Morgunblaðið - 05.12.2013, Blaðsíða 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2013
S9600-Remington SILK sléttujárn
Digital LCD skjár sem sýnir hitan 150-240˚C
Hitnar á 10 sek. Hægt að læsa hitastilli, digital skjár
sem sýnir hitastig, alþjóðlegur
Ci96W1-Silk keilujárn
25mm-13mm, 120-220˚C, slekkur sjálfkrafa á
sér eftir 60 mín., alþjóðlegur
straumur 120-240V
Bylgju járn, 16mm x 26mm töng, Digital skjár
120-220˚C, slekkur sjálfkrafa
straumur 120-240V
Ci96Z1 – Silk Waving Wand
á sér eftir 60 mín.,
alþjóðlegur straumur
120-240V
Ci96S1 – Silk alhliða hár-mótunartæki
25mm klofin töng sem býr til margar tegundir af hárgreiðsl-
um, meðalstórar krullur, lausar krullur, bylgjur, mjúka liði.
Digital skjár 120-230˚C, hitnar upp á 30 sek., læsing á
hitastillir, slekkur sjálfkrafa á sér
eftir 60 mín., alþjóðlegur s
traumur 120-240V
AC 9096 – Remington
Silk hárblásari
Kraftmikill 2400W hárblásari,
AC motor, blæs 140 km/h,
kaldur blástur
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | act@actehf.is
Jólagjafir
fyrir hana
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hættu að mikla fyrir þér eigin vanda.
Spjall við ókunnugan aðila gæti aldeilis víkk-
að sjóndeildarhring þinn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur fulla ástæðu til að vera
ánægð/ur því allt virðist ætla að ganga upp
hjá þér. Sinntu maka eða nánum ástvini eins
og þér frekast er unnt og leggðu annað til
hliðar á meðan.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ekki til of mikils ætlast að
vonast til að verkefni verði skemmtilegt og
auðvelt. Líttu ekki á ætlanir þínar sem
draumóra heldur upphafið að stórkostlegum
árangri.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur verið á fullri fart undanfarin
misseri. Hvernig áttu að fara að því að útvega
peninga til þess að gera allt sem þú sérð fyrir
þér að veruleika? Haltu þínu striki.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Tækifæri gætu gengið þér úr greipum
þar til einhver bendir þér á þau. Gættu þess
hins vegar að velja orð þín af kostgæfni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Komdu þér niður á jörðina og við-
urkenndu staðreyndir. Gættu þín, þú gætir
skotið þeim sem þekkja þig ekki vel skelk í
bringu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sköpunarþrá þín er rík og sjálfsagt að þú
finnir henni farveg. Fljótfærni í þeim efnum
getur reynst harla afdrifarík.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef maður nálgast viðfangsefni
sín af ást ver maður minni orku í að klára
þau. Gleymdu ekki að spjalla við fólk til að
missa ekki af áhugaverðum kjaftasögum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur unnið af fullum krafti í
nokkur ár. Reyndu að sýna umburðarlyndi
þótt einhver komi illa fram við þig. Njóttu
þess að búa heimilið undir hátíðina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gerðu góðverk fyrir einhvern án
þess að hann viti það – svona eins og öfug
stríðni. Nú er rétti tíminn til að framkvæma
hugmyndir sem komu upp í huga þinn í gær.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt þú hafir fyrir löngu kvatt
gamalt samband er einhver hluti þinn sem
gerði það ekki – hvort sem þér líkar betur
eða verr. Samtal við vin munu einmitt sýna
fram á þetta.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gættu þess að særa ekki aðra í orði
eða verki. Láttu innsæi þitt segja þér hvað á
við hverju sinni því það reynist farsælast. Þú
hefur heppnina með þér á næstunni.
Oft er talað um, að ferskeytlan séá undanhaldi. Þó eru dæmi um
að hún gangi milli manna í staðinn
fyrir sms-skilaboð. Nokkrir fyrrver-
andi alþingismenn hafa stundum hist
niðri í Skólabrú í hádeginu og hefur
komið í hlut Hjálmars Jónssonar að
bjóða til hádegisverðar. Það gerði
hann á netinu á þriðjudaginn klukk-
an rúmlega hálf sex:
Mildan texta mönnum les.
Mætið, lengstra orða.
Fimmtudaginn 5. des.
fáið gott að borða.
Tveim tímum síðar lagði ég þetta
í púkkið:
Á ýmsan veg má öllu snúa
um það sem að fyrir ber.
Ég aldrei veit hvort eigi að trúa
orðum prests, sem sagði ‘ann mér.
Upp úr kl. 8 barst svar frá Geir
H. Haarde:
Fimmtudaginn 5. des.
feginn mæta mundi.
Í dagbók minni leiður les
að læstur verð á fundi.
Jón Kristjánsson sá ástæðu til að
blanda sér í málin. Þá var klukkan
21 mínútu yfir 9 um kvöldið:
Orðum prestsins eftir fer
enda sanntrúaður
en Halldór Blöndal orðinn er
efasemdamaður.
Tæpum hálftíma síðar barst mér
svar frá Hjálmari:
Öll þótt veröld oltið geti
og öfugt snúið, víst til sanns,
trúðu eins og nýju neti
náðarboðskap frelsararns.
