Morgunblaðið - 11.04.2014, Síða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2014
✝ Friðrik Theo-dórsson, fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóri og
tónlistarmaður,
fæddist í Reykjavík
7. febrúar 1937.
Hann lést 28. mars
2014.
Foreldrar hans
voru Sigríður Mar-
grét Helgadóttir,
húsfreyja og um-
boðsmaður DAS, f. 1910, d. 1977
og Theodór Gíslason, hafn-
sögumaður, f. 1907, d. 1986.
Systkini: Gísli Theodórsson, f.
1930, d. 2001, og Guðbjörg Theo-
dórsdóttir, f. 1943. Friðrik
kvæntist Eddu Völvu Eiríks-
dóttur 1962. Edda Völva er fædd
1. október 1939 og foreldrar
hennar voru Valborg Bents-
dóttir, f. 1911, d. 1991, og Eirík-
ur Baldvinsson, f. 1906, d. 2004.
Börn Friðriks og Eddu Völvu
eru Hildur, f. 1962, Hrefna, f.
1965, og Halla Rún, f. 1972. Maki
flugvél. Eftir heimkomu hóf Frið-
rik störf hjá Rolf Johansen & Co.
Þar var hann framkvæmdastjóri
mestan hluta starfsævinnar að
undanskildum rúmum sjö árum
sem Friðrik starfaði hjá Loftleið-
um, fyrst sem sölustjóri hótels og
síðar sem deildarstjóri frakt-
deildar. Árið 1970 tók hann þátt í
að stofna Cargolux í Lúxemborg.
Friðrik var þekktur tónlist-
armaður. Hann spilaði á kontra-
bassa í mörg ár og síðar á bás-
únu. Þá söng hann einnig og brá
oft fyrir sig skattsöng. Friðrik
kom víða við í tónlist og spilaði
með fjölmörgum hljómsveitum.
Þegar hann lést spilaði hann með
Lúðrasveit Reykjavíkur og Stór-
sveit öðlinga. Friðrik sat lengi í
framkvæmdastjórn Jazzvakn-
ingar. Hann var í stjórn Jazzhá-
tíðar Reykjavíkur frá upphafi og
framkvæmdastjóri hátíðarinnar
frá 1999 til 2005. Friðrik var
heiðraður sérstaklega á Jazzhá-
tíð Reykjavíkur 2013 og var sá
fyrsti sem hlaut þá viðurkenn-
ingu. Þá var Friðrik í stjórn jazz-
deildar FÍH í fjölmörg ár og hélt
úti öflugri fréttaveitu um jazz-
viðburði.
Útför Friðriks fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag, 11. apríl
2014, kl. 13.
Hildar er Jóhannes
Albert Sævarsson,
f. 1962, og börn
þeirra eru Hrund, f.
1992, Friðrik Húni,
f. 2001, og Kári
Hrafn, f. 2003. Maki
Hrefnu er Hörður
Sigurðarson, f.
1962. Dóttir Hrefnu
er Eyrún Eggerts-
dóttir, f. 1982, maki
hennar er Þor-
steinn Otti Jónsson, f. 1980, og
börn þeirra eru Jökull Otti, f.
2007, og Bjartur Otti, f. 2010.
Maki Höllu Rúnar er Jón Benoný
Reynisson, f. 1961.
Friðrik lauk prófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1955 og fór þá
að starfa hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga. Árið 1958 fór
hann á þeirra vegum til Banda-
ríkjanna og vann í þrjú ár við að
setja á fót og reka fiskvinnslu-
verksmiðju. Í Bandaríkjunum
tók Friðrik einkaflugmannspróf
og eignaðist hann síðar hlut í
Sumum lætur vel að tala um
hluti, mörgum hættir til að færast
of mikið í fang, en svo eru það þeir
sem ekki gefa drauma sína upp á
bátinn, eru framkvæmdarmenn;
læra að fljúga á miðjum aldri og
með elju og þrjósku þjálfa sig út í
eitt í bílskúr til að ná tökum á
nýju hljóðfæri; í lífi sínu sönnun
þess að aldrei er of seint að
breyta út af föstum venjum, leyfa
draumum sínum að rætast.
