. Hafði
hann í hótunum við lögregluna en
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu reyndist maðurinn hins vegar
ekki hafa skotvopn undir höndum
þegar upp var staðið.
Málið er nú til rannsóknar og
mun maðurinn dvelja í fanga-
geymslu þar til skýrsla verður tekin
af honum í dag að sögn Stefáns
Vagns Stefánssonar, yfirlögreglu-
þjóns á Sauðárkróki.
Lögreglumenn með skotvopn
meðan beðið var sérsveitar
Stefán segir að fimm sérsveit-
armenn hafi verið kallaðir út frá
Akureyri eftir að hótun mannsins
barst. Hann vill ekkert fullyrða um
það hvort atburðirnir í Árbæ á
mánudag, þar sem byssumaður féll
fyrir hendi lögreglunnar, séu
kveikjan að hegðun mannsins.
„Auðvitað hafa menn áhyggjur af
því að slíkir atburðir geti undið upp
á sig, en hvort það eigi við í þessu
tilviki, get ég ekkert sagt til um. En
það sem þetta kennir okkur hins
vegar enn fremur er að lögreglan
þarf að vera við öllu búin, öllum
stundum,“ segir Stefán.
Að sögn hans stóð umsáturs-
ástandið yfir í um þrjár klukku-
stundir, frá um kl. 13-16. Maðurinn
sagðist vera skotvopnum búinn og
að sögn Stefáns þurftu lögreglu-
menn á Sauðárkróki því einnig að
vera með skotvopn meðan á um-
sátrinu stóð. Biðu þeir að sögn Stef-
áns í rúma klukkustund eftir sér-
sveitarmönnum frá Akureyri og
komu þeir á staðinn um klukkan
14.30.
Hefur átt við geðræn
vandamál að stríða
„Á þessum tíma hringdi hann í
okkur og við hringdum í hann til
skiptis. Allan tímann reyndum við
að fá hann til þess að koma fram og
gefast upp. Það bar svo árangur
rétt fyrir fjögur,“ segir Stefán.
Hann segir að maðurinn hafi verið
mjög æstur meðan á umsátrinu stóð
og verið afar uppsigað við lögregl-
una.
Að sögn Stefáns lauk umsátrinu
með því að maðurinn hleypti lög-
reglumönnum inn um dyrnar. Að
sögn Stefáns hefur maðurinn átt við
geðræn vandamál að stríða. „Hót-
anir mannsins beindust nær ein-
göngu gegn lögreglu,“ segir Stefán
en vildi ekki gefa upp hvort hótanir
mannsins hefðu beinst gegn lög-
reglu vegna einhverra fyrri atvika.
Maðurinn gisti fangageymslur í
nótt og fer í skýrslutöku í dag. „Svo
verður athugað hvort við þurfum að
koma manninum undir læknishend-
ur. Svo er spurning hvað verður um
hann en það er annarra en lögregl-
unnar að ákveða það,“ segir Stefán.
Viðbúnaður vegna
hótana um skotárás
Reyndist vera óvopnaður meðan á umsátrinu stóð
Ljósmynd/Feykir.is
Viðbúnaður Umsátursástandið stóð yfir í um þrjár klukkustundir í gær.
Íbúð mannsins er í húsinu lengst til hægri á myndinni.
Ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur karlmanni á þrí-
tugsaldri en hann er grunaður um
að hafa 17. mars sl. hrist fimm
mánaða gamla dóttur sína svo
harkalega að hún hlaut blæðingu í
heila sem leiddi til dauða hennar.
Bráðabirgðaniðurstaða réttarlækn-
isfræðilegrar rannsóknar benti til
að barnið hefði látist af völdum svo-
kallaðs „shaken baby syndrome“.
Faðirinn var í mars úrskurðaður
í gæsluvarðhald og farbann sem
hefur ítrekað verið framlengt síðan.
Ákæran í málinu fæst ekki af-
hent þar sem ekki er útilokað að
þinghald verði lokað. Hins vegar
hefur fengist staðfest hjá rík-
issaksóknara að sakarefnið er heim-
fært undir ákvæði 2. mgr. 218. gr.
almennra hegningarlaga. Í því seg-
ir:
„Nú hlýst stórfellt líkams- eða
heilsutjón af árás eða brot er sér-
staklega hættulegt vegna þeirrar
aðferðar, þ.á m. tækja, sem notuð
eru, svo og þegar sá, er sætir lík-
amsárás, hlýtur bana af atlögu, og
varðar brot þá fangelsi allt að 16
árum.“
Ákærður fyrir að vera
valdur að dauða barns
Barnið hrist svo blæddi inn á heila