Og eftir 10 fréttir bárust orð frá
Hjálmari:
Ýmislegt mun ort og sagt,
aðrir brúnir hnykla.
Okkur hefur línu lagt
Leiðréttingin mikla.
Enn orti Hjálmar um kvöldið:
Menntaþrá í mörgum brann
svo mætti þjóðin rísa.
En skelfing hefur skekið mann
skakki turninn í Pisa.
Næsta dag með morgunkaffinu
barst vísa frá Jóni Kristjánssyni:
Ekki ná að ógna mér
áhyggjur af Pisa
en leiðtoga minn lofa ber,
landið er að rísa.
Og skömmu síðar frá Geir H.
Haarde:
Halldór hagyrðingur er
og Hjálmar Jónsson líka.
En þegar Jón í flokkinn fer
fæðist skáldaklíka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fyrrverandi þingmenn
hafa orðið
Í klípu
„SEM BETUR FER TÓK ÞETTA FLJÓTT
AF FYRIR HANN. EKKI NÓGU FLJÓTT
SAMT, ÞVÍ VIÐ VORUM MEÐ TILBOÐ Í
SÍÐASTA MÁNUÐI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EINHVER STAL KLÓSETTSETUM FRÁ ÞVÍ
OBINBERA FYRIR 15 MILLJÓNIR! GÖTU-
VIRÐIÐ ER TALIÐ UM SJÖÞÚSUNDKALL.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú veist
fyrirfram hvað hann er
að reyna að segja.
ÚTFARAR-
STOFA Ég ... sko ...
hérna ...
ÞAÐ ER SVO HEITT ÚTI
AÐ MAÐUR SVITNAR VIÐ
ÞAÐ EITT AÐ STANDA!
HLJÓMAR EINS OG
LÍKAMSRÆKT FYRIR ÞIG.
NEMA
ÞETTA MEÐ
SVITANN.
SANNUR VÍKINGUR
BIÐST EKKI AFSÖKUN-
AR Á EINU EÐA NEINU!
HVER ATAÐI
GÓLFIÐ
MITT ÚT?!
FYRIR-
GEFÐU,
HELGA MÍN!
ÉG STEIG Í
POLL!
OG GLEYMDI
AÐ ÞURRKA
SKÓNA!
ÉG VISSI EKKI
AÐ ÞÚ HEFÐIR
SKÚRAÐ Í DAG!
FYRIRGEFÐU!
Strákar, vitiði í hverju ég lenti ímorgun?“ sagði Víkverji með
hárri raust þegar hann drattaðist í
vinnuna. Það kom í ljós að sam-
starfsmennirnir höfðu takmarkaðan
áhuga á því. Víkverji hefur nefnilega
í vetrartíðinni verið með seinni skip-
um í hús á morgnana, og oftar en
ekki spilar ökutækið, sem er komið
til ára sinna, þar stóra rullu. Í gær-
morgun þurfti hann til dæmis að
grafa bílinn sinn úr fönn. Í fyrradag
var það vörubíll sem tálmaði för
hans og daginn þar áður varð Vík-
verji næstum því bensínlaus. Og þar
fram eftir íshálum götunum.
x x x
Kvað svo rammt að þessu í vikunniað einn samstarfsmaður Vík-
verja sagði: „Þú kemur hérna inn á
hverjum morgni eins og Kramer í
Seinfeld, alltaf á versta tíma og alltaf
með einhverja hrakfallasögu!“ Þó að
Víkverji væri pínu upp með sér að
vera líkt við persónu úr uppáhalds-
sjónvarpsþáttunum sínum fór hann
að íhuga hvort nýr bíll og ný skafa
væru ekki bestu gjafirnar í ár.
x x x
Annars verður það að viðurkenn-ast að Víkverji er ekki morgun-
sæll maður á veturna. Hverjum
finnst svo sem gaman að skipta úr
hlýju koti yfir á ískalt parkett-gólf
og flísar? Ekki tekur betra við þegar
út er komið, snjór og slabb og
bleyta. Það er dimmt þegar Víkverji
fer í vinnuna og dimmt þegar hann
kemur til baka. Það er að segja ef
hann sér fyrir haglélinu myljandi
niður á rúðuna.
x x x
Eina ljósið í myrkrinu er að jólinnálgast bráðum. Það besta við
þau eru jólaljósin, sem í tilfelli Vík-
verja felst í stórri ísbjarnarstyttu.
Og það er kannski kraftur jólanna.
Það er líklega engin tilviljun að hátíð
ljóss og friðar, sama hvaðan hún er
upprunnin, sé sett á um það leyti
sem dagurinn er stystur. Og líklega
er það viss nauðsyn að gera sér
dagamun á þeim tímamótum til þess
að komast í gegnum svartasta
myrkrið. Víkverji ætlar því að setja
upp jólaljósin sem fyrst, og hafa þau
uppi sem lengst. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Þegar sál mín örmagn-
aðist í mér, þá minntist ég Drottins, og
bæn mín kom til þín, í þitt heilaga
musteri. (Jónas 2, 8.)