Morgunblaðið - 05.12.2013, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þingmenn vilja laða fjárfesta að at-
vinnuskógrækt, meðal annars sjóði,
einstaklinga og félög. Þeirri hug-
mynd er velt upp í þingsályktun-
artillögu að skapaður verði hvati til
fjárfestinga í viðurkenndum skóg-
ræktarsjóði með tímabundinni
skattaívilnun.
Jón Gunnarsson og fjórir aðrir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa
lagt fram þingsályktunartillögu þar
sem skorað er á ríkisstjórnina að
efla skógrækt sem arðsaman at-
vinnuveg á Íslandi. Það telja þeir
best gert með því að efla hagnýtar
rannsóknir og þróunarstarf, sam-
eina Skógrækt ríkisins, Land-
græðslu ríkisins og skrifstofur
landshlutaverkefna í skógrækt í
eina stjórnsýslueiningu og setja ný
lög um skógrækt og landgræðslu.
Fjórða atriðið er að móta starfsum-
hverfi atvinnugreinarinnar með
rammaáætlun til þriggja ára til að
efla skógrækt með þátttöku bænda,
annarra landeigenda og sérstakra
skógræktarsjóða. Bent er á í grein-
argerð að fjárfesting einkaaðila og
sjóða í skógrækt sé vel þekkt fyr-
irkomulag erlendis.
Skapa skammtímahvata
Til að hætta fé sínu í nýrri fjár-
festingarleið þar sem löng bið sé
eftir fyrstu tekjum þurfi að skapa
skammtímahvata fyrir fjárfesta.
Nefnt er að skattaívilnun við fjár-
festingu í viðurkenndum skógrækt-
arsjóði sé líkleg til að mynda slíkan
ávinning. Hann mætti afnema þeg-
ar meiri reynsla hefði skapast á
markaði. Fleiri hvatar eru nefndir.
Bent er á að til að fá lífeyrissjóði til
að fjárfesta í skógrækt gæti hentað
betur að bjóða gróðursetningar-
styrk sem fasta krónutölu á hvern
hektara.
Lagt er til að skipulag og stjórn-
sýsla málaflokksins verði samræmd
til þess að ná betri árangri. Sam-
eining stofnana hefði í för með sér
mikla hagræðingu, meðal annars
sparnað í yfirstjórn.
Hvatt til fjárfestinga í skógi
Talið að tímabundin skattaívilnun í skógræktarsjóðum gæti laðað að fjárfesta
Morgunblaðið/Ómar
Skógarhögg Nægur markaður er
fyrir við sem til fellur við grisjun.
„Við höfum verið
að velta því fyrir
okkur nokkrir
áhugamenn hvort
hægt væri að
leysa málið og þá
hvernig,“ segir
Stefán L. Rögn-
valdsson, bóndi á
Leifsstöðum í Öx-
arfirði. Hann er í
hópi áhugamanna
um áframhaldandi verslunarrekstur
á Kópaskeri sem kanna möguleika á
stofnun eignarhaldsfélags til að
kaupa verslunarhúsnæði og tæki.
Kaupmaðurinn í einu matvöru-
versluninni á Kópaskeri mun hætta
um áramót. Áhugi er á því að halda
verslun á staðnum. „Við höfum
hugsað marga möguleika. Núna er-
um við að athuga hvort fólk hefur
áhuga á að leggja hlutafé í félag um
húsnæðið. Þá væri auðveldara að fá
einhvern til að reka verslun. Þetta er
sérhannað verslunarhúsnæði sem
væri vont að missa í annað,“ segir
Stefán.
Hann telur að styrkja mætti
rekstrargrundvöllinn með því að
koma upp aðstöðu til veitingasölu í
verslunarhúsnæðinu, eins og víða er
í ferðamannaverslunum. Bendir
hann á að ferðamönnum fjölgi stöð-
ugt og gott sé að hafa einhverja slíka
þjónustu á staðnum.
„Það er þó mikilvægast, ef menn
vilja hafa verslun á svæðinu, að
menn standi á bak við hana og versli
þar,“ segir Stefán. helgi@mbl.is
Vilja halda
í verslun á
Kópaskeri
Stefán Leifur
Rögnvaldsson
Áhugamenn safna
hlutafé til kaupanna
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu
hefur upplýst sex
innbrot í heima-
hús í Kópavogi
sem framin voru í
síðustu viku.
Fram kemur í til-
kynningu að karl-
maður um þrítugt
hafi verið handtekinn í þágu rann-
sóknarinnar, en við húsleit á heimili
hans hafi fundist þýfi úr innbrot-
unum.
Fram kemur að hinum stolnu
munum hefur nú verið komið aftur í
réttar hendur, en lögreglu tókst að
endurheimta allt sem stolið var. Á
meðal þess sem innbrotsþjófurinn
tók voru fartölvur, myndavélar og
skartgripir. Handtöku innbrots-
þjófsins má ekki síst þakka árvekni
ónefnds íbúa, en sá lét lögreglunni í
té upplýsingar sem komu henni á
sporið með fyrrgreindum árangri.
Fundu þýfi
úr sex inn-
brotum
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
MeðNetspjalli Íslandsbanka kemstu í samband við ráðgjafa á einfaldan og þægilegan hátt.
Netspjallið er opið frá 8.30-17.00 og þar getur þú fengið upplýsingar um þjónustu bankans.
Engar fjárhagslegar upplýsingar fara umNetspjallið en ráðgjafinn leiðbeinir þér og vísar áfram á réttan
aðila þegar svo ber undir.
PrófaðuNetspjallið á islandsbanki.is
Netspjall í tölvu, snjallsíma og spjaldtölvu
• Beint samband við ráðgjafa
• Upplýsingar um þjónustu
• Opið 8.30-17.00
Netspjallið:
Beint samband við
ráðgjafameðNetspjalli
Nýþjónusta: