Morgunblaðið - 05.12.2013, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2013
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
Jóladress og jólagjafir
fyrir flottar konur
Tæplega tvöhundruð listamenn
koma fram í á fjórða tug viðburða í
Menningarhúsinu Hofi í desember.
Samkvæmt upplýsingum frá Ingi-
björgu Ösp Stefánsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Hofs, verður í há-
deginu alla fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga, auk
mánudagsins 23. desember boðið
upp á lítinn jólaglaðning, sem fer
fram í Hamragili, gestum að kostn-
aðarlausu.“ Á meðal þeirra sem
koma fram eru Stúlknakór Ak-
ureyrarkirkju, akureyrska hljóm-
sveitin Sjálfsprottin spévísi, börn
frá leikskólanum Lundarkoti, Ósk-
ar Halldórsson Helena Eyjólfsdóttir
og systurnar Una og Eik Haralds-
dætur en Eik sigraði í keppninni
Jólastjarna Björgvins í ár.
Laugardaginn 7. desember fer
fram jólahátíðin Jól í Hofi og hefst
hún kl. 12.30 með heimsókn Grýlu,
en Stúlknakór Akureyrarkirkju-
mun flytur hugljúf jólalög kl. 15.
Jólahátíðinni lýkur á jólatónleik-
unum undir yfirskriftinni Gleði og
Friðarjól kl. 17 og 21. Þar koma
fram Pálmi Gunnarsson, Ragnheið-
ur Gröndal og Kammerkórinn
Hymnodia. Alla nánari upplýsingar
um dagskrána og miðasala er á
vefnum menningarhus.is.
Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson.
Ævintýraleg aðventa í Hofi
„Nýherji, umboðsaðili Canon á Ís-
landi, efnir til myndasýning-
arkvölds í samstarfi við einn þekkt-
asta ljósmyndara okkar Íslendinga,
Ragnar Axelsson, betur þekktur
sem RAX,“ segir í tilkynningu frá
fyrirtækinu. Viðburðurinn fer fram
í dag kl. 17.30 í húsnæði Nýherja að
Borgartúni 37.
„Þar mun RAX fjalla um nýleg
verkefni í máli og myndum, meðal
annars úr nýlegum ferðum til
Grænlands, frá Íslandi ásamt því að
sýna myndir úr bókinni Fjallaland.
RAX hlaut Blaðamannaverðlaun
ársins 2012 fyrir merka umfjöllun
og myndir af stórum pollum á
Grænlandsjökli sem voru til marks
um óvenjumikla bráðnun Græn-
landsjökuls,“ segir í tilkynningu.
Aðgangur er ókeypis, en þátttak-
endur þurfa að skrá sig á vefnum
nyherji.is.
Verðlaunaljósmyndari Ragnar Ax-
elsson hlaut Blaðamannaverðlaun 2012
fyrir umfjöllun sína um Grænlandsjökul.
RAX með myndasýningu auk þess
að árita bækur sínar hjá Nýherja
Smellin grunnhugmynd
Kertasníkir
bbmnn
Texti: Huginn Þór Grétarsson.
Myndir: Bojan Radovanovic.
Óðinsauga 2013. 20 bls.
Grunnhugmyndin í Kertasníki eftir Hugin
Þór Grétarsson er smellin. Hér segir af raun-
um Kertasníkis
sem er stel-
sjúkur og laum-
ast til að taka
kerti þegar eng-
inn sér til. Kvöld
eitt reynist hann
of gráðugur, því
í öllum látunum
treður hann ofan í vasa sinn kerti sem enn
logar á með þeim afleiðingum að föt hans
fuðra upp. Kertasníkir þarf því að grípa til ör-
þrifaráða til þess að geta klárað það verkefni
sitt að færa öllum börnum glaðning í skóinn.
Þessi reynsla slær samt ekkert á stelsýki
sveinka. Textinn nær ekki almennilegu flugi,
verður á köflum óþarflega staglkenndur og
hefði vafalítið grætt á markvissari ritstjórn.
Myndir Bojan Radovanovic eru ágætlega
heppnaðar.
Listaverk í sjálfu sér
Stína stórasæng
bbbbb
Eftir Lani Yamamoto.
Crymogea 2013. 44 bls.
Bókaforlagið Crymogea hefur getið sér
gott orð fyrir vandaðar bækur um ljós-
myndun, list og hönnun. Það telst því til tíð-
inda þegar Crymogea
gefur út barnabók.
Stína stórasæng
eftir Lani Yamamoto
fjallar um Stínu sem
er svo mikil kulda-
skræfa að hún fer
aldrei út á veturna.
Hún notar sköp-
unargáfuna til að
finna upp á ýmsu til
að útiloka kuldann. Út
um gluggann fylgist hún þó af forvitni með
krökkum sem leika sér í snjónum. Dag einn
liggja leiðir þeirra saman og breytir það sýn
Stínu á hlutina, því hún kemst að því að
hlýjuna er ekki bara að finna undir stórri
dúnsæng uppi í rúmi heldur geta vinir hlýjað
manni um hjartarætur. Augljóst er að mikil
alúð hefur verið lögð í bókina á öllum stigum,
hvort sem það snýr að söguefninu, mynd-
unum, litavalinu, prentun, pappír eða frá-
gangi. Stína stórasæng er allt í senn falleg,
vönduð og frumleg bók sem líta má á sem
listaverk í sjálfu sér.
Einföld saga með fallegum boðskap
Jólaandinn
bbbnn
Texti: Guðjón Davíð Karlsson.
Myndir: Karl Sigurbjörnsson.
Ugla 2013. 30 bls.
Hvað er jólaandi og hvar finnur maður
hann? Þessum spurningum fer fjögurra ára
strákur, Ari, að velta fyrir sér í kjölfar rifr-
ildis foreldra sinna í aðdraganda jóla. Dreng-
urinn grætur sig í svefn, en tár lendir á
Bjössa bangsa hans sem lifnar við og fer að
leita að jólaandanum
fyrir Ara og fjölskyldu
hans. Að sjálfsögðu fer
allt vel að lokum, en
fjölskyldan kemst að
því að jólaandinn felst
„í því að gleðjast sam-
an og gleðja aðra“ (bls.
29).
Höfundurinn, Guð-
jón Davíð Karlsson,
velur að draga upp
sterkar andstæður í stemningunni á heimilinu
fyrir og eftir næturbrölt bangsa. Þannig víkur
óeining, stress og pirringur foreldranna í fyrri
hluta bókarinnar fyrir skilningsríkum og
brosmildum foreldrum í seinni hlutanum, sem
eins og hendi sé veifað hafa skyndilega tíma
fyrir samverustundir með syni sínum. Boð-
skapur bókarinnar er fallegur, sagan einföld
og teikningar Karls Sigurbjörnssonar skýrar.
Ævintýralegur hversdagur
Randalín og Mundi í Leynilundi
bbbbn
Texti: Þórdís Gísladóttir.
Myndskreytingar: Þórarinn M. Baldursson.
Bjartur 2013. 92 bls.
Randalín og Mundi í Leynilundi er sjálf-
stætt framhald bók-
arinnar Randalín og
Mundi sem út kom í
fyrra og hlaut góðar við-
tökur enda skemmti-
legar sögupersónur á
ferðinni. Hér bregða vin-
irnir sér út úr borginni í
nokkurra daga heimsókn
til Þrastar og Adams
meðan Konráð, pabbi
Randalínar, skreppur í
helgarferð til London
ásamt Hannesi kærastanum sínum. Í sveitinni
fá þau tækifæri til að klifra í kaðalstiga,
bjarga fuglum sem fljúga niður um stromp-
inn, fara á sveitamarkað og prófa útisturtu
auk þess sem þau kynnast forvitnilegu fólki í
sveitinni eins og t.d. einstökum tvíburasystr-
um og ómannblendnum fuglafræðingi. Æv-
intýri Randalínar og Munda eru hversdagleg,
en Þórdísi Gísladóttur tekst listavel að gæða
þau lífi og gera spennandi aflestrar. Spennan
magnast svo um munar þegar vinirnir rekast
á strokufanga sem og þegar þau hafa áhyggj-
ur af nábítnum sem þau halda að sé hræðilega
grimmt dýr. Teikningar Þórarins M. Bald-
urssonar eru skemmtilegar og þjóna sögunni
vel.
Lesanda hlýnar
um hjartarætur
Yfirlit yfir nýútkomnar
íslenskar barnabækur
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Listaverk „Stína stórasæng er allt í senn falleg, vönduð og frumleg bók sem líta má á sem lista-
verk í sjálfu sér,“ segir meðal annars í umsögn um nýútkomna bók Lani Yamamoto.
Hljómsveitin amiina heldur úti jóla-
dagatali á vef sínum, amiina.com,
fjórða árið í röð. Reynir hljóm-
sveitin þannig að fanga anda
jólanna og gleðja aðdáendur sína
og vini nær og fjær, skv. tilkynn-
ingu. Búast megi við að splunkuný
lög birtist eða eldri óútgefin tónlist
ásamt sýnishornum úr ýmsu sem
amiina og meðlimir hafi gert á
árinu, myndbönd, ábreiður, ljós-
myndir eða uppskriftir úr fórum
hljómsveitarmeðlima sem stytti bið-
ina til jóla og skapi stemningu á að-
ventunni að hætti amiinu. Þá muni
góðir gestir taka lagið með hljóm-
sveitinni. Á vefnum má svo hlaða
niður ókeypis ábreiðu amiinu af
jólalaginu „I’d Like to Teach the
World to Sing“.
Amiina með jóladagatal í fjórða sinn
Jólastemning Hljómsveitin amiina er
komin í jólaskap og heldur úti jóladagatali.