Morgunblaðið - 19.04.2014, Page 2

Morgunblaðið - 19.04.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2014 Gr eið slu mi ðlu n Vissir þú að . . . Með ferlum Alskila í greiðslumiðlun tryggjum við viðskiptavænt viðmót fyrir þína greiðendur! Alskil hf • Sími: 515 7900 • alskil@alskil.is • www.alskil.is Ka nnaðu Málið!alskil.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Nokkur röskun varð á samgöngum á landinu í gær vegna rysjótts veð- urs. Víða var éljagangur og hragl- andi og m.a. var öllu innanlands- flugi aflýst eftir hádegi. Á vegum gekk þó allt þokkalega fyrir sig, en margir urðu að fara sér hægt á fjall- og heiðarvegum. Spár gera ráð fyrir frekar leiðinlegu veðri með kulda og suðvestlægum áttum fram á páskadag. Eftir það léttir til, hlýnar og vindur verður hæg- ari. „Þegar fólk sem hefur brugðið sér af bæ er á heimleið annan í páskum verður komið þokkalegt ferðaveður. Að vísu gætu orðið einhver minniháttar él og hálku- blettir upp til fjalla, en þetta er allt í áttina. Eftir helgina verður hiti yfir daginn 5-8 stig,“ sagði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. „Hér hefur verið mikið að gera. Verslunin er eins og á besta sum- ardegi,“ sagði María Guðbjörns- dóttir, sem var á vakt hjá N1 í Borgarnesi í gærkvöldi. Hún sagði marga á leiðinni norður í land og þá lægi leið margra vestur á Snæ- fellsnes eða í sumarhúsabyggðir. sbs@mbl.is Léttir til annan í páskum Morgunblaðið/Ómar Margir á faraldsfæti um páskahátíðina þrátt fyrir rysjótt vetrarveður víða um landið Fukt Veturinn hefur enn ekki sleppt takinu og víða var leiðinlegt veður í gær. Í Reykjavík voru él, en fólk á göngu í miðborginni lét það ekki á sig fá. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég var hættur í stjórnmálum. Að undanförnu hef ég hins vegar rætt við fjölda fólks sem hefur beðið mig um að líta yfir sviðið í borgarmálum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur rætt við mig um stöðuna og eins forystumenn flokksins í Reykjavík og fólkið á göt- unni. Flokkurinn á mikil tækifæri í Reykjavík, en árangur ræðst auðvit- að af málefnum og hvaða fólk fæst í framboð,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknar- flokksins og áður ráðherra. Rekistefna hefur verið að undan- förnu vegna framboðsmála Fram- sóknar í Reykjavík eftir að oddvit- inn, Óskar Bergsson, sté til hliðar á dögunum. „Það er mikilvægt að lín- urnar skýrist sem fyrst,“ segir Guðni. Hann segist ekki hafa tekið ákvörðun um framboð, en muni svara af eða á málaleitunum á næstu dögum. Á þessum tíma líti hann á sjálfan sig aðeins sem stýrimann eða leiðtoga hóps sem þurfi að þjappa saman til góðra verka. „Hitt vitum við samt að stýrimenn verða stundum skipstjórar, en kannski verður einhver annar en ég í brúnni.“ Guðni segir framtíð Reykjavíkur- flugvallar verða stóra kosningamál- ið. „Höfuðborg án flugvallar er stór- sködduð,“ segir Guðni. Hann telur að flugvallarsinnar, þvert á flokks- línur, gætu átt samleið með Fram- sókn og hugsanlega aðkomu að framboðslistanum. Þá sé mikilvægt að horfa á Reykjavík heildstætt. Miðborgin og Vesturbærinn hafi verið í brennidepli, en úthverfin að sumu leyti verið afskipt í tíð núver- andi meirihluta. „Úthverfin, til dæmis Grafarvogur, Grafarholt og Úlfarsárdalur, þurfa að vera sterk og nauðsynlega öll þjónusta þar til staðar svo fjölskyldurnar geti þar átt sómasamlegt líf.“ Fylgja sigri og leiðréttingu eftir Í alþingiskosningum í fyrra fékk Framsóknarflokkurinn 16,4% og 16,8% greiddra atkvæða í Reykja- víkurkjördæmunum tveimur og tvo alþingisþingmenn kjörna í þeim báðum. „Í borgarmálunum er auð- vitað mjög mikilvægt að fylgja eftir kosningasigrinum frá í fyrra og eins skuldaleiðréttingunni, máli sem Framsókn er nú að koma í gegn sem forystuflokkurinn í ríkisstjórn,“ segir Guðni Ágústsson. Ræddi við Sigmund Davíð  Guðni Ágústsson íhugar framboð í forystu Framsóknarflokksins í Reykjavík  Flugvallarframboð þvert á flokkslínur  „Stýrimaður stundum skipstjóri“ Guðni Ágústsson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Lagadeild Há- skóla Íslands tekur upp inn- tökupróf fyrir næsta vetur og fara prófin fram 13. júní næstkomandi. Klara Óðins- dóttir, formað- ur Orators, fé- lags laganema við HÍ, segist vona að inntökuprófið verði til þess að sporna við brottfalli á fyrsta ári. „Inntökuprófið leggst almennt vel í okkur og það verður vonandi til að draga úr brottfalli á fyrsta árinu.“ Á hverju ári hefja um 250 nem- endur nám í lögfræði á fyrsta ári auk nokkurs hóps sem endurtekur fyrsta árið. „Til að komast á annað ár verða nemendur að ná prófi í al- mennri lögfræði og það verður áfram þrátt fyrir inntökuprófið,“ segir Klara. Um 80 nemendur kom- ast að jafnaði upp á annað ár. Ánægja með inn- tökupróf í lagadeild Sjálfseignarstofnun sjóðs Samtaka fjárfesta á um 800 milljónir króna í sænskum krónum á gjaldeyris- reikningi hjá Íslandsbanka en eins og nafnið ber með sér er hún tengd Samtökum sparifjáreigenda (áður Samtökum fjárfesta). Vilhjálmur Bjarnason, fráfarandi framkvæmdastjóri samtakanna, staðfestir þetta, en haft var eftir honum í Morgunblaðinu á skírdag að félagið ætti um 15 milljónir á reikn- ingi. Segir Vilhjálmur það hafa verið misminni, eignirnar séu meiri. „Við áttum 21 milljón króna í pen- ingum um áramótin og svo áttum við skammtímakröfu, ógreiddan styrk frá sjóði Samtaka fjárfesta [sem eru sjálfseignarstofnun] að fjárhæð 17 milljónir króna,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur segir aðspurður að for- saga sjálfseignarstofnunarinnar sé sú að eignarhaldsfélaginu Verð- bréfaþingi Íslands hafi verið skipt upp. Samtök fjárfesta hafi fengið hluta og svo keypt meira í félaginu. Samtökin hafi síðan orðið að láta sinn hlut og greiddi sænska kaup- höllin fyrir hann í janúar 2008. Var féð lagt á gjaldeyrisreikning hjá Glitni. Stærstur hluti er í sænskum krónum, afgangurinn í íslenskum kr. Fjórir sitja í stjórn sjóðsins og á fjármálaráðuneytið tvo fulltrúa á móti Samtökum sparifjáreigenda. Segir Vilhjálmur að samtökin geti því ekki ráðstafað fénu að vild. „Við getum ekkert hreyft okkur þar.“ Samtök sparifjáreigenda eiga 800 milljónir króna  Sjálfseignarstofnun á sjóð sem er í sænskum krónum Morgunblaðið/Ómar Aðalfundur Félag sparifjáreigenda fundaði sl. miðvikudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.