Lúðrahljómsveit Reykjavíkur
var einn af föstum punktum
Frikka, annar var Öðlingarnir,
sveit eldri eðaldjassara; man
Frikka alltaf á ferð á milli þessara
hnita með lúður í tösku, á leið á
æfingar eða til að spila á giggum,
jafnvel scattaði hann stundum
eða söng á jólaböllum með sinni
hrjúfu látúnsrödd. Óbilandi
ástríða; djass og brass voru hans
súrefni, ekki til heilnæmara loft
en það sem dregið var inn um
munnvik og blásið út í gegnum
hljóðfærið. Frikki flaug um háloft
lífsins og blés í básúnu til síðasta
dags.
Gott faðmlag fer eftir hjarta-
lagi ekki lengd arma; faðmur
Frikka var víður og hlýr, virkaði
eins og bros, bræddi alla þá sem í
hann komust.
Eftir að Frikki kvaddi rædd-
um við feðgar um mannshugann,
sem er stærri en alheimurinn,
dularfyllri og margbreytilegri.
Þar rúmast allt; hugmyndir okk-
ar og hugsanir um hvaðeina. En
við dauðann, hvað verður þá um
allt það sem hugurinn geymdi,
spurðu afastrákarnir. Ósögð orð
tapast, óráðnir draumar og óupp-
fylltar langanir einnig; margt lifir
samt áfram í minningum og verk-
um þess látna, en ekki þó síst sá
orðstír, hveim er sér góðan getur.
Það verðuga úr lífi sérhvers
manns á að vera eftirkomendum
hvatning til mannbætandi verka,
þá var til einhvers lifað. Á þann
hátt mun Frikki verða okkur ná-
lægur, minnir okkur á góð gildi,
þó svo hann sé nú farinn að leika á
básúnu með nýju bandi. Látúns-
herinn hefur skipaði honum til
sætis nærri goðsögnum djassins,
spilurum sem Frikki hreifst með
þegar hann dvaldi ungur maður í
Ameríku; það er alltaf pláss fyrir
góðan blásara, nýjan tón.
Jóhannes Albert Sævarsson.
Elsku afi okkar. Við kveðjum
þig með miklum söknuði og sorg í
hjarta. Þú hefur verið stór hluti af
lífi okkar allra og við hefðum ekki
getað hugsað okkur að eiga betri
afa. Þú varst svo kærleiksríkur
og glaður og alltaf til í að syngja,
hlæja og segja brandara. Þú varst
mikill fjölskyldumaður og traust-
ur, alltaf til staðar ef við þurftum
á stuðningi að halda, svo hjálp-
samur og greiðvikinn. Við mun-
um öll eftir stóra og hlýja faðm-
laginu þínu. Þar var líka alltaf svo
góð rakspíralykt.
Elsku afi, þú munt alltaf eiga
stað í hjarta okkar.
Eyrún Eggertsdóttir, Hrund
Jóhannesdóttir, Friðrik
Húni Jóhannesson, Kári
Hrafn Jóhannesson.
Friðrik mágur minn féll
skyndilega frá 28. mars síðastlið-
inn.
Við vorum jafnaldrar og þegar
andlát hans bar að garði varð mér
hverft við og allt í einu fór ég að
hugsa um hvað stutt er milli lífs
og dauða. Hann kom inn í fjöl-
skylduna fyrir meira en hálfri öld
þegar hann kvæntist systur
minni. Við systur erum mjög
samrýmdar og börnin okkar hafa
alltaf verið vinir. Margar góðar
minningar koma upp í hugann
þegar litið er til baka. Hann
reyndist foreldrum mínum alla
tíð góður tengdasonur og hann
var einstaklega bóngóður maður.
Börnin mín minnast Frikka, sem
sérstaklega barngóðs glaðlynds
og gjafmilds manns, og þau muna
eftir ótal skemmtilegum stundum
með honum. Árið 1975 fórum við
báðar systurnar til Ítalíu ásamt
börnum og mökum, alls tíu
manns, og vorum í fjórar vikur,
það var mjög gott sumarfrí.
Árið 1994 keyptum við Valborg
dóttir mín okkur sumarhús á
Stokkseyri, það gerðu Edda og
Frikki einnig. Fyrsta verk
Frikka þegar þau komu austur
var alltaf að draga íslenska fán-
ann að húni, þá vissum við að þau
voru komin. Eftir að við eignuð-
umst húsin á Stokkseyri voru
samverustundirnar okkar ennþá
fleiri. Það var grillað og borðað
saman, farið í fjöruferðir, sund-
laugaferðir og allt þetta skemmti-
lega sem sumarhús gefa. Ég og
afkomendur mínir eigum eftir að
sakna Frikka og minnast hans
oft. Sárastur er þó söknuður hjá
Eddu, dætrunum og fjölskyldum
þeirra. Megi góðar minningar
styrkja ykkur í sorginni.
Silja Sjöfn Eiríksdóttir.
Hann var bráðmúsíkalskur
maður. Spilaði á bassa, básúnu og
söng. Hann var líka viðskipta-
maður, framkvæmdastjóri, at-
hafnaskáld, skemmtanastjóri og
skemmtikraftur. Síðast en ekki
síst var hann djassmaður. Hann
var í stjórn Jazzhátíðar Reykja-
víkur um árabil og síðar fram-
kvæmdastjóri, hélt úti vefritinu
Jazzfréttum, var formaður djass-
deildar FÍH, vann að samnor-
rænum djassmálum, ekki síst
með ungmennum, en var líka
driffjöður í starfi eldri félaga
FÍH. Hann elskaði að spila og
syngja, alltaf kátur og kankvís.
Gat verið snöggur upp á lagið en
hafði gott hjartalag og vildi öllum
vel.
Ég sá Friðrik Theodórsson
síðast í fimmtugsafmælinu mínu í
janúar. Þar var hann mættur, að
vanda með blik í auga og bros á
vör, og óskaði hlýtt og innilega til
hamingju með þéttu handtaki og
faðmlagi. Fyrst hitti ég hann aft-
ur á móti 34 árum fyrr á veitinga-
staðnum Esjubergi á Hótel Esju.
Mig grunar að það hafi verið í eitt
af fyrstu skiptunum sem ég kom
fram opinberlega að spila djass-
tónlist. Unglingahljómsveitin
Swingbræður fékk að opna fyrir
eldri og reyndari menn í Trad-
kompaníinu þar sem Friðrik spil-
aði á bassa með bullandi sveiflu.
Svo söng hann stöku lag og þegar
vel lá á honum brast á með „scat“-
söng. Hann kynnti lögin,
skemmti áhorfendum, var ein-
hvern veginn allt í öllu og hann
tók okkur unglingunum vel – því
hann var þannig maður.
Þegar ég kom heim frá námi
tæpum áratug síðar lenti ég í
stjórn djassdeildar FÍH og sam-
an fórum við Árni heitinn Schev-
ing í að koma á fót djasshátíð í
Reykjavík. Þegar kom að því að
finna fleiri stjórnarmenn stakk ég
strax upp á Frikka T. Ég vissi
sem var að hann hafði fjölþætta
reynslu bæði úr viðskiptalífinu og
tónlistarlífinu auk ódrepandi
áhuga á tónlistinni. Svo var hann
vel tengdur, fljótur að hugsa og
hvergi banginn. Allt mikilsverðir
kostir sem nýttust vel.
Ég held að tónlistin hafi alltaf
verið framarlega, ef ekki fremst, í
huga Friðriks þó að lífið hafi ým-
ist borið hann nær eða fjær henni.
Eftir að fór að hægjast um lék
hann með Lúðrasveit Reykjavík-
ur og sömuleiðis með stórsveit
eldri félaga FÍH. Þar endaði hann
ferilinn í orðanna víðasta skilningi
því dauðinn vitjaði hans á stór-
sveitarstóli með básúnu í hendi.
Það velja sér fæstir brottfarar-
máta og dauðinn er sjaldnast vel-
kominn. Samt verð ég að segja að
það er eitthvað passandi við þessa
útgöngu Friðriks. Hann kvaddi
við þá iðju sem honum var einna
kærust og ég get a.m.k. hugsað
mér margar verri kveðjuaðstæð-
ur en djassæfingu í vinahópi.
Líklega söng Friðrik Theo-
dórsson ekkert lag oftar en „My
blue heaven“, að minnsta kosti er
það lagið sem ég tengi sterkast
við minningu hans. Nú er hann
kominn þangað uppeftir og ég veit
að þar mun hann hressa upp á
mannskapinn með sínu glaðbeitta
brosi, eljunni, glettninni og sinni
góðu rödd. Spurning hvernig al-
mættið bregst við þegar brestur á
með skvídilíaba dúba da bídilíada-
bop – ég hlakka til að blanda mér í
það djamm. Frikki minn, hafðu
þökk fyrir allt þitt góða starf í
þágu djasstónlistar á Íslandi. Þitt
framlag skipti miklu máli.
Sigurður Flosason.
Mér er ljúft og skylt að minnast
vinar og félaga, Friðriks Theo-
dórssonar og þakka áratuga sam-
starf og vináttu. Hann er kvaddur
með miklum söknuði af ástvinum,
frændum og vinum. Einnig af
stórum hópi fólks sem deildi með
honum ást hans á tónlist, einkum
djassmúsík.
Strax og Friðrik lauk námi frá
Verslunarskólanum hóf hann
störf af miklum krafti, og fyrir nú-
tímalega þenkjandi mann voru
víða nýstárleg tækifæri sem köll-
uðu á nýtt, dugandi fólk. Friðrik
var stórhuga og öflugur. Verkefn-
in sem hann tók þátt í fyrsta ára-
tug starfsævinnar voru því af
stærri gerð en gengur og gerist.
Stofnun fiskréttaverksmiðju í
Harrisburg í Bandaríkjunum,
stofnun Hótel Loftleiða, og stofn-
un flugfélagsins Cargolux í Lúx-
emborg. Mjúk lending en anna-
samt starf beið hans þegar hann
hóf störf sem framkvæmdastjóri
hjá fyrirtæki Rolfs Johansen, og
þar átti hann farsælan feril í ára-
tugi til starfsloka. Alla tíð starfaði
hann að hljóðfæraleik jafnhliða
aðalstarfi.
Hvar sem Friðrik Theodórs-
son drap niður fæti um ævina
skildi hann eftir sig spor. Á sjö-
unda áratugnum bjuggu Friðrik
og Edda í Árbæjarhverfi. Þau
voru þar ekki lengi, en gamlir
Árbæingar tala en um forystu
Friðriks í göngustíga- og lóða-
framkvæmdum í Árbænum.
Friðrik var ekki einhamur og
eljusemi hans slík að hann á fáa
sína líka. Hann var á þann hátt til
forystu fallinn að það sem hann
vissi að gera þurfti gat hann aldr-
ei látið ógert, eða beðið þess að
einhver annar gerði það. Þess
nutum við sífellt félagar hans,
sem störfuðum með honum, því
hann vissi alltaf hvað gera þurfti
til þess að mál leystust eða þokuð-
ust áfram. Þegar hann var burt
kallaður hafði hann ekki lokið leik
sínum, og því síður því ómetan-
lega starfi sem hann var sífellt að
inna af hendi og laut að rekstri og
skipulagningu hljómsveita okkar
og samtaka. Skarð hans er svo
vandfyllt að manni nánast fallast
hendur.
Djassmúsík var og er lífsstíll
þeirrar kynslóðar sem nú er kom-
in á beinu brautina. Friðrik naut
þeirra forréttinda ungur að fá
djassmúsík beint í æð í Banda-
ríkjunum og gyðjan sú var ekki
svikin af þeim kynnum, því á einn
eða annan hátt sinnti hann henni
allar götur síðan. Hljóðfæri hans
var í fyrstu kontrabassi en síðar
básúna. En hljóðneminn var líka
hljóðfæri hans og með hann í
höndum átti hann ekki marga
jafninga í djassheimi, og var í
raun frumkvöðull í skattsöng.
Auk góðrar söngraddar lagði
Friðrik ávallt mikla áherslu á
kynningar við tónleikahald og á
því sviði var hann snillingur.
Framkoman í senn örugg, fáguð
og gáskafull, enda maðurinn
húmoristi svo af bar. Ég á margar
minningar um hann þar sem hann
fór á kostum.
Það er Friðriki Theodórssyni
verðugt að fá þau eftirmæli að
þar fór góður maður og vinur.
Ávallt reiðubúinn að sjá af tíma
sínum og orku í þágu góðra mál-
efna, félaga sinna, vina og sam-
ferðamanna.
Í einka- og fjölskyldulífi var
Friðrik gæfumaður, enda vakinn
og sofinn yfir velferð fjölskyld-
unnar. Ég votta Eddu Völvu,
Hildi, Hrefnu, Höllu Rún og öðr-
um aðstandendum dýpstu samúð.
Sverrir Sveinsson.
Friðrik Theodórsson, eða
Frikki básúna eins og við í Lúðra-
sveit Reykjavíkur þekkjum hann,
var virkur meðlimur lúðrasveit-
arinnar í fjölda mörg ár. Hann
gegndi hinum ýmsu störfum fyrir
lúðrasveitina m.a. var hann í
ferðanefnd, hann sat í stjórn
lúðrasveitarinnar um tíma og var
endurskoðandi sveitarinnar.
En Frikki gaf okkur svo margt
fleira en bara að sitja í nefndum
og stjórn. Hann var yfirleitt
kynnir á tónleikum hjá okkur þar
sem hann kom með ýmsan fróð-
leik í tengslum við hvert lag og
tónskáld sem kom við sögu á tón-
leikunum. Þeim sem þekkja
Frikka kemur þetta ekkert á
óvart þar sem hann lifði og
hrærðist í tónlist og er Lúðra-
sveit Reykjavíkur bara brot í tón-
listarsögu Frikka.
Það var ekki bara á tónleikum
sem hann skemmti fólki með
ýmsum sögum og fróðleik heldur
lét hann ekkert eftir liggja á æf-
ingum. Hann mætti manna fyrst-
ur á æfingar í hverri viku og
þurfti mikið til að hann missti af
æfingum. Á æfingunum sjálfum
sagði hann brandara og ýmsar
sögur sem skemmtu okkur sam-
spilurum hans ávallt.
Friðrik var góður félagi okkar
og er mikill missir að honum.
Hann lét sér annt um alla meðlimi
sveitarinnar og lét hvergi sitt eft-
ir liggja. Hann var ákveðinn og
áreiðanlegur, auk þess sem hann
var gleðigjafi mikill.
Við munum sakna þín mikið,
elsku Frikki, og básúnudeildin
verður ekki söm án þín, kæri vin-
ur og félagi.
Ég vil þakka þér, Frikki, fyrir
starf þitt í og fyrir sveitina í gegn-
um árin.
Með söknuði, fyrir hönd
Lúðrasveitar Reykjavíkur,
Jóhanna
Guðmundsdóttir.
Friðrik
Theodórsson
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HAUKUR ÖNFJÖRÐ MAGNÚSSON
kennari
frá Siglufirði,
lést þriðjudaginn 25. mars á Landspítala við
Hringbraut.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð um
drukknaða sjómenn frá Siglufirði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki 11E krabbameins-
deildar fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Jóhanna Hauksdóttir,
Bára Hauksdóttir,
Bylgja Hauksdóttir, Sara Dögg Svanhildardóttir,
Ólafur Magnús Hauksson,
Dagný, Sandra, Rósant Máni,
Guðbjartur, Anna Þórdís.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
Haraldur Hermannsson
frá Yzta-Mói, Fljótum,
Sauðármýri 3,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki
fimmtudaginn 3. apríl.
Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 19. apríl
kl. 11.00.
Jarðsett verður að Barði í Fljótum.
Guðmunda Hermannsdóttir,
Sigurhanna Ólafsdóttir,
Jóhanna Petra Haraldsdóttir, Jónas Svavarsson,
Linda Nína Haraldsdóttir, Jón Eðvald Friðriksson,
Lára Gréta Haraldsdóttir, Magnús Sigfússon,
Þröstur Georg Haraldsson, Guðrún Haraldsdóttir,
Ellen Hrönn Haraldsdóttir, Gunnar Björn Ásgeirsson,
Stefán Logi Haraldsson, Inga S. Baldursdóttir,
Róbert Steinn Haraldsson, Erla Valgarðsdóttir,
Haraldur Smári Haraldsson, Eydís Eysteinsdóttir,
afabörn, langafabörn og langalangafabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓNA JAKOBÍNA ÞORGEIRSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar
laugardaginn 5. apríl.
Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 12. apríl kl. 14.00.
Þorgeir Reynisson,
Guðrún Reynisdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
KRISTJÁN ALEXANDERSSON,
Kiddi,
lést á hjúkrunardeild HSA á Egilsstöðum
fimmtudaginn 3. apríl.
Útför fer fram mánudaginn 14. apríl í Egils-
staðakirkju kl. 14.00.
Hjartans þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar HSA, Egilsstöðum,
fyrir einstaka umhyggju og hlýhug í okkar garð.
Þórður Kristjánsson, Petrína Haraldsdóttir,
Hrafnkell H. Kristjánsson, Bryndís Sigurgeirsdóttir,
Svanfríður Kristjánsdóttir, Magnús Ó. Gunnarsson,
Birna Kristjánsdóttir,
Alexander Kristjánsson, Lembi Seia Sangla,
barnabörn og barnabarnabörn.