Morgunblaðið - 05.12.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2013
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-3
1
8
6
FRJÁLSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
–Margverðlaunaður lífeyrissjóður
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var nýlega valinn besti lífeyrissjóður
Evrópuþjóða með undir milljón íbúa af fagtímaritinu Investment
Pension Europe (IPE).
Sjóðurinn hefur hlotið fjölmörg alþjóðleg verðlaun:
2013 – Besti lífeyrissjóður Evrópuþjóða með undir milljón íbúa
2011 – Besti lífeyrissjóður á Íslandi
2010 – Besti lífeyrissjóður á Íslandi
2009 – Besti lífeyrissjóður á Íslandi
2005 – Besti lífeyrissjóður Evrópu í þemaflokknum Uppbygging lífeyrissjóða
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 130 milljarðar
að stærð og sjóðfélagar eru um 47 þúsund talsins. Sjóðurinn hentar þeim
sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% skylduiðgjald
og jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.
Þú færð upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn í næsta útibúi Arion banka,
á www.frjalsilif.is, með því að senda fyrirspurn á lifeyristhjonusta@arionbanki.is
eða í síma 444 7000.
Tónleikar á vegum safnaðarnefnd-
ar íslensku kirkjunnar í Lúx-
emborg voru haldnir í Mótmæl-
endakirkjunni í borginni í
nóvember.
Á tónleikunum komu fram ís-
lenskir og erlendir listamenn, þar á
meðal kvennakórinn Farfuglar
undir stjórn Sigurðar Rúnars Jóns-
sonar, Olga Vocales Ensemble,
Hrólfur Sæmundsson, bari-
tónsöngvari, Gunnsteinn Magn-
ússon, saxófónleikari, Kristján Ant-
on Hermannsson, söngvari og
gítarleikari og söngkonurnar Sig-
rún Elva Ólafsdóttir og Ingigerður
Ósk Gunnarsdóttir.
Að sögn Agnars Br. Sigurvins-
sonar, formanns safnaðarnefnd-
arinnar, er þetta í fyrsta skipti, sem
íslenski söfnuðurinn stendur fyrir
svona tónleikum. Sagði Agnar að
kirkjugestir hefðu fagnað lista-
mönnunum með dynjandi lófataki.
Íslenska kirkjan í Lúxemborg
tengist Félagi Íslendinga í Lúx-
emborg en rúmlega 500 Íslend-
ingar eru nú búsettir þar.
Íslenskir tónleikar
í Lúxemborg
Kvennakór Farfuglar, kór Íslendinga í Lúxemborg, söng á íslensku tónleikunum í Mótmælendakirkjunni.
Tollverðir stöðv-
uðu nýverið
sendingu sem
innihélt fjóra
leysibenda sem
voru að styrk
langt umfram
það sem leyfilegt
er. Samkvæmt
upplýsingum frá
embætti toll-
stjóra kom send-
ingin frá Kína samkvæmt pöntun
frá Íslandi. Átti hún, að því er sagði
í leyfisumsókn viðkomandi, að inni-
halda einn leysibendi, innan við 5
millivött að styrk en notkun leysi-
benda sem eru umfram 1 MW að
styrk er háð leyfi Geislavarna rík-
isins.
Tollverðir fengu starfsmann frá
Geislavörnum til að mæla styrk
bendanna. Í ljós kom að styrkur frá
hverjum þeirra mældist vera 15 til
25 MW með þeim rafhlöðum sem
fylgdu þeim. Því var lagt hald á
leysibendana.
Tollverðir hafa áður stöðvað
varning af þessu tagi, til dæmis
leikfangabyssur fyrir börn, sem
voru búnar leysiljósum. Segir á
heimasíðu tollstjóra að notkun
ólöglegra leysibenda geti verið
stórhættuleg. Þannig hafi 13 ára
drengur hlotið alvarlegan augn-
skaða af völdum leysibendis hér á
landi. Þá hafi komið upp tilvik þar
sem hætta skapaðist þegar leysi-
bendum var beint að flugstjórnar-
klefa flugvéla í aðflugi.
Tollverðir gerðu
leysibenda upptæka
Leysibendar sem
lagt var hald á.
Innanríkisráðuneytið og félagið Ís-
lensk ættleiðing hafa gert með sér
þjónustusamning sem gilda á út ár-
ið 2014. Samningurinn kveður á um
að Íslensk ættleiðing, sem hefur
löggildingu innanríkisráðherra til
að annast milligöngu um ættleið-
ingar á börnum frá tilteknum er-
lendum ríkjum, veiti skilgreinda
þjónustu sem því tengist. Fjárveit-
ingar til verkefna samningsins eru
ákveðnar með fjárlögum hverju
sinni.
Meðal verkefna Íslenskrar ætt-
leiðingar er að annast meðferð um-
sókna kjörforeldra um ættleiðingu,
samskipti við upprunaríki, sýslu-
mann og kjörforeldra, skipuleggja
námskeið til undirbúnings ættleið-
ingar, veita ráðgjöf eftir ættleið-
ingu og senda eftirfylgniskýrslur
til upprunalands um stöðu barns
eftir komu þess til landsins, segir í
tilkynningu frá innanríkisráðu-
neytinu.
Ríkið semur við Ís-
lenska ættleiðingu
Skrifað undir Kristinn Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar,
Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri
og Hörður Svavarsson formaður skrifuðu
undir samninginn.