Morgunblaðið - 05.12.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2013
er að rannsaka eru aðallega mófuglar
á borð við hrossagauk, jaðrakan, lóu,
lóuþræl, spóa, stelk, tjald og þúfutitt-
ling. Stofnarnir eiga allir í vök að
verjast á heimsvísu. Sumar þessara
tegunda flokkast sem ábyrgðarteg-
undir Íslendinga vegna þess hve stór
hluti stofnsins byggir afkomu sína á
tilteknum svæðum hérlendis. Dæmi
um það eru spói, lóuþræll og heiðlóa.
Einnig nefndi Lilja að Ísland ætti að-
ild að alþjóðasamningum sem kveða
á um vernd dýralífs og búsvæða.
Lilja hóf að vinna að doktorsverk-
efni sínu á liðnu sumri. Þá beindi hún
athyglinni að landbúnaðarlandi og
hóf að skoða tengsl landbúnaðar og
fuglalífs, aðallega mófugla.
„Ég reyni að átta mig á því hvern-
ig fuglarnir nýta landbúnaðarlandið
svo mynd fáist af því hvaða gildi
ræktarland hefur fyrir fuglana. Það
bendir margt til þess að landbúnaður
muni aukast hér á landi og verði
stundaður af vaxandi ákafa. Það hef-
ur sýnt sig í öðrum löndum að þegar
ákefð í landbúnaði nær ákveðnu stigi
fer landbúnaðurinn að hafa neikvæð
áhrif á líffræðilega fjölbreytni,“ sagði
Lilja. „Við viljum vita, áður en við
komumst á það stig, hvernig fugl-
arnir nýta landið og átta okkur á því
hvaða búsvæði eru mikilvæg fyrir
fuglana og hvaða þættir svo við get-
um forðast mistök sem nágranna-
þjóðirnar hafa gert.“
Lilja segir mikilvægt að varðveita
landgerðir sem eru fuglum mik-
ilvægar. Landnýtingu þurfi að stýra
þannig að hún komi sem minnst nið-
ur á fuglalífinu og fá þurfi bændur til
liðs í þeim efnum.
Hætta á meiri einsleitni
Aukinn ákafi í ræktun getur leitt
til þess að landið verði einsleitara
gróðurfarslega séð og að líffræðileg
fjölbreytni tapist. Dæmi um það er
þegar akrar stækka mikið á kostnað
túna og úthaga. Þá getur tapast líf-
fræðileg fjölbreytni.
Í sumar sem leið heimsótti Lilja
bændur á Suður- og Vesturlandi og
fékk að skoða fuglalíf á landi þeirra.
Á hverjum bæ voru þrjú svæði skoð-
uð sem endurspegluðu misákafa
landnýtingu, allt frá túnum og ökr-
um, þar sem mikilla áhrifa gætir frá
landbúnaði, til úthaga þar sem áhrif
hans eru lítil. Síðan bar hún þéttleika
fuglanna á þessum svæðum saman.
Frumgögnin benda til þess að fuglar
nýti almennt frekar þau svæði sem
eru undir litlum landbúnaðaráhrif-
um. En þegar rýnt er nánar í gögnin
birtist landshlutabundinn munur á
því hvernig þessi fuglar nýta þessi
svæði því fuglar á Vesturlandi virð-
ast sækja meira í landbúnaðarlandið,
einkum á ungastiginu. Lilja lagði þó
áherslu á að þetta væru frumnið-
urstöður sem þyrfti að vinna betur
úr.
Hún stefnir að því að halda áfram
með rannsóknina næsta sumar og
mun þá taka fyrir Norðurland.
Landnýting hefur áhrif á fuglalífið
Gríðarmiklar landbreytingar hafa orðið fyrir tilstilli manna hér á landi í áranna rás Unnið er að
rannsókn á því hvernig mismunandi landnýting hefur áhrif á villta fugla og líffræðilega fjölbreytni
Morgunblaðið/Ómar
Spói Fuglar sem sækja í búsvæði af því tagi sem Lilja er að rannsaka eru aðallega mófuglar á borð við hrossagauk, jaðrakan, lóu, lóuþræl, spóa, stelk, tjald
og þúfutittling. Stofnarnir eiga allir í vök að verjast. Sumir þeirra teljast vera ábyrgðartegundir Íslendinga, eins og spóinn, lóuþrællinn og heiðlóan.
VIÐTAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það hafa orðið gífurlegar landbreyt-
ingar á Íslandi. Yfirborð manngerðra
svæða á láglendi Suðurlands jókst
um 35% að flatarmáli á árunum 2000-
2006. Á Íslandi í heild var aukningin
um 20% á sama
tímabili,“ sagði
Lilja Jóhann-
esdóttir, dokt-
orsnemi í vist-
fræði við
Rannsóknasetur
Háskóla Íslands á
Suðurlandi. Hún
er að rannsaka
áhrif landnýt-
ingar á líf-
fræðilega fjöl-
breytni sem m.a. endurspeglast í
fuglalífi á landbúnaðarsvæðum.
Lilja sagði að á árunum 2000-2006
hefði yfirborð manngerðra svæða
annars staðar í Evrópu aukist um
5%. Ein skýringin getur verið sú að
Evrópulöndin hafi verið langt á und-
an Íslendingum að manngera yfir-
borð landa sinna. Lilja telur að Ís-
land stefni mögulega í sömu átt og
nágrannalöndin í þessum efnum.
Hún telur aukningu manngerðra
svæða í Evrópu hafa haft neikvæð
áhrif á dýralíf í álfunni. „Við þurfum
virkilega að skoða okkar mál, það
þarf vandaða stefnumörkun í land-
nýtingu og skipulagsmálum.“
Vistfræðin fremur en fuglarnir
Lilja lauk meistaraprófi frá Land-
búnaðarháskóla Íslands á liðnu vori
og fjallaði lokaritgerð hennar um líf-
fræðilega fjölbreytni fugla á fimm
mismunandi gróðurbúsvæðum á lág-
lendi Suðurlands. Hún rannsakaði
m.a. hvaða gildi úthagi hafði fyrir
fuglana. Áherslurnar í doktorsverk-
efninu eru svolítið aðrar.
„Ég skoða frekar vistfræðina í
kringum fuglana fremur en fuglana
sjálfa,“ sagði Lilja. Fuglar sem
sækja í búsvæði af því tagi sem Lilja
Lilja
Jóhannesdóttir
„Öll þessi framræsla hafði gífurleg
áhrif. Það er talið að 97% votlend-
is á Suðurlandi hafi verið raskað
að einhverju leyti. Fuglategundin
keldusvín hvarf en tilkoma minks-
ins gæti líka átt sinn þátt í því.
Framræslan hafði mikil áhrif á mó-
fuglastofnana,“ sagði Lilja Jó-
hannesdóttir, doktorsnemi í vist-
fræði, um áhrif framræslu
votlendis á búsvæði fuglanna.
Landgræðsla, sumarbústaðalönd
og skógrækt hafa einnig haft áhrif
á búsvæði fugla.
Hún sagði að niðurstaða meist-
araverkefnis síns hefði verið sú að
í votlendi og hálfdeigju (röku
landi), væri þéttleiki mófuglanna
mestur. Því mætti álykta að slík
búsvæði væru með þeim mik-
ilvægustu.
Lilja sagði að enn væru til stór
og samfelld votlendissvæði á Suð-
urlandi. Hún taldi mikilvægt að
vernda þessi svæði í heild sinni.
Unnið hefur verið að endurheimt
votlendis m.a. í Árborg. Lilja
kvaðst vilja sjá meira gert af slíku.
„Þegar talað er um bindingu
kolefnis er áherslan á skógrækt.
Nytjaskógrækt er kolefnisbinding í
takmarkaðan tíma. Þegar við nytj-
um viðinn losnar kolefnið aftur.
Það er minna talað um ágæti þess
að endurheimta votlendi til að
binda kolefni. Það er langtíma
binding ef það fær að vera órask-
að,“ sagði Lilja.
Framræsla og landgræðsla
AÐGERÐIR MANNA MÓTA UMHVERFI FUGLANNA
Skurður Framræsla lands hefur haft mikil áhrif á búsvæði fugla hér á landi.
DAGAR Í HYGEU
Þessi fallegi *kaupauki
fylgir ef keypt er fyrir
6.900 krónur eða meira
í Estée Lauder
5. - 8. desember
*meðan birgðir endast
Kringlan/Sími5334533