Morgunblaðið - 19.04.2014, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 9. A P R Í L 2 0 1 4
Stofnað 1913 92. tölublað 102. árgangur
TEKUR ÞÁTT Í
ALÞJÓÐLEGRI
SÖNGKEPPNI
ÞAKKAR FYRIR
GUÐSGJÖFINA SEM
BARNALÁNIÐ ER
ELÍSABET Á GILI 20HRAFNHILDUR 10
Landsmenn gera sér glaðan dag um páskahátíðina í faðmi
fjölskyldu og vina. Margir eru á faraldsfæti innanlands sem
utan. Kunn er sú hefð að gæða sér á súkkulaðipáskaeggi og
talið er að landinn muni innbyrða 2-3 milljónir eggja saman-
lagt. Hún Bergþóra Hansína Jósepsdóttir, rétt orðin árs-
gömul, var á ferðinni í Blómavali á skírdag og fékk þá að
bragða á sínu fyrsta páskaeggi um ævina. Ekki fylgdi sögunni
hver málshátturinn var en af svipnum að dæma á Bergþóru
líkaði henni súkkulaðið vel.
Morgunblaðið/Ómar
Gleðilega
páska
Vilborg Arna
Gissurardóttir
og tveir aðrir Ís-
lendingar sem
verið hafa á Eve-
rest-fjalli, hæsta
fjalli heims, und-
anfarna daga eru
óhult eftir snjó-
flóð sem féll fyrir
ofan grunnbúðir
í fjallinu í gær.
Slysið er það mannskæðasta sem
orðið hefur á fjallinu en minnst 12
leiðsögumenn, allt sjerpar, létust í
því. Nokkurra var enn saknað í
gær. Þeir höfðu farið af stað
snemma morguns til að undirbúa
leiðina upp skriðjökul þegar mikið
snjóflóð hreif þá með sér. »27
Sluppu við mann-
skætt snjóflóðið
Slasaður sjerpi sem
slapp lifandi.
Nokkur sveitarfélög í dreifbýli
hafa gengið fram fyrir skjöldu og
lagt ljósleiðara á eigin kostnað til
að tryggja íbúum sínum og fyrir-
tækjum sambærilega netþjónustu
og íbúar þéttbýlisins eiga kost á.
Símafélögin telja ekki borga sig að
veita þessa þjónustu. Fleiri sveitar-
félög undirbúa slík verkefni en ekki
hafa öll efni á því og einkaaðilar
hafa gengið í verkið. »22-23
Sveitarfélög í
rekstri fjarskipta
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Heimili sem hafa allt að fjórar millj-
ónir eða minna í heildartekjur á ári
fá að meðaltali 989.000 krónur færð-
ar niður af höfuðstól verðtryggðra
íbúðalána vegna leiðréttingarinnar.
Þetta má lesa út úr gögnum fjár-
mála- og efnahagsráðuneytisins yfir
hlutdeild heimila í leiðréttingunni
eftir árstekjum. Af þeim má einnig
ráða að heimili sem hafa 12 milljónir
króna eða meira í heildartekjur á ári
fá að meðaltali 1.540 þúsund krónur
afskrifaðar af íbúðalánum vegna
leiðréttingar, samtals 12,6 milljarða.
Samkvæmt gögnum ráðuneytisins
dreifðust fyrri úrræði til lækkunar
höfuðstóls verðtryggðra íbúðalána
ójafnt milli skuldara. Þannig hafi að-
eins um 7.000 heimili af þeim 73.000
sem hafa verðtryggð íbúðalán fengið
höfuðstólslækkun, borið saman við
68.000 heimili í leiðréttingunni. Sam-
anlögð upphæð fyrri aðgerða er 45
milljarðar og fengu 775 heimili helm-
ing hennar. Heimili sem hafa 8 millj-
ónir eða meira í heildartekjur á ári fá
50,8 milljarða afskrifaða, eða 40%, af
125 milljörðum vegna leiðréttingar-
innar og fyrri úræða. Heimili sem
hafa undir 6 milljónum í heildar-
tekjur fá samtals 52,9 milljarða.
Leiðréttingin nær
til allra tekjuhópa
Fjármálaráðuneytið áætlar áhrif leiðréttingar eftir tekjum
Heimili með yfir 8 milljónir í árstekjur fá 40% afskrifta
Morgunblaðið/Ómar
Húsnæði Lán verða lækkuð.
MFlestir fá niðurfærslu »4
„Það er einfaldlega þannig að þegar
fræðslu um trúarbrögð, trúariðkun
og þátt trúarbragðanna í lífi og
menningu er sópað undir teppi þá
tekur fáfræðin við og fordómarnir
fylgja í kjölfarið,“ segir Karl Sigur-
björnsson biskup m.a. í viðtali við
Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
„Ekki verður annað séð en að það
sé að koma á daginn að þegar leitast
er við að þvinga hið trúarlega undir
yfirborðið og þagga niður, eins og
mjög er tíðkað á Vesturlöndum, líka
hér á Íslandi, þá fer ýmiss konar of-
stæki að bæra á sér á ólíklegustu
stöðum undir lítt geðþekkum for-
merkjum,“ segir Karl ennfremur.
Hann hefur gefið út bækling og
bók um Hallgrím Pétursson sálma-
skáld.
Morgunblaðið/Kristinn
Biskup Karl Sigurbjörnsson.
Trúnni sópað
undir teppi
15,7%
Hlutur heimila með 12 milljónir
eða meira í árstekjur
af leiðréttingunni.
24,3%
Hlutur heimila með undir
4 milljónum í árstekjur
af leiðréttingunni.
SITT Á HVORUM ENDA